Alþýðublaðið - 11.08.1964, Blaðsíða 6
BAK VIÐ TJÖLDIN
□ EIGINMAÐURINN vaknaði
við sáran grát betri helmings síns.
Þegar hann spurði hvað ylli svar-
aði hún, að sig* heí'ði dreymt svo
illa.
— Mig dreymdi, að ég væri á
útsölu í verzlun þar sem eigin-
menn voru seldir
— Og hvað kostaði ég svo þar?
spurði maðurinn.
Gráturinn jókst um allan helm-
ing. — Menn eins og þú voru
bara til i kippum á tíu krónur.
□ Franskur bóndi, sem bjó rétt
við þjóðveg, undi illa hinum feiki-
lega hraða, sem bílar þeyttust á
fram hjá bæ hans. /
Þetta hafði kostað hann marg-
ar af beztu varphænunum, sem
höfðu álpazt út á veginn.
En kvöld eitt, þegar hann sat og [
tottaði pípu sína, fékk hann hug-
mynd. Næsta dag kom hann henni
í framkvæmd.
Við þjóðveginn, nokkurn spöl
frá bænum sitt hvorum megin,
setti hann upp skilti, sem á var
letrað:
„Attention Camp de Nudistes”,
sem útleggst: „Veitið athygli, nekt
arnýlenda”.
Síðan hefur þessi bóndi ekki
misst eina einustu hænu undir
bíl.
Mörgu er safnað. Þessi náungi safnar reykjarpípum og hef-
ur orðið vel ágengt, eins og sjá má. Hann rannsakar safngripi
sína af mikilli gaumgæfni og notar við það úrsmíðagler. Á
höfðinu hefur safnarinn, sem heitir Antony Irving, reykinga-
húfu, eins og notaðar voru fyrir 100 árum síðan af reykinga-
mönnum til þess að fyrirbyggja að eimurinn færi í hár þeirra.
Pípan, sem stendur til hægri á borðinu, er sennilega upp
fundin handa hinum vinsælu „heyrðu, áttu í pípu handa mér“-
mönnum.
g Marlene Dietrich tók fyrir
jj nokkru að skemmta í Tívolí í
B Kaupmannahöfn. Einn áhorf-
p andi að frumsýningunni kvaðst
Jj hafa séð eitt einasta „súrt”
g andlit. í öllum hinum tendraði
H Marlene glampandi ljós með
H list sinni. Það hefur verið lít-
S ils háttar deiluefni hvort hún
H sé enn jafn fögur sem fyrr, en
enginn ágreiningur er um, að
p hæfileikar hennar eru enn ó-
B viðjafnanlegir. Sumir segja, að
H ekki sé um neitt að ræða í
jj þessu efni, hún sé fegurri, en
1 þegar hún söng í fyrsta sinn á
jj sviði og list hennar hefur náð
1 þroska, sem hún hafði ekki þá.
m Útlit hennar? Við getum
B kallað það óhagganlegt. Hrein-
| ir, dálítið harðir andliisdrættir
1 hennar, sem ljóst, liðað hárið
m bylgjast umhverfis, er í fá-
M gætu samræmi við háan, grann
p an og unglegan líkama hennar.
m ■E'11 Þetta er aðeins önnur
1 hlið málsins. Við getum ekki
p aðskilið þenan ytri svip frá
if list hennar. Þeir, sem tala um
p andlitslyftingu, brjóstahaldara
1 og mjaðmalyftingu, hafa vissu-
m lgea rétt fyrir sér, en því verð-
i ur að bæta við, að konur um
jj allan heim neyta sömu bragða,
■ en árangur þeirra er aðeins
■ örot af árangri hennar. Þær
: verða ekki sakaðar um það.
jj Það er ekki til nema ein Mar-
g lene.
g Það er ekki auðvelt að gefa
jj réttmæta lýsingu á Marlene,
p Aðdráttarafl hennar er óum-
U deilanlegt, en illskilgreinan-
p legt. Yngri vísnasöngvarar
B beita ahnarri sviðstækni en
g hún, en þeir ná naumast meiri
jj árangri. Með þeim ráðum, sem
jj henni eru tiltæk,- nær hún áhrif
1 um, sem ekki eiga sinn líka á
j§ því sviði. Blær hinnar hásu
jj raddar Bennar getur skyndilega
breytzt úr óendanlegri mýkt í
málmkenda hörku. Sama er að
segja um augnaráðið. En þetta
gerist aðeins að vilja hennar
sjálfrar. Hún gerir þetta vita-
skuld allt sjálfrátt. Annars
væri hún ekki sú, sem hún er.
Hvað söng Marlene svo í Ti-
volí? Allt, sem unnt var að
óska sér. Til dæmis lög úr
„Bláa englinum” og „Sag mir
wo die Blummen sind“. Einnig
nýrri lög. Bæði þekkt og ó-
þekkt. Hún söng átakanleg lög
og gamanvísur, allt með hár-
fínni tilfíningu.
Sama kvöldið komu fram í
Tívolí alls konar líkamslista-
menn og töframenn, en hrifn-
ingin, sem. Marlene Dietrich
vakti, verður ekki borin saman
við viðtökur neins annars
þetta kvöld.
%
Marlene fær 10.000 danskar krónur fyrir kvöldið. Ilún liefur
sýnt og sannað, ekki er eftirsjá í þeim.
BRÚÐKAU PSFIM M KALL
Helmingurinn af hagnaðinum af
sölu peningsins fer til aðstoðar við
öryrkja, hinn helmingurinn renn-
iu- til konungsfjölskyldunnar, sení
í KONUNGLEGU myntsláttunni ^ kaupið fram. Söluverðið verður
í Danmörku hefur verið sleginn | 10 krónur.
sérstakur fimmkrónupeningur |
úr silfri í tilefni af:
I
brúðkaupi Onnu Maríu kóngs-
dóttur. Á annarri hlið peningsins
er mynd Friðriks konungs, en á
hinni mynd Önnu Maríu dóttur
hans. Upphaflega var ætlunin, að
mannsefni Önnu Maríu, Konstan-
tín, yrði myndaður á móti henni,
en af því gat ekki orðið eftir að
hann tók við ríki að föður sínum
látnum. Samkvæmt regluniun er
óleyfilegt að hafa mynd erlends
| konungs á dönskum peningi. Pen-
ingurinn verður seldur frá bönk-
um og sparisjóðum frá 8. septem-
ber, en í þeim mánuði fer brúð-
aftur gefur helminginn af þeim
hluta til Rauða krossins. Hinn
helmingurinn rennur væntanlega
til sjóðs, sem Anna María hefur
stofnað til hjálpar við illa stadda
Grikki.
60 jbúsund krónur
á einu kvöldi
$ 11. ágúst 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ