Alþýðublaðið - 13.09.1964, Blaðsíða 1
44. árg. — Sunnudagur 13. september 1964 — 208. tbl.
Svanur
sökk í róðri
Neskaupstað, 12. sept.
GÁ - GO
VÉLBÁTURINN Svanur frá Nes-
kaupstað sökk í róöri i gær,
skammt undan Gerpi. Áhöfnin - i
tveir menn, komust í gúmbát og
björguðust klukkan að ganga 3 L
nótt.
Báturinn fór í róðurinn í fyrri-
nótt og í gærmorgun, þegar þeir
voru búnir að leggja línuna köll-
uðu þeir Norðfjarðarradíó og báðu
um að einhver bátur kæmi við hjá
þeim og gæfi þeim olíu. Náttfari
frá Húsavík varð við þessari
beiðni. Klukkan 9 í gærmorgun
kölluðu þeir aftur og var þá allt f
lagi um borð, nema lítið rafmagn
var á talstöðvargeyminum. Síðan
heyrðist ekkert til þeirra félaga.
í nótt var svo farið að óttast um
bátinn og fór vélbáturinn Dröfn út
til leitar. Hún lagði af stað um
klukkan 1 og fann mennina suður
undir Seley á þriðja tímanum.
Báturinn sökk með þeim hætti,
að um 5 leytið i gærdag, þegar
þeir voru að draga línuna, kom
skyndilega mjög mikill leki að
bátnum. Þeir sáu sitt óvænna.og
skáru á linuna og settu á fulla
ferð til lands. Þeir höfðu ekki und-
an lekanum og klukkan 5.30 yfir-
gáfu þeir bátinn, sem sökk
skömmu siðar. Þeir voru með 3ja
manna gúmbát um borð.
Svanur var 8 tonna frambyggð-
ur bátur, smiðaður í fyrra. Eigandi
og skipstjóri var Herbert Benja-
mínsson, maður um þrítugt, en
með honum var Ágúst Reynir
Ragnarsson, 17 ára unglingur. —
Mönnum varð ekki meint af volk-
inu, enda sæmllegt veður.
JÓN HELGASON
DÆMIRÍ SJÖN-
VARPSÞÆTTI
- Stokkhólmi, 12. sept.
(NTB - TT)
NÝR norrænn spurningaþátt
ur hefur göngu sína í sænska
sjónvarpinu laugardaginn 17.
október. Dómari verður ís-
lendingurinn Jón Hclgason,
prófessor í íslenzkri tungu
og bókmenntum vlð Kaup-
mannahafnarskóla. Þátturinn
verður átta laugardaga i röö.
„SNJÓMAÐUR" SAGÐUR
FUNDINN í KÁKASUS
Moskvu, 12. september
SOVÉZKIR vísindamenn, sem
leita að „snjómanninum” svo-
kallaða í Itákasus, hafa fundið
vel varðveitta beinagrind, sem
samrýmist lýsingum sjónarvotta
á snjómanninum, að því er
sovézka fréttastofan Tass
liermdi í dag. Leifar þaer, sem
fundizt hafa, eru af dýri, sem
líkist manni ög er ekki ósvipað
fólki, sem oft má sjá í dölum
Kákasus nú á dögum, segir
Tass.
Bráðabirgðarannsókn á beina
grindinni sýnir, að hún er ólík
beinagrind nútímamanns í
nokkrum atriðum.
Beinagrindin, sem fannst í
gröf í þorpinu Thina í Abk-
haz-héraði, er af veru, sem
kölluð var Zana. Bændur hand
sömuðu þessa veru í skógi fyr-
ir um það bll elnni öld og hún
bjó í þorpinu um árabil, segir
Tass.
Sovézka vikublaðið „Nedel-
ja” sagði fyrir í vikunni, að
leiðangur undir forystu frönsku
konunnar Jeanne Marie The-
rese Kofman væri farinn til
Kákasus að leita veru, sem
sögð væri líkjast „snjómann-
inum”. Blaðlð sagði, að hundr-
uð manna - allt frá geitahirð-
um til starfsmanna kommún-
istaflokksins — hefðu séð und-
arlegt villidýr, um sjö feta hátt
og þakið svörtu, þykku hári,
víðs vegar í Kákasus.
MWMWW4»»MW»W»MMW
ELDSVODIA SAUÐAKRÓKI
7 BÍLAR SKEMMDUST
OG EINN EYÐILAGÐIST
Sauðárkróki, 12. sept.
AM — ÁG.
BÍLAVERKSTÆÐIÐ ÁKI brann
hér í gær og skemmdust 7 bílar en
einn eyðilagðist alveg. Eldsins varð
vart um klukkan hálf eitt, og tók
Bíl hvofldi á
Hringbrautinni
Reykjavík, 12. sept. - KG
Skömmu eftir hádegi í dag hvolfdi
bifreið á mótum Miklubrautar og
Sóleyjargötu. Ökuma<fnrinn var
einn í bflnum og var Imnn fluttur
á slysavarðstofuna. -1 [ •
slökkvistarfið rúman klukkutíma.
Auk bflanna eyðilagðist þarna tölu
vert magn af varahlutum.
Ekki er kunnugt um eldsupp-
tökrn, en talið líklegt að eldurinn
hafi kviknað i bíl þeim, sem eyði
lagðist. Fyrr um kvöldtð hafði ver
ið unnið í honum, og þá m.a. með
logsuðutækjum. Leikur grunur á
að glóð hafi leynst í bílnum og síð
an komist í eldfimt efni,
Það var lítill drengur, sem fyrst
ur varð eldsins var. Býr hann f
næsta húsi við verkstæðið. Vaknaði
hann um klukkan hálf eitt og fann
þá reykjarlykt, og mun síðan háfa
orðið var við eldinn. Þess má geta,
að þetta er 1 annað skipti, sem
kviknar í þessu verkstæði.
ÞESSI fallega mynd er frá
Siglufirði af Siglufjaröar-
kirkju. Ljósmyndari blaðs-
ins á Siglufirði, Ólafur Ragn
arsson tók myndina í tilefni
kirkjudags Siglufjarðar-
kirkju, sem var fyrr í þess-
um mánuði og nánar segir
frá á 13. siðu í dag.
[ HmtVVtMmMmUtWHMWM
NÝR VEGAR
KAFLIÍ
HVALFIRÐI
Reykjavík, 12. sept ÞB.
Á hádegi í gær var tekinn f
notkun nýr vegarspotti undir
Þyrli í Hvalfirði. Þessi spotti hem
ur í stað gamla vegarins á sama.
stað, sem liggur í stöðugum hlyhk-
jum, bröttum brekkum og yfir
blindhæðir.
Nýi vegurinn er 9 metra breiður
og er mikill öryggisauki að honum
á þessum fjölförnu slóðum. Vegar
gerðin var nokkuð kostnaðarsöm
vegna talsverðra sprenginga, sem
gera varð í vegarstæðinu. Á einum
stað var sprengt niður um 8 metra
á öðrum varð alveg að sprengja
fulla vegarbreidd inn í klett. Þessi
nýi vegarspotti er 1,5 km á lengd
Miklar vegalagningar hafa verið f
Hvalfirði undanfarin ár og muu
ekki látið staðar numið nú.
London, 12. september
Forsætisráðherra Suður-Rhodes-
ín, Ian Smith, sagði í gærkvöldi,
að „hann teldi að hann mundi fall
ast á“ neikvæða niðurstöðu þjóðar
atkvæðagreiðslu um sjálfstæíi
landsins.
Smith sagði í sjónyarpsviðtali,
að einhliða sjálfstæðisyfiilýeing
væri ótímabær eins ög nu væri
ástatt og hann téldi, að ekki œtti
að hafa samráð við stjórnnaálar
flokkana um þjóðaratkvæði.
TVEIR TEKNIR FYRIR
ÁRÁS ÁUNGÁN MANN
Reykjavík, 12. sept . ÁG
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
fékk í gær til meðferðar kæru frá
22 ára gömlum manni, sem kvaðst
liafa orðið fyrir árás heima hjá sér
aðfaranótt sl. föstudags. Tveir
menn, sem voru viðriðnir mál
þetta, voru handteknir i morgun
og játaði annar á sig árásina.
Nánari málsatvik eru þessi: Á
fimmtudagskvöldið hafði sá sem
kærði, setið heima hjá sér yfir
glasi. Milli klukkan eitt og hálf
tvö um nóttina gekk hann niður í
Austurstræti þar sem hann hitti
tvo pilta. Við annan þeirra kann-
nðist hann. Bauð hann þeim heim
til sin, og var drykkjunni haldið
þar áfram.
Upp á vegg í herbergi mannsins
hékk riffill, sem gestirnir vildu fá
að skoða. Gestgjafinn bannaði
þeim að hreyfa vopnið, og mun
það hafa valdið einhverju orða-
skaki, sem endaði með því að ann-
ar gestanna barði gestgjafann nið-
ur. Hinn gestanna reyndi að
ganga á milli, og slapp þá gest-
gjafinn í burtu upp á næstu hæð
í húsinu.
Gestirnir hröðuðu sér nú í burtu,
og sá, sem barði, tók byssuna með
sér. Eins og fyrr segir, vox-u báðir
piltarnir teknir í morgun, en þeir
eru innan við tvítugt og bardaga-
maðurinn áður kunnur lögregl-
unni. Sá, sem fyrir árásinni varð,
hlaut nokkra áverka á andlit,
glóðarauga og sprungnar varir.