Alþýðublaðið - 13.09.1964, Side 11
ÍSLENZK ÍÞRÓTTAFÉLÖG IV.:
Félagsheimili og íþróttahús Vals,
KARFA 1
/ KR
FYRIRHUGAB er að byrja
aftur á kvennatímum í JI
Körfuknattleiksdeild KR o£
ve'rður þá byrjað með stuttu
námskeiði ef nægileg þátt-
taka fæst.
Stúlkur, sem áhuga hafa
á að æfa körfuknattleik með
KR ættu að mæta á fundinn
sem haldinn verður á mánu
dag kl. 7.00 í Félagsheimiíi
KR.
KR-ingar hafa æft í karla- j
flokkum í sumar undir J!
stjórn tveggja bandarískra ‘;
þjálfara, þeirra Serg. Robin- J J
son og Serg. Broussard. ! :
!;
Verið er að undirbúa J >
? vetrarstarfið og verða vetr !
S artímar auglýstir bráðlega. J
$
HWMMWtWMWWWWIMM
Knattspyrnufél. VALUR
SKÖMMU eftir síðustu aldamót
tók knattspyrnuíþróttin að nema
land hér í höfuðstaðnum. Fóru
menn þá að mynda með sér félög,
sem höfðu iðkun knattspyrnunnar
að megin stefnumiði. Þessi knatt-
spyrnualda, sem flæddi yfir bæ-
inn hreif líka með sér unga menn
innan KFUM. Og 11. maí 1911 var
fooðað til fundar í lestrarstofunni
í KFUM-húsinu til að ræða um
það, hvort ekki væri hægt að
stofna knattspyrnufélag innan
KFUM. Það varð ofaná að stofna
félagið og voru stofnendur 14. Fé-
laginu var gefið nafnið VALUR.
ife_..____________________________
Það mun hafa verið ætlunin í upp
hafi að félagsstofnun þessi yrði
vísir að óháðri íþróttastarfsemi
innan vébanda KFUM. Þetta fór þó
nokkuð á annan veg, því fljótlega
tóku. Valsmenn að reyna sig við
önnur félög bæjarins og fyrsta
leikinn heyja þeir 19 14 við Fram.
Keppa þeir síðan sem gestir í ís-
landsmótinu 1915 og ganga í ÍSÍ
og íþróttasamband Reykjavíkur á
næsta ári. Sama ár, þ. e. 1916 taka
Valsmenn þátt í íslandsmóti í
fyrsta sinn.
Valsmenn hafa löngum staðið í
miklum framkvæmdum, Fyrsta
verkefni félagsins á því sviði var
að ryðja völl til æfinga vestur á
Melum, þar sem var loftskeyta-
stöðin, og var sá völlur vígður 6.
ágúst 1911. Skömmu fyrir 1940
keypti félagið jörðina Hlíðarenda
og hafa síðan verið umfangsmikl-
ar framkvæmdir á þeim stað. Þar
eru nú félagsheimili, malarvöllur
og grasvöllur fyrir knattspyrnu og
íþróttahús.
Svo sem áður segir hóf Valur
keppnisþátttöku 1916, en það var
vart fyrr en undir 1930, að félag-
inu er vaxinn svo fiskur um hrygg,
að það getur blandað sér svo
nokkru nemur í keppnina um titl-
ana og fyrsta íslandsmeistaratitil
sinn hlaut félagið árið 1930.
Knattspyrnan var lengi vel eina
íþróttin, sem Valur hafði á stefnu-
Framhald á síðu 13.
tWWWWWIWWWWWWWWWM
Í.B.A. -
Fram - b
i dag kl. 4
í DAG kl. 4 fer fram leikur
á Akureyrarvelli í bikar-
keppni KSÍ. Eigast þar við
Akureyringar og Fram-b.
Það iið, sem sigrar, kenist í
8 liða úrslit ásamt 1. deildar-
liðunum 6 ög KR-b.
KR-LIVERPOOL
Á MORGUN
Á MORGUN kl. 6 e. h. leika KR-
jngar seinni leik sinn í Evrópu-
foikarkeppni meistaraliða gegn
ensku meisturunum frá bítlaborg-
inni Liverpool. KR-ingar héldu af
Stað til þess leiks í gærmorgun
jneð flugvél Flugfélags íslands hf.
Lið KR verður þannig skipað
Heimir Guðjónsson, markv.
Bjarni Felixson v. bakv.
Hreiðar Ársælsson h. bakv.
Þórður Jónsson h. framv.
Hörður Felixson, miðframv.
Ársæll Kjartansson, v. framv.
Gunnar Guðmundsson h. úth.
Sveinn Jónsson, h. innh.
Gunnar Felixson, miðframh.
Ellert Schram v. innh.
ÍR - Innanfélagsmót.
Keppt í hástökki og kastgreinum
á Melavelli á mánudag ki. 5. - Stj.
Theódór Guðmundsson, v. úth.
Liðið er lítið breytt frá því sem
var í leiknum við Liverpool hér
heima. Heimir kemur j markið í
: stað Gísla. Heimir átti að vera
1 með í fyrri leiknum, en var þá
meiddur. Ársæll Kjartansson kem-
ur inn í stað Þorgeirs í stöðu
vinstri framvarðar og Theódór Guð
mundsson í stöðu v. útherja í stað
Sigurþórs, sem mun vera frá
vegna veikinda.
Þeir sem sáu fyrri leik þessara
aðila, eru ekki í neinum vafa um
úrslitin, enda vart við því að bú-
ast, að áhugamenn okkar hafi í
fullu tré við þaulæi’ða atvlnnu-
menn og má raunar segja, að eng-
inn getur með nokkurri sannglrni
ætlazt til slíks. Allt um það munu
KR-ingar leggja sig alla fram, þótt
við ofurefli sé að etja og ekki
leggja árar í bát, þótt markamun-
ur verði töluverður.
Þetta eru andstæðingar KR á morgun Liverpool F. C. Englandsmeistarar 1964.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. sept. 1964 II