Alþýðublaðið - 13.09.1964, Side 13
VÉLAR TIL SÖLU
Tilboð óskast í nokkrar dísel- og- benzínrafstöðvar, 2
háþrýstiioftkúta og uokkra rið'straums- og jafnstrauins-
rafala af ýmsum stærðum.
Vélar og rafalar eru. í misjöfnu ástandi. Vélarnar verða
til sýnis og sölu í birgðageymslu Rafmangsveitna ríkis-
ins, Elliðavogi 113, frá kl. 14—19 dagana 14.—15. og
16. september.
Rafmagnsveitur ríkisins
JÓNAS JAKOBS-
SON SÝNIR í
BOGASALNUM
Reykjavík, 12. sept. - ÞB
JÓNAS Jakobsson, mynd-
höggvari og listmólari, opn-
aði I dag sýningu á verkum
sínum í Bogasal Þjóðminja-
safnsins. Hann sýnir þar
milli tuttugu og þrjátíu
myndir, flest vatnslitamynd-
ir og teikningar, 2 olíumynd
ir og fáeinar höggmyndir.
Jónas Jakobsson er lærður
myndhöggvari frá Ríkharði
og háskólanum í Osló, Hann
segir þó, að málaralistin hafi
verið sér engu síður hug-
stæð. Flest málverkin eru
landslagsmyndir (fantasíur).
Jónas er 54 ára að aldri og
þetta er fyrsta sýningin, sem ! >
hann heldur. Allmörg verk j;
eru til eftir hann á Akureyri J!
þar sem hann dvaldist um ! j
10 ára skeið. Hér í Reykjavík J1
er höggmyndin Sjómaðurinn, !!
sem stcndur hjá frystihúsi j J
Júpíters og Marz, eftir liann. J!
'Myndirnar á sýningunni í j j
Bogasalmun eru flestar til J!
sölu.
Sýningin stendur í tíu jj
daga og er opin frá kl. 2 10. !!
(Myud: JV). !;
tttMMMtMMMttMMMMttMMtMMMMMtMM
FLUGFERÐIR
Flugfélag íslands h.f.
Millilandaflugvélin Sólfaxi fer til
til Glasgow og Kaupmannahafnar
kl. 08.00 í dag. Vélin er væntan-
leg aftur til Reykjavíkur kl. 23.00
í kvöld.
Innanlandsflug: í dag, er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Egilsstaða, Vestmannaeyja og ísa*
fjarðar
Á morgun, er áætlað að fljúga
til Akureyrar (3 ferðtr), Vest-
mannaeyja (2 ferðir), ísafjarðar,
Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar,
Kópaskers, Þórshafnar og Egils-
staða.
SKIPAFRÉTTIR
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.
M.S. Katla hefur væntanlega
farið í gærkvöldi frá Dalhousie
í Kanada áleiðis til Piraeus. M.S.
Askja er á leið til Reykjavíkur
frá Stettin.
Hafskip h.f. Laxá kemur til
Rotterdam í dag. Rangá ei- vænt-
anleg til Reykjavíkur í nótt. Selá
er í Reykjavík.
/>■
Skipadeild . S.Í.S.: Ms. Arnarfell
fór í gær frá Seyðisfirði til Hels-
ingfors, Hangö og Aabo. Ms. Jök-
ultell lestar á Norðuriandshöfnum.
Ms. Dísarfell fer væntanlega 14.
í>.m. frá Norðfirði til Liverpool,
Avenmouth, Aarhus, Kaupmanna-
hafnar, Gdynia og Riga. Ms. Litla-
fell er á Hjalteyri. Ms. Helgafell
fór 9. þ.m. frá Sauðárkróki til
Gloucester. Ms. Hamrafell er vænt
anlegt til Reykjavíkur 18 þ.m. frá
Batumi. Ms. Stapafell er væntan-
legt til Reykjavíkur á morgun.
Ms. Mælifell er á Hvammstanga,
fer þaðn til Sauðárkróks.
Jöklar h.f. Ms. Drangajökull
lestar á Vestfjarðahöfnum. Ms.
Hofsjökull kemur væntanlega til
Norrköping í kvöld og fer þaðan
til Leningrad, Helsingfors og Vent-
spils. Ms. Langjökull er í Aarhus.
Ný gagnrýni
á Kínveria
Moskvu, 12. september
(NTB - Reuter)
SOVÉZKI kommúnistaflokkurinn
hefur lýst því yfir í nýrri árás á
kínverska flokkinu, að kommún-
istahreyfingin hafi ekki lengur
eina heimsmiðstöð. Hins vegar
var því bætt við, að Kommúnista-
hreyfingin gæti ekki lifað án
vissra sameiginlegra meginreglna.
Lögð er áherzla á nauðsyn sam-
eiginlegra funda kommúnista,
eins og heimsþing það, sem Rússar
leggja til að haidið verði um deilu
Rússa og Klnverja á miðju næsta
ári.
Marxisma-Leninismá-stofnun
sovézka kommúnistaflokksins not-
aði væntanlegt 100 ára afmæli
stofnunar fyrsta alþjóðasambands
sósíalista, sem Karl' Marx átti for-
göngu að, til þess að beina þess-
ari gagnrýni gegn Kínverjum.
Stofnunin sakaðí Kínverja um að
beita sömu aðferðum, sem leiddu
til upplausnar fyrsta alþjóðasam-
bandsins. Kínverskir leiðtogar
fari að dæmi allra fjandmanna
verkalýðsins.
Lassalle
(Framhald af 3. síSu.
sorglega en rómantíska dauðdaga
varð Lassalle að hetju í augum
þýzkrar alþýðu. Var hans lengi
minnzt á hverju ári 31. ágúst.
Hundrað ár eru liðin frá dauða
hans, en enn hljóma þróttmikil
orð hans til verkalýðsins: „Þið er-
uð það bjarg, sem kirkja framtíð-
arinnar verður reist á”.
Thyge Dolva.
Lesiö AlþýSublaðið
ÁskriftasímÍM er 14900
VALUR
Framh. af bls. 11.
skrá sinni, en upp úr 1930 fer
handknattleikurinn að nema land
í félaginu og um 1940 er hann tek-
inn á stefnuskrá félagsins. Þá hafa
félagsmenn iðkað skíðaíþróttina
töluvert og á félagið ágætan skiða-
skóla í Sleggjubeinsdal við Kol-
viðarhól.
í dag ctarfar Valur í 3 deildum
knattspymudeild, handknattleiks-
deild og skíðadeild. Yfir þessu er
svo aðalstjórn, sem er æðsta vald
í málefnum félagsins milli aðal-
funda. Formaður aðalstjórnar er
Páll Guðnason.
FRÁ KIRKJUDEGI
SIGLUFJARÐARKIRKJU
Siglufirði 8. sept. — ÓR. messa í kirkjunni, og hófst ist Kirkjukór Siglufjarðar-
SÍÐASTLIÐINN sunnudag,
þann 6. september, var Kirkju
dagur Siglufjarðarkirkju.
Þann dag fór fram hátíða
hún kl. 14. Sóknarpresturinn
sr. Ragnar Fjalar Lárusson
messaði, orgelleikari var Páli
Erlendsson og sönginn annað
I kór Siglufjarðarkirkju. Sóknarpresturinn séra Ragnar
Fjalar Lárusson fyrir altari, skrýddur hinmn nýja hökli, sem
vígður var í messunni. Á altarinu sjást hin nýju altarisklæði.
Mynd: Ólafur Ragnarsson.
kirkju.
Undanfarið hafa farið fram
endurbætur og viðgerðir á
kirkjunni og hefur hún m.a.
verið hijóðeinangruð, og hefur
hljómburður kirkjunncr batn-
að mikið við það.
Það, sem aðallega setti svip
sinn á liátíðamessuna sl. sunnu
dag, var vígsla ýmissa kirkju-
muna, sem kirkjunefnd Sigiu-
fjarðarkirkju hafði gefið, og
Sigrún Jónsdóttir listakona í
Reykjavík hafði gert. Aliir
þessir munir eru handunnir og
að mcstu leyti úr íslenzku efni,
og hafa það aliir sameiginlegt,
að vera' hin ágætustu iista-
verk.
Mestur þessara muna er fag
urlega gerður hökull, sem sókn
arpresturinn bar nú í fyrsta
sinn, en hinir kirkjumunirnir
eru hvítur altarisdúkur, altaris
klæði, altarisbrún, klæði á
prédikunarstól og gólfteppi í
kór kirkjunnar. Litir og gerð
allra munanna eru i fyllsta
samræmi við aðra hluti í kórn
um og myndar þetta allt mjög
fagra heild.
Frú Sigrún Jónsdóttiy var
viðstödd hátíðaguðsþjónustuna
og í ’lok • Hennar flutti hún á-
varp, skýrði lielgitákn mun-
anna og hvað fyrir sér hefði
vakað við gerð þeirra. Voru
henni þökkuð vel unnin störf
og þakkaði hún traust það og
vinsemd, sem forráðamenn
kirkjunnar höfðu sýnt lienni.
HttttMMtMttttttMttttMMttMttttttttttMMMMMMtMMttttttttMtMMtMMttMMMMtMtttM
ttfeÍÍL
ALÞÝÐUBLAÐI0 - 13. sept. 1964 13