Alþýðublaðið - 06.10.1964, Qupperneq 7
ÚTGEFANDI:
SAMBAND
UNGRA
JAFNAÐARMANNA
ALÞÝÐUBLAÐiÐ — 6. október 1964
GOÐIR FELAGAR
MÉR hefur verið falið að flytja
þinginu kveð.iur og árnaðaróskir
frá Alþýðuflokknum og miðstjórn
hans.
Um þessar mundir er Samband
ungra jafnaðarmanna 35 ára að
aldri. Þetta er ekki hár aldur og
35 ára tími í stjórnmálasögu er
ekki langur tími. Engu að síður
hefur átt sér stað svo stórfelld
þróun í sögu og lífi þjóðarinnar
á þessum 35 árum, að jafna má til
byltingar.
Samband ungra jafnaðarmanna
var stofnað um þær mundir, sem
mikil kreppa í atvinnu- og fjár-
málum skall yfir heiminn. Al-
þýðuflokkurinn hafði þá náð að
festa rætur í íslenzku þjóðlífi og
umbótabarátta hans var hafin. —
Nokkur viðurkenning hafði þá
þegar fengizt fyrir ýmsum bar-
áttumálum flokksins, öll áttu þau
þó harðri andstöðu að mæta og
mörg þeirra fengu um þessar
mundir lítinn eða engan iiljóm-
grunn.
Heimskreppan hafði á áninum
um og eftir 1929 mikil áhrif á líf
þjóðarinnar og stjórnmálabaráttu.
Atvinnuleysi var hér landlægt og
launakjör almennings langt fyrir
neðan það, sem við í dag nefnum
þurftarlaun. Þetta ástand kallaði
á aukin afskipti ríkisvaldsins af
atvinnuháttum þjóðarinnar og
krafðist meiri félagsmálaaðgerða
af hálfu hins opinbera. En, um
þessar mundir, voru afturhalds
öflin mjög sterk í íslenzku þjóð-
lífi og f járskortur einstaklinga og
hins opinbera gerði þau ennþá að-
gangsharðari. Alþýðuflokkurinn
þurfti því að heyja harða og erf-
iða baráttu fyrir auknum afskipt-
um og aðstoð hins opinbera við
atvinnumál þjóðarinnar og fyrir
auknum aðgerðum í félagsmál-
um. Það var til að leggja þessari
baráttu lið, sem Samband ungra
jafnaðarmanna var stofnað fyrir
35 árum.
Við, sem eldri erum og þátt
tókum í stofnun félaga ungra jafn
aðarmanna, og höfum fylgst með
baráttunni frá upphafi, munum
vel yfirlýsingar afturhaldsins frá
þessum árum, þegar stöðugt kvað
við, að ástandið myndi lagast af
sjálfu sér og mesta hættan væri
sú, að ríkisvaldið færi að blanda
sér í málin. Ég ætla mér ekki að
telja hér nein einstök mál, eii öll
þekkjum við andstöðuna gegn al-
mannatryggingalögunum frá þess-
um árum, yfirlýsingarnar um að
mesta hættan í húsnæðismálum al-
þýðunnar væri sú, að .ríkisvaldið i
færi að blanda sér í þau með
byggingu verkamannabústaða cða
öðru slíku, bygging síldarverk-
smiðja á vegum ríkisins væri þjóð
arvoði og annað slíkt.
Alþýðuflokkurinn hefur jafnan
verið fámennur á Alþingi og aldr-
ei haft holmagn til þess að koma
einn fram áhugamálum sinum.
Við höfum verið fátækir af fjár-
munum, andstæðingar okkar fjár-
sterkir og rekstur flokka og blaða
á íslandi krefst mikils fjármagns.
Hvað eftir annað hefur röðum okk
ar verið sundrað með undirróðurs-
starfi kommúnista til óbætanlegs
tjóns fyrir íslenzka alþýðu. Rang-
lát kjördæmaskipan hefur löngum
svift Alþýðuflokkinn þeim styrk-
leika á Alþingi, sem kjörfylgi
hans veitti honum rétt til. Allt
þetta og ótalmargt fleira hefur
lamað flokk okkar og dregið úr
eðlilegum vexti hans.
En þó að við höfum jafnan vcr-
ið fáliðaðir á Alþingi, þá hefur
barátta og málflutningur flokks
okkar borið mikinn og góðan ávöxt
í íslenzku þjóðlífi. Andstæðirigar
okkar hafa stig af stigi látið und-
an, þegar þeir hafa séð að mál-
flutningur okkar átti hljómgrunn
með þjóðinni og andstaða var þeim
hættuleg og líkleg til fylgistaps.
Áhrif Alþýðuflokksins hafa þann-
ig verið og eru enn í dag miklu
rrieiri og ríkari með þjóðinni en
þingmannatalan e'in gefur til
kynna. Nú vilja aðrir flokkar
eigna sér ýms af baráttumálum
okkar, sem þeir stóðu áður harð-
ast gegn. Allir vilja nú Lilju kveð-
ið hafa.
í starfi Alþýðuflokksins og
stjórnmálabaráttu hefur unga
fólkið og samtök þess haft mjög
þýðingarmiklu hlutverki að gegna.
Svo þýðingarmiklu, að ég myndi
vilja segja, að starf unga fólksins
hafi á ýmsan hátt haft. afgerandi
þýðingu fyrir flokkinn.
í mínum augum er meginverk-
efni og tilgangur samtaka unga
fólksins í Alþýðuflokknum þre-
faldur.
í fyrsta lagi er það verkefni ykk
ar að ala upp og þjálfa unga
flokksmenn í þeim tilgangi að
taka síðar við ábýrgðinni á rekstri
flokksins, stjórn hans, vexti og
viðgangi. Framtíð flokksins veltur
á því, að við eigum ætíð til yngra
fólk til að fylla í skörðin, þegar
hinir eldri víkja.
1 öðru lagi er þaff verkefni ykk-
ar, að vera vökumenn flokksins,
taka upp og bera fram ný baráttu-
mál í samræmi við kröfu timans
og breyttar aðstæður. Æskan á að
hafa opin augun fyrir nýmælum
og endurbótum og hún á að vera
óhikandi í að bera hugsjónir sínar
fram og berjast fyrir þeim.
í þriðja lagi eigið þið að vera
baráttulið flokksins í hinu dag-
lega starfi og í kosningaátökum.
Öll eru þessi þrjú verkefni þýð-
ingarmikil og ekkert þeirra má
vanrækja. Á fyrstu árum SUJ
Guffmundur í Guffmundsson
var mikið þrek og þróttur i sam-
tökunum. Unga fólkið sást þá víða
í fremstu víglínu. Hinir miklu sigr
ar, sem flokkurinn vann á fyrstu
árum SUJ eru án efa að ekki svo
J litlu leyti að þakka unga fólkinu
og samtökum þess. Forustumenn
Alþýðuflokksins í dag hafa flestir
fengið uppeldi sitt innan SUJ og
þar voru þeir fyrst kvaddir til
starfa. Og þannig á það að vera.
SUJ á að vekja áhuga unga fólks-
ins, laða það að flokknum og fá
því verkefni. Úr þess röðum á
flokkurinn að endurnýja sig og
vaxa.
Fyrir þcssu þingi ykkar liggja
mörg vandasöm og merk mál. Ég
ætla ekki að ræða þau hér, það er
ekki mitt verk. Þó get ég ekki lát-
ið hjá líða að vekja athygli á einu
máli.
Um áratugi hefur vaxandi verð-
bólga og ofþensla í fjármála- og
itvinnulífi þjóðarinnar verið eitt
íöfuðverkefni allra ríkisstjórna.
Þetta verkefni er vissulega
i^andamál enn í dag og verður án
3fa enn um skeið. Við stöndum þó
mdspænis öðru vandamáli, sem
idð ekki megum gleyma, vegna
látlausrar glímu við efnahagsmál-
in í lieild. Tíma- og staðbundið
atvinnuleysi segir nú til sín víða
um land. Fólk hefur neyðzt til að
yfirgefa blómlega átthaga sína og
flytja í önnur héruð vegna at-
virinuskorts heima fyrir. Þetta er
hættuleg og alvarleg þróun. Al-
þýðuflokkurinn væri hvorki sögu
sinni né stefnu trúr, ef hann léti
þetta mál ekki til sín taka. Frá
fyrstu tíð hefur baráttan gegn at-
vinnuleysi og fyrir atvinnuöryggi
verið uppistaðan í starfi og stefnu
flokks okkar. Þessvegna er það
nú skylda okkar að vinna af ein-
beitni og festu aó því að koma í
veg fyrir hið tímabundna atvinnu-
leysi í ýmsum byggðum landsins
og skapa þar atvinnuöryggi. Þetta
verður því aðeins gert, að atvinnu
tæki og traustur atvinnurekstur
verði staðsettur þar á landsbyggð-
inni, sem hans er þörf og skilyrði
eru fyrir hendi.
Ég heiti á ykkur, ungu flokks-
menn, látið þetta mál ekki fram
hjá ykkur fara, ræðið það, berið
fram ykkar hugmyndir og leggið
því lið. Við ekkert málefni heíur
Alþýðuflokkurinn slíkar skyldur
sem stöðuga atvinnu og öryggi í
atvinnumálum.
Um leið og Alþýðuflokkurinn
sendir ykkur kveðjur sínar og árn-
aðaróskir. Þakkar hann ykkur
starf ykkar á Iiðnum tímum :cg
hvetur ykkur til starfs og dáða-i
Við þökkum ykkur þann áhuga
og það starf, sem þið hafið lagt
fram á liðnum tímum. Það heíur
verið flokknum mikil stoð á ótal
sviðum. Starf unga fólksins er
vissulega þýðingarmikið í sam-
bandi við allar kosningai’, en ég
hika ekki við að segja, að það er
enn þýðingarmeira í hinu daglega
starfi flokksins og við móíun
stefnu hans og starfsaðferða.
Við hvetjum ykkur til áfram-
haldandi starfs fyrir flokkinn á
komandi tímum. Þótt margt hafi
áunnizt er ótalmargt enn óleyst
og nýir timar kalla á ný verkefni
og nýjar úrlausnir.
Okkur öllum til mikillar ánægjti
hefur mikill kraftur og fjör færzt
í starfsemi SUJ og félaganna inn-
an þesg á síðari árum. Fríður hcp-
ur ungmenna hefur bætzt í raCir
okkar og áhuginn og starfsgleðin
hefur aukizt. Þetta er gleðilegur
vaxtarbroddur, sem sýnir okkur,
að flokkurinn getur horft vongóð-
ur til framtíðarinnar.
Það er von Alþýðuflokksins, að
þetta þing ykkar taki fyrir mörs
vandamál, þjóðmál og flokksmáí,
og að tillögur ykkar verði mótað-
ar af stórhug æskunnar og trú á
bjarta framtíð þjóðarinnar á grund
velli þeirrar hugarsjónar, sem v'ð
eigum sameiginlega og trúum . á
sem einu öruggu leiðina til yel-
ferðarríkis á Islandi.
Megi gæfa og gengi fylgja starfi
þingsins.
20. þing Sambands ungra jafnaðarmanna var haldið um
síðustu helgi, eins og kunnugt er af frétfum. IVIeáaí
gesta var utanríkisráðherra Guðmundur í. Guðmunds-
son, varaformaður Alþýðuflokksins, og fluttí hann viS.
ujpphaf þingsins ræðu þá, sem hér birtist.