Alþýðublaðið - 06.10.1964, Page 13
Dönsku kosnhgamar...
Framhald úr opnu.
um að því, að honum væri ætlað
embætti þjóðbankastjóra. Annar
ráðherra hverfur og af þingi,
Mikael Gam, fyrrverandi Græn-
landsmálaráðherra, en hann bauð
sig ekki fram i kjördæmi sínu
norður undir heimskauti. Tíðind-
um sætir, að Karl Skytte, fráfar-
andi landbúnaðarráðherra og leið
togi róttæka flokksins, féll í kjör-
dæmi sínu og verður að láta sér
nægja uppbótarsæti. Málsvari rót-
tæka flokksins á þingi, Helge Lar-
sen, missti uppbótarsæti sitt í
Mariboamti og féll þar með við
kosningarnar.
Nokkrir, sem konia.
Nýju þingmennirnir þykja ýms-
ir líklegir til stjórnmálafrægðar,
og skal hér lítillega sagt frá
nokkrum þeirra. Af jafnaðarmönn
um munu athyglisverðastir B.
Schmidt skjalavörður, sem verið
liefur um áraskeið formaður full-'
trúaráðs flokksins í Kaupmanna-
höfn og kosinn var í Suðurk-jör-
dæmi höfuðborgarinnar; séra Orla
Möller, er kjörinn vaé í Álaborg-
aramti: frú Camma Larsen Ledet,
sem vann tvísýnan sigur í Ribe-
amti, en hún er tengdadóttir bind-
indispostulans, mælskugarpsins og
ritsnillingsins Larsen Ledet, er
margir íslendingar kannast við, og
Grethe Hækkerup, sem kjörin var
í Mariboamti, en bóndi hennar er
Per Hækkerup utanríkisráðherra.
Eru þau einu hjónin, sem sæti eiga
á þingi Dana að þessu sinni. Fyrr
var getið færeyska jafnaðarmanns
ins P.. Mohr Dam, en hann er gam-
all heimamaður í Kristjánsborgar-
höll, þó að hann ætti ekki sæti á
þingi Dana síðasta kjörtímabil,
enda lögmaður Færeyja, þegar til
þoss var síðast kosið haustið 1960.
íhaldsmenn, sem bætast í hópinn,
eru til dæmis Stæhr Johansen,
borgarstjóri á Friðriksbergi," sem
áður hefur setið á þingi, en hvarf
þaðan til að einbeitá sér um sinn
að borgarstjóraembættinu; H. J.
Lembourn rithöfundur, sem stund-
um er kallaður „litli” Heming-
way af dönskum gagnrýnendum,
en hann lætur menningarmál
mjög til sín taka, og Knud Bro,
sem er hagfræðinemi og einn af
oddvitum ungra íhaldsmanna í
Danmörku. Stæhr Johansen er
kosinn f Suðurkjördæmi Kaup-
mannahafnar, en Frlðriksberg
framboðsstaður hans, Lembourn í
Presteyjaramti með Næstved sem
framboðsstað og Knud Bro í
Svendborgaramti. Nýliðar róttæka
flokksins eru Sv. Haugaard, kjör-
inn i Viborgaramti með Skivé að
framboðsbæ, en það ríki erfði
hann af Kjeld Philip, og K. Helveg
Petersen, fráfarandi kennslumála-
ráðherra, kosinn í Svendborgar-
amti. Fjórir nýir kappar skipa sér
í þingfylkingu vinstri flokksins,
en vafasamt mun, að þrír þeirra
séu leiðtoga hans, Erik Eriksen,
sérstakir aufúsugestir á það
mannamót, Jens P. Jensen ritstjóri
og Niels Westerby lögfræðingur
sern fyrr getur, svo og B. Did-
eriehsen menntaskólakennari,
er kjörinn var í Vesturkjör-
dæmi Kaupmannahafnar. Wester-
by og Diderichsen teljast ákveðn-
ir stuðningsmenn þeirrar stefnu,
sem kennd er við Thorkil Kristen-
sen, fyn-verandi fjármálaráðherra,
og*eiga þeir ríkan þátt í uppreisn-
arhreyfingu innan vinstri flokks-
ins, sem nefnist Liberal Debat og
lætur flokksforustuna óspart verða
sín vara. Thorkil Kristensen tók
sig út úr samfylkingu íhalds-
manna og vinstri flokksins á sín-
um tíma, taldi afstöðu ríkisstjórn-
arinnar rétta og nauðsynlega í
viðkvæmu deilumáli og greiddi úr-
ræði hennar atkvæði. Varð Erik
Eriksen þungorður og liarðhent-
ur af þessu tilefni, enda sagði
Thorkil Kristensen skilið við
dönsk stjórnmál og réðst í mikla
alþjóðlega virðingarstöðu suður í
París. Fylgismenn hans láta þó
engan veginn af óhlýðninni, en
hún felst einkum í gagnrýni á
bræðralag vinstri flokksins og
'íhaldsmanna. Mæla þeir miklu
fremur með hugsanlegri samvinnu
vinstri flokksins og jafnaðar-
manna og telja hana framkvæman-
lega ef Thorkil Kristensen tæki
við af Erik Eriksen. Eriksen og
samherjum hans er þetta vafalaust
áhyggjuefni, enda .minnkar fylgi
vinstri flokksins í sveitunum
vegna fólksflutninga þaðan, en
jókst í bæium óg borgum, rneðan
Thorkils Kristensen naut við, og
svo er enn, enda forðaði það
flokknum frá áfalli við nýafstaðn-
ar kosningar. Þéttbýlisfylgið kem-
ur hins vegar mjög í hlut þeirra,
sem veita Thorkil Kristensen að
málum og standa að Liberal De-
bat. Nvliðarnir tveir, sem kjörnir
voru á vegum vinstri flokksins í
Kaupmannahöfri, eru báðir í þess-
urri hópi eins og áður greinir, og
Jens P. Jensen kvað einnig lítt
hrifinn af fóstbræðralagi Eriks
dreasen, sem fer með umboð Fólka
flokksins í Færeyjum.
Þingmannafjöldi landshlutanna.
Heimakjörnu fulltrúai’nir á
þingi Dana skiptast þannig eftir
landshlutum: Á Jótlandi eru kjörn
ir 81, í Kaupmannahöfn og ná-
grenni 50 og á eyjunum 44. Fram-
boðsstaðir þeirra 988, sem gáfu
kost á sér til þingmennsku þessu
sinni, voru 124 talsins. Bauð
Alþýðuflokkurinn alls staðar fram,
vinstri flokkurinn á 122 stöðum,
íhaldsmenn 116, róttæki flokkur-
inn 115, en sósíalski þjóðflokkur-
inn 113 og óháðir 99. Kjördæmin
í Danmörku eru 23.
Helgi Sæmundsson.
Eriksen við íhaldsmenn, en hann
gerist iðulega orðhvass bæði í
ræðu og riti og sýnist enginn veifi
skati. Eriksen er hins vegar hugg-
un að þingmennsku Pouls Hart-
iing. kennaraskólastjóra í Kolding,
en hann var kjörinn í Vejleamti.
Er á orði haft af sumum, að hon-
um sé ætlað að verða ríkisarfi
vinstri flokksins, ef Erik Eriksen
og hirð háns fær ráðið þeim úrslit-
um, begar þar að kemur. Hartling
er saeðnr friálslvndur gáfumaður
og nrvðilega ménntaður, en vopnin
hafa hineað t.il bitið honum illa í
kosningabaráttu. -
Meðal fvlginauta Aksels Larsen
cr athvclisverðastur Erik Sigs-
gaard kennari, sem kosinn var í
Austurkiördæmi höfuðborgarinn-
ar ásamt fóringja sínum. Hann
verður beniamín danska þingsins
næsta kiörtfrriabil. Elztur þing-
manna er iafnaðarrnaðurinn Cárl
Petersen, fvrrum landbúnaðarráð-
herra, en Julius Bomholt, fyrrum
meriritáiriáláráðherra, hefur lengst
setið á þingi. s-
Þrír hluftáusir.
Þrír bingmenn taka varla flokks
pólitíska afstöðu til afgreiðslu
deilumála eða f stjórnarmyndunar.
Þeir eru Nikolaj Rosing og Knud
Hertline. fulltrúar Grænlendinga,
og A. Andréasen, annar af þing-
mönnum Færeýinga. Hertling var
kosinn á Norður-Grænlandi í stað
Mikaels Gam og hefur ekki átt
sæti á þingi áður fremur en An-
Ketlavík
híann fann
Framhald úr opnu.
að hann afréð að halda áfram.
Af hendingu kynntist Baden-
Powell manni, Sir Arthur Pear-
son að nafni, sem liafði mikinn
áhuga á börnum og unglingum.
Hann lofaði Baden-Powell hjáip
sinni, og þar með var hægt að
halda tilraunaútilegu. Hún var
haldin á Brownsea-eyju í ágúst
1907.
í janúar 1908 kom svo „Scout-
ing for boys“ út og var þá lagð-
ur grundvöllur að skátahreyfing
unni. Bókin kom út í mörgum
útgáfum og var þýdd á fjölda
tungumála. Skátar og skátasveit
ir þutu upp hér og hvar, bæði
í Englandi og öðrum löndum.
Baden-Powell var nú í miklum
vanda staddur. Bókina hafði
hann einungis skrifað sem upp-
eldislegar leiðbeiningar, sem
drengjafélög gætu notfært sér
ef þau vildu. Hann hafði aldrei
í hyggju að stofna nýja æsku-
lýðshreyfingu. Eftir þetta helg-
■aði Baden-Powell skátunum alla
sína krafta. Hann ferðaðist með-
al skátanna, hélt fyrirlestra, út-
vegaði foringja, stjórnaði út-
breiðslu hreyfingarinnar, sá um
rekstur aðalskrifstofunnar í
London, skrifaði gréinar í blöð
og tímarit og mætti öllum þeim
byrjunarörðugleikum, sem hlutu
að skapast hjá hreyfingu, sem óx
svo hratt. Áriðtl910 voru 110.000
drengjaskátar í Englandi einu. í
dag eru um Í7 milljóriir skáta
starfándi í yfir 90 löndum.
Árið 1929 var Badén-Powell
aðlaður af Englandskonungi
og gerður að lávarði fyrir störf
sín í þágu æskulýðsmála. Hann
tók sér nafnið Lord Baden-Po-
well of Gilwell. Fjöldamörg ríki
veittu honum sln æðstu heiðurs-
merki fyrir sömu störf.
Sir Robert Baden-Powell dó
8. janúar 1941 í Kenía. Hann var
jarðsettur þar, en í Westminster
Abbey er minningargrafreitur
ur hann, irieðal mestu mikil-
menna Bretlands.
Ólafur Proppé.
m
,id/
fnninfjaróff/
I SMS
Börn eða unglingar óskast nú þegar til að
bera Alþýðublaðið til áskrifenda í Keflavík.
Upplýsingar í síma 1122.
Eftirtaldir námsflokkar hefjast á sunnudaginn kemur:
Nr. 1. FUNDARSTÖRF OG MÆLSKA. Kennari: Hann-
es Jónsson, félagsfræðingur. Námstímar sunnu-
dagar kl. 4—6 e. h. 11. okt. til 13. des. 1964.
Kennslugjald kr. 300,00
Nr. 7. HEIMSPEKI OG TRÚ. Kennari Gretar Fells, rit-
höfúndur. Námstími sunnudagar kl. 3—4 e. h.
11. okt. til 13. des. 1964. Kennslugjald kr. 150,00.
Verjið frístundunum á ánægjulegan og uppbyggilegan hátt.
Innritun. í bókabúð KRON, Bankastræti.
FÉLAGSMÁLASTOFNUNIN
PÓSTHÓLF 31. — REYKJAVÍK.
SÍMI 40624.
IÍRI
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif-
enda í þessmn hverfum:
Högunum
Barónsstíg
Lönguhlíð
Framnesveg
Bræðraborgarstíg
Laufásveg
Afgreiðsla AfþýSublaðsfns
Sítttl 14 900.
Duglegir sendisveinar
ÓSKAST.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins. Sími 14 900.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 6. október 1964 J3