Alþýðublaðið - 05.11.1964, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 05.11.1964, Qupperneq 1
TJÓNIÐ NEHUÍt TUGUM MILLJ. skemmdir yrðu ekki ýkja mikl- ar á húsinu sjálfu. Klukkan 5.55 í morgun til- kynntu tollverðir, sem voru á vakt í Hafnarhúsinu, sem er næst við vöruskemmuna, a8 eldur væri greinilega laus á 5. hæð hússins. Þegar slökkvi- liðið kom á vettvang ör- skömmu seinna stóðu eldtungur út um glugga á hæðinni og sá- ust víða að í bænum. Mikinn reyk lagði þá yfir höfnina. Slökkviliðið tók þegar til óspilltra málanna við að slökkva eldinn og kom í ljós að hann liafði kviknað í fóður- gangi, sem gengur upp í gegn- um allar hæðirnar 6. Þaðan hafði hann svo breiðst út um 5. hæðina og komist í allskonar jólavarning, sem þar var geymdur. Mun allt hafa eyði- lagst á þeirri hæð. Mikið eyði- lagðist og skemmdist af alls- konar vörum á öðrum hæðum, Frh. á 14. síðu. Reykjavík, 4. nóv. - GO LAUST FYRIR klukkan sex í morgun kom upp miklll eldur í vörugeymslu SÍS við Reykja- víkurhöfn og brunnu þar vörur fyrir tugi milljóna, þó að gHNQ Tvær útgáfur PRENTARADEILAN leystist meðan forsetakosningarnar stóðu sem hæst í Bandaríkjunum. Dagblöðin í Reykjavík gátu því sagt lesendum sínum frá úrslitum kosninganna og gangi þeirra. Alþýðublaðið kom út gær í tveimur útgáfum. Fyrri útgáfan fór í pressuna kl. 2,30, en kl. 5,30 kom út önnur útgáfa með nýjustu fregnum af hinum glæsilega sigri Johnsons. Báðar þess- ar útgáfur seldust upp á skömmum tíma. Frá brunanum síðastliðna nótt. — (Mynd: JV). Starfsmenn sendiráðs og upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna fylgdust af miklum áhuga með forsetakosningunum síðastliðna nótt. Frétt- irnar bárust jafnóðum og voru skrifaðar upp á töflur til glöggvunar. — (Mynd: JV). Washington, 4. nóvember LYNDON B. JOHNSON forseti sneri aftur til Hvíta liússins í dag eftir að liafa unnið mesta kosn- ingasigur i sögu Bandaríkjanna. Þegar talningu atkvæða var að mestu lokið í kvöld höfðu 61.3% kjósenda lýst yfir stuðningi við Johnson. Fyrra metið setti Franklin D. Roosevelt, sem fékk 60.7% atkvæða í forsetakosning- unmn 1936. Johnson hafði þá sigrað í 44 rlkjuin af 50 og auk þess í Dis- trict of Columbia. Hann liafði I tryggt sér 486 fulltrúa á kjör- mannaþingið, sem formlega kýs forseta Bandaríkjanna. Þegar talin höfðu verið 94% atkvæða skiptust atkvæðin þannig, að Johnson hafði hlotið 40.1 millj- ón atkvæða en Goldwater 25.4 milljónir. Munurinn var því 14.7 milljónir atkvæða. Ósigur Barry Goldwaters öld- ungadeildarmanns var gífurlegur. Forsetaefni repúblikana hefur að- eins fengið 38.7% atkvæða og það telja stjómmálamenn í Washing- ton smánarlegan ósigur. Goldwater hefur aðeins sigrað í fimm ríkjum, það er í þeim suður- ríkjum, þar sem kynþáttavanda- málið er mál málanna. Niðurstað- an er sú, að Goldwater fær stuðn- ing litils minnihluta á kjörmanna- þinginu, sem kýs forsetann. I heimaríki Goldwaters, Arizona, sem sendir fimm kjörmenn á þing ið, lágu úrslit enn ekki fyrir seint i kvöld, en þá stóð hann örlítið betur að vígi en Johnson. í kosningunum til hinna tveggja deilda Þjóðþingsins vann Demó- krataflokkur Johnsons stórsigur. í Þegar aðeins var eftir að tilkynna j úrslit i kosningum til tveggja sæta í öldungadeildinni hafði flokkurinn haldið velli með 66 sæt um af 100, en fulltrúum repú- blikana i deildinni hafði fækkað úr 34 í 32. í kosningunum til full- trúadeildarinnar höfðu demókrat- ar bætt við sig 27 fulltrúum en repúblikanar tapað 41, en ekki var vitað um úrslit í nokkrum kjör- dæmum. Framhald á 5. síðu. Togari tekinn i landhelgi Reykjavík, 4. nóv. — GO. BREZKI togarinn Aldershot GY 612 var tekinn að meintum land- helgisveiðum um eina sjómílu fyr- ir innan fiskveiðitakmörkin út af Látrabjargi. Varðskipið Ægir, und ir stjórn Haraldar Björnssonar, skipherra, kom að togaranum og fór með hann inn til ísafjarðar í nótt. Skipin komu þangað í morg- hn og stóðu réttarhöld í máli skip- stjórans í dag.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.