Alþýðublaðið - 05.11.1964, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 05.11.1964, Qupperneq 2
Bltstjórar: Gylfi Gröndai (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl: Árni Gunnarsson. — Ritstjómarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. SIGUR JOHNSONS LYNDON B. JOH'NSON hefur unnið mikinn yfirburðasigur í bandarísku forsetakosningunum. Má vafalaust fullyrða, að væri ekkert kynþátta- vandamál til þar vestra, hefði Johnson unnið 49 af 50 ríkjum, öll nema heimafylki Barry Gold- waters, sem hefur veitt honum meirihluta fyrir kurteisis sakir. Þessi kosningaúrslit eru mikill stjórnmálavið burður og nær þýðing hans langt út fyrir Banda* ríkin. Goldwater var spámaður hinnar gömlu íhaldsstefnu. Hann barðist fyrir þeirri stefnu ómengaðri, Hann barðist gegn ríkisafskiptum í öllu formi, gegn almannatryggingum og sjukrasam lögum, gegn jafnrétti hvítfa og svartra. Hann vildi binda endi á það velferðarríki, sem stofnað hefur tverið víða um lönd og er einnig að festa rætur í Bandaríkjunum. Hann vildi beita hörku og valdi í alþjóðamálum. Öllu þessu hafa Bandaríkjamenn hafnað. Er þessi ákvörðun þeirra því ljósari, sem Lyndon Johnson er enginn engill og átti við mikla erfið- leika að glíma sem frambjóðándi, erfiðleika, sem hefðu orðið honum að falli fyrir einum manns- ' aldri. Tölumar tala skýru máli um sigur Johnsons. Hann hlaut milljónameirihluta aðeins fjórum ár- um eftir að glæsimennið John F. Kennedy hlaut " rauman sigur yfir Richard Nixon, frambjóðanda repúblíkana 1960. Hitt er enn merkilegra, bvernig ■ fór í einstökum ríkjum. Smáríkið -Vermont er gamalt og þroskað samfélag skammt frá Atlants- hafsströnd, en hefur síðan á dögum Abrahams Lincolns alltaf 'kosið repúblíkana þar til nú. John- son hefur engan töframátt, sem Kennedy, Stev- enson, Truman eða Roosevelt ekki höfðu, en þeir gátu ekki unnið Vermont. Hér kemur aðeins eitt til. Þetta ríki og 44 önnur kusu GEGN GOLD- WATER og íhaldsstefnu hans. Hreyfing Goldwaters hefur ekki verið ein- göngu í Bandaríkjunum. Hann virðist hafa vakið ’vonir íhaldsmanna víða um lönd og sett af stað nýja hægri hreyfingu gegn frjálslyndi og velferð arríkjum samtíðarinnar. Bundu slíkir menn vonir við baráttu hans í Bandaríkjunum, enda eru þau höfuðvígi einkafrámtaks og einkafjármagns. Þessar vonir hafa nú orðið að engu. Yfirgnæf andi meirihluti bandarísku þjóðarinnar hefur kos ið manninn, sem Goldwater kallaði sósíalista, manninn sem fer braut hóflegrar jafnaðarstefnu I flestum innanríkismálum. Hvað sem þessu líður, varðar aðrar þjóðir þó mestu, að utanríkisstefna Bandaríkjanna hefur ver ið staðfest og þjóðin hefur neitað að styðja ofstæk ismenn eða leggja út á braut ævintýralegrar valdabaráttu. Aö afloknu þriöia verkfallinu é einu ári MJÖG HEFUR FJÖLGAÐ f prentarastéttinni á undanförnum árum. Iðnin hefur verið „opnuð“ ef svo má að orðum komast, en hún var áður „lokuð“ vegna þess að atvinna var svo lítil. Það er ekki mjög langt síðan, að það þótti ákaflega eftirsóknarvert að komast í prentnám, þetta er nú breytt. Prentsmiðjurnar hafa hin síðustu ár tekið nær alla, sem sótt hafa um að fá að laera þessa Iðn. Nóg hefur líka verið *ð gera. Útgáfa hóka hefur vaxið mikið og blöðin hafa stækkað. Allt hdfur virzt stefna 'að því, að þessi iðn væri og yrði örugg. Þetta hefur líka valdið því, að mjög margir prent arar eru yfirborgaðir. NÚ BENDIR ALLT TIL þess, að þetta sé að breytast. Iðnin er í hættu ofanfrá. Þrjú verkföll hafa verið í iðninni á rúmu ári. Það er ekki aðeins að hún hafi stöðv azt heldur hafa vinnustöðvanirn ar valdið því, að bækur hafa brunn ið inni í tugatali og valdið útgef endum, og þá einnig prentsmiðj unum, gífurlegu tjóni. Þetta verð ur til þess, að útgáf-a minnkar, að blöðin draga saman seglin, og mega þau gjarna gera það, að mínu áliti og vanda því meir til efnis sins, en þetta veldur því, að aukavinna prentara minnkar, að útgáfa færist saman á öllum sviðum, enda ekki von að útgef endur telji sér fært að ráðast f útgáfur án þess að þeir geti haft hugmynd um hvort hægt sé aB ljúka. •11 NÝ KYNSLÓD er tekin við I þessari iðn eins og öðrum. Húa hefur enga Þekkingu á aðstöðu '] iðnarinnar sjálfrar eða verklýðs- málastefnum yfirleitt og lætur: sér ekki til hugar koma að til at* vinnuleysis geti dregið. Þetta sani* 'ar síðasta deila og raunar fleiri. Þetta kom áþreyfanlega í ljós Framhald á 10. síðu nTTTTVd Ha^neLii metsþ'ubi" Norðudöodum CORTINAN ÁFRAM I FARARBRODDIl £nnþá hefur FORD-verksmiðjunum i Englandi tekizt að endurbæta CORTINUNA. Ekki með útlitsbreytingum, heldur með tækniframförum. M.a.: Loftræsting — með lokaðar rúður. Diskahemlar á framhjólum. Smurning óþörf. Ný vélarhlif. —> Nýtt mælaborð. — Nýít stýri. Sami undirvagn. — Sama vél. — Sama „bodý“ SÝNINGARBILL Á STAÐNUM SVEINN EGILSSON H.F. UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22470 2 5. nóv. 1964 - ALÞÝÐUELADID

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.