Alþýðublaðið - 05.11.1964, Qupperneq 5
Mesti kosningasigur
Framhald af síffn 1.
í 17 þeirra 25 ríkja þar sem kos-
|S var um ríkisstjóra sigruðu
frambjóðendur demókrata, en re-
públikanar sigruðu í átta ríkis-
Stjórakosningum. Engin breyting
hefur því orðið á skiptingu hinna
60 ríkisstjóraembaátta milli flokk-
anna. 34 eru demókratar og 16
repúblikanar.
Stjómmálamenn í Washington
búast við, að Johnson muni
fylgja sjálfstæðari utanríkis-
Btefnu, bæði vegna hins mikla
persónulega sigurs síns og bættr-
ar aðstöðu demókrata í Þjóðþing-
Inu. Þessi nýja stefna kemur
væntanlega í ljós á næstu vikum
að loknum fundum forsetans með
helztu ráðunautum sínum.
Einkum er búizt við, að fyrir-
Jiugaðri ferð Johnsons til Vestur-
Evrópu verði flýtt, en hann- fer
eennilega til Parísar, Bonn og Róm
ar og ef til vill til London. Einnig
er búizt við, að Johnson muni ekki
SINFÓNÍU
TÓNLEIKAR
Reykjavík, 4. nóv. — OÓ.
í KVÖLD, fimmtudag, heldur Sin-
fóníuhljómsveit íslands hljómleika
£ Háskólabíói. Stjórnandi er Igor
Buketoff og einleikari verffur
Jjýzki píanóleikarinn Gerhard
Puchelt. Á efnisskránni eru verk
eftir Back-Weiner, Schoenberg og
Beethoven.
Píanóleikarinn Gerhard Pucheh
er fæddur í Þýzkalandi árið 1913
og stundaði tónlistarnám í Berlín.
.Hann hefur ferðast til allra Evrópu
landa og haldið sjálfstæða tón-
Ieika eða leikið með hljómsveit-
um. Hann leikur nú hér á landi í
fyrsla sinn, en héðan fer hann í
sjö vikna tónleikaför til Banda-
ríkjanna og síðan til Japan. Siðan
árið 1948 hefur Puchelt verið pró-
fessor við Tónlistarháskólann í
Berlín.
Tónleikarnir hefjast kl. 21,00.
útiloka fund með Kosygin, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna.
í innanríkismálum hefur forset-
inn ótvírætt betri möguleika til
að framfylgja umbótastefnu sinni,
m. a. hinni miklu heilbrigðisáætl-
un sinni og herferðinni gegn fá-
tæktinni.
Johnson fékk fyrstu staðfest-
ingu um, að hann hefði sigrað í
kosningunum kl. 16 eftir íslenzk-
um tíma þegar Goldwater játaði
opinberlega ósigur sinn eins og
venja er til. Hann gerði það í per-
sónulegu beillaóskaskeyti til for-
setans þar sem hann hét forsetan
um m. a. stuðningi sínum við ráð-
stafanir er stuðluðu að verðugum
friði. Hins vegar mundi Repú-
blikanaflokkurinn halda uppi and-
stöðu þegar hann teldi slíkt nauð
synlegt. Kommúnisminn væri
helzta hindrun friðar.
Goldwater, sem hefur ekki get-
að gefið kost á sér til framboðs til
öldungadeildarinnar þar eð hann
var í framboði í forsetakosningun-
um, sagði blaðamönnum, að hann
tcldi ekki að Repúblikanaflokkur-
inn mundi velja sig fyrir forseta-
efni 1968. Hann sagði, að hann
mundi vinna að því að efla sam
tök flokksins og útvega honum
peninga.
Þegar kosningaúrslitin lágu ljóst
fyrir hélt Johnson forseti ræðu
til um 4500 manns sem safnazt
höfðu saman fyrir framan hinn
svokallaða LBJ-búgarð, en þar
fylgdist forsetinn með talning-
unni. Hann sagði, að það sem
sameinaði bandarísku þjóðina
væri enn sterkara en það sem, að-
skildi hana. Stefnu þeirra sem
Kennedy forseti hóf yrði haldið
áfram og hagsmunir fjöldans látn-
ir sitja í fyrirrúmi, enda mundi
stjórnin ekki þjóna hagsmunum
neinna sérhagsmunahópa.
Meðal stjórnmálamanna í Was-
hington vakti sigur Robert Ken-
nedy fv. dómsmálaráðherra gegn
repúblikananum Kenneth Keating
í öldungadeildarkosningunum í
New York hvað mesta athygli.
Einnig vakti athygli, að fylgið sem
Johnson forseti hlaut þar var al-
gert met. Edward Kennedy sigr-
aði í Massachusetts þótt hann
gæti ekki tekið þátt í kosníngar
baráttunni vegna veikinda, en
hinn kunni blaðafulltrúi Kenne-
dys forseta, Pierre Salinger, beið
ósigur í öldungadeildarkosningun-
um i Kaliforníu.
Vilhjálmur Bergsson sýn-
ir í Listamannaskálanum
Reykjavík, 4. nóv. — OÓ.
VILHJÁLMUR Bergsson, list-
málari, opnaði um síðustu
helgi sýningu í Listamannaskál
anum. Sýnir hann þar 28 mynd-
ir, 21 olíumálverk og 7 teikn-
ingar og guachemyndir. Þetta
er þriðja einkasýning Vilhjálms
og stærsta, áður hefur hann
sýnt í Ásmundarsal og Bogasaln
um, auk þess að hafa tekið þátt
í mörgum samsýningum hér á
landi og erlendis.
Vilhjálmur hefur stunda?
nám í málaralist í Danmörk og
Frakklandi um margra ára
skeið og er nú búsettur ýmist
í Kaupmannahöfn eða Grinda-
vík, og hefur vinnustofur á báð
um stöðunum. — Vilhjálmur
hyggst fara utan bráðlega og
heldur sýningu í Kaupmanna-
höfn seinni hluta janúarmán-
aðar n.k. í Gallery Allen. Verð-
ur það fyrsta einkasýning hans
erlendis.
Nokkrar myndir á sýningunni
eru seldar, en hún verður op-
in fram yfir aðra helgi.
Fjöliðjan í Kópav.
Framhald af síðu 16.
stjóri var Hreinn Hauksson i
Kópavogi.
í janúar 1962 birtir svo bæjar-
fógetinn í Kópavogi, Sigurgeir
Jónsson, stefnu á liendur stjórn-
endum Fjölið4unnar í Kópavogi,
þar sem stjórnendur Fjöliðjunnar
h.f. á ísafirði krefjast þess að við-
urkennt verði með dómi Sjó- og
verzlunardóms Kópavogskaupstað-
ar að stjórn hins stefnda hlutafé-
lags verði bannað að nota nafnið
Fjöliðjan, eða Fjöliðjan h.f. sem
nafn fyrir félag sitt. í öðru lagi:
að stjórn hins stefnda félags skuli
skylt að láta afmá úr firmaskrá
og hlutafélagaskrá Kópavogskaup-
staðar nafnið Fjöliðjan h.f., allt að
viðlögðum dagsektum til stefn-
SfLDARSKÝRSLA
BKYRSLA ísl. útvegsmanna um
afla þeirra skipa, sem bættu við
Big afla í síðustu viku, til miff-
Hættis 31. október 1964, á síldar-
miðunum fyrir Austfjörffum.
Akraborg EA 24.011
Akurey RE 15.953
f Arnar RE 17.902
1 Arnarncs GK 11.589
í . Arnfirðingur RE 23.125
Árni Magnússon GK 28.539
1 Ásbjörn RE 27.271
T Auffunn GK 9.381
) Bára SU 2.438
Bcrgur VE 22.317
Bjarmi II EA 42.258
Björgúlfur EA 15.166
Björgvin EA 23.851
Eldey KE 24.313
EHiði GK 22.326
Engey RE 25.141
Faxi GK 36.605
Freyfaxi KE 6.340
Garð'ar GK 13.564
Gjafar VE 27.991
Grótta RE 38.943
Guð'mundur PétursíS 23.111
Guð'm. Þórðarson RE 21.199
Guffrún GK 22.223
Guðrún Þorkelsd. SU 11.014
Gullberg NS
Gullfaxi NK
Gunnar SU
Hafþór RE
Hafrún ÍS
30.255
19.450
26.039
14.629
28.602
Hannes Hafstcin EA 40.457
Héðinn ÞH 24.664
Heimir SU 17.076
Helga Guffmundsd.BA 38.806
Hoffell SU 18.276
Hólmanes KE 18.293
Hrafn Sveinbj. III GK 22.455
Huginn II VE 22.232
Ingiber Ólafss. II GK 14.309
Frh. á 13. síffu.
anda eigi undir 100,00 krónum á
dag frá hverjum stjórnenda félags
í Kópavogi, þess er kallar sig Fjöl-
iðjuna h.f. allt frá lokum aðfarar-
frests í málinu, unz téðu dómsorði
er fullnægt, enda verði stefndur
dæmdur til að greiða stefnana
kostnað sakarinnar að mati dóms-
ins.
Stefnandi hélt því fram i grein-
argerð sinni fyrir stefnunni að
augljóst óhagræði væri að því að
starfandi væru tvö hlutafélög með
sama nafni, enda hafi þetta valdið
sér óþægindum í einstaka tilvik-
um. Þá telur ste.fnándi í greinar-
gerðinni, að hann hafi öðlast einka
rétt á nafngiftinni, þar eð hans fé-
lag var stofnað og skrásett fyrr
Málið var svo þingfest fyrir Sjó-
og verzlunardómi Kópavogs þann
11. janúar 1962. Sigurgeir Jóns-
son veik sæti í dómnum, en setu-
dómari var skipaður Ólafur W.
Stefánsson fulltrúi.
í vörn stefnda er það sögð ó-
sönnuð fullyrðing, að samnefnið
hafi valdið óþægindum, enda sé
ekki minnst á að það hafi valdið
tjóni fyrir stefnanda. Félögin séu
starfandi sitt i hvoru lögsagnar-
umdæmi, stefndi hafi aldrei heyrt
getið um stefnanda, þegar fyrir-
tækinu var gefið nafn og hafi þá
ekkert fyrirtæki undir nafninu
Fiöliðjan fyrirfundist á firmaskrá.
Þá séu starfssvið þessara tveggja
félaga svo ólík, að engin minnstu
líkindi séu lil að árekstrar hljót-
ist af samnefninu, eða neins kon-
ar óhagræði. Þá er vitnað í þann
tilgang Fjöliðjunnar á ísafirði að
framleiða gler. Gler sé alls ekki
framleitt hér á landi eins og sakir
standa og starf félagsins því að-
eins fólgið í verzlun með innfluít
gler. Nafnið Fjöliðjan sé því miklu
fremur réttnefni á starfseminni i
Kópavogi, sem sannanlega sé fjöl-
þætt. Ennfremur hélt stefndi .þv$
fram, að hann hafi öðlast lögvern«|
aðan rétt til nafnsins um leið og
það var skráð í samræmi við lög
í hans skrásetningarumdæmi. Þá
telur hann sig einnig eiga höfund-
arrétt að nafninu, þar sem það
finnist ekki í orðabókum svo vitað
sé og njóti það því verndar sam-
kvæmt reglum um höfundarrétt
og hugverk. Ennfremur segir
stefndi í vörn sinni, að mörg for-
dæmi séu fyrir því að fyrirtækt
hér á landi séu samnefnd, enda-
sé ckkert í lögum, sem banni slíkt,
séu fyrirtækin ekki starfandi i
sama lögsagnarumdæmi. Stefndi
lagði fram bréfsefni, umslög, reikn
ingseyðublöð, verkseðil, frumnóti*,
launaumslög o. s. frv. allt auð-
kennt með nafni félagsins og vöru.
merki. Þá gecði hann grein fyrir!
ýmsum skuldbindingum og ábyrgði
um, sem fyrirtækið hafði tekið á;
sig I nafni Fjöliðjunnar h.f. NafrV'
breyting myndi valda bæði milil-:
um útgjöldum og óþægindum,-
Hann krafðist sýknu af öllum kröff
um stefnda í málinu og hæfileggí.
málskostnaðar úr hendi stefnanda5
I
eftir mati réttarins.
Málið var dómtekið þ. 6. júlt
1963 og dómur kveðinn upp þ. 20 ?
júlí. Rétturlnn leit svo á, að orði?^
„Fjöliðjan“ veki ekki hugmymi?
um neinn sérstakan atvinnurekst-j
ur, og yrði því að telja að stefn\
andi hafi öðlast lögverndaðan rétfi
til nafnsins, þar eð hann lók það
upp á hlutafélagi sínu á undan
stefnda. Samkvæmt því beri að[
taka til greina þá kröfu, að Fjöl-Í
iðjunni í Kópavogi sé óheimilt að
nota nafnið fyrir félag sitt. Nafnj
þetta skuli afmá úr hlutafélaga-i
skrá Kópavogskaupstaðar, en ekh i
firmaskrá, þar sem þar hafi þaðj
aldrei verið skráð. Kröfum um
dagsektir var vísað frá dómi, þa^
sem stjórnendum hafði ekki veriðí
stefnt persópulega. Stefndi skylddj-
greiða 5000 krónur í málskosntað|
Meðdómendur voru Jósafat Línda^-
og Ragnar Jónsson.
Fjöliðjan í Kópavogi áfrýjaðá|
'málinu til Hæstaréttar og þ. !•#,
október s.l. var hinn áfrýjaði dóm-
ur staðfestur þar og aðalfrjýjanda
gert að greiða 10.000 krónur i
málskostnað.
t
77/ Moskva !
Framhald af síð'u 3. i
í Peking er bent á, að Moskvu-
ferð Chou En-lais stingi í stúi
við afstöðu sovétstjórnarinnar tií
hátiðahaldanna í þjóðhátiðardegi
Kína 1. okt. Fulltrúi hennar vicí
hátíðahöldin var forseti verkalýðá
sambandsins, Viktor Grisjin.
Sagt er, að nú eftir brottvikij
ingu Krústjovs og fyrstu kjamt
orkusprengingu Kínverja gendl
Kína forsætisráðherra sinn tií
Moskvu til að leggja ríka áherzllrj
á sjónarmið Kínverja við hin^
nýju leiðtoga Sovétríkjanna.
Þetta verður fyrsta: Moskvui
heimsókn Chou En-lais síðan 196lj
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 5. nóv. 1964 ^