Alþýðublaðið - 05.11.1964, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 05.11.1964, Qupperneq 6
þjóðleikhúsið: FORSETAEFNIÐ Sjónleikur í sjö atriðum eftir Guðmund Steinsson. Leibstjóri: Benedikt Árnason Leiktjéld: Gunnar Bjarnason Bún ngateikningfar: Lárus Ingólfs- son. Hljómlsrigði: Þorkell Sigurbjörns- son. Það kynni að vera unnt að gera leiki it um stjórnmálabaráttu, háðfærslu kosninga til dæmis, með nokl'urn veginn völrænum hætti. Upp ;krift: Takið saman orðaforða stjórnmálamarina fyrir kosningar; skiptið honum, af handahófi, niður í sjö staði. til dæmis. Þessar efnis deildir má síðan nota eftir ástæð um sem uppistöðu í sjö atriði leiks ins eða þá sjö persónur hans. Úr efniviðnum, sem safnað hefur ver ið af fullkominni hlutdrægni, ber að vinria með þarfir leikhússins ■einar huga, miða að því einu að gera hann sem starfhæfastan á sviði. Og þar sem það er augljóst að liann getur „haft þýðingu fyrir líf mannsins og samtíð“ ber höf undi í heiðarleikans nafni að stefna að sem fullkomnastri nýt ingu þess efnis sem hann hefur undir höndum og forðast alla ó- þarfa stílfærslu þess. Þannig má uppgeiður söguþráður ekki vera meiri en brýnustu nauðsyn ber til aðeins óhjákvæmileg beinagrind. Persónulýsingar, atburðarás, leik- brögð o.s. frv. hljóta, að svo miklu lleyti sem. unnt er, að ráðast af sjálfu frumefni leiksins, orðaforð- anum sem til hans var safnað. SKRUM OG GJALLANDI í leikriti Guðmundar Steins- sonar (sem í leikskrá nefnir leik- ritun „eina grein vísinda") má greina sumt sem bendir til þess arar aðferðar, en ekki nema sumt. Forsetaefnið sviðfærir stjórnmála skrum, vélgengan gjallandi áróður sem allt malar undir sig, fuiU- komna fyrirlitning stjórnmála- maskínunnar fyrir öllum mann- legum verðmætum. Fyrsta atriði leiksins, eintóm útsetning þessa stefs, varð sterkt og áhrifamikið á sýningu Þjóðleikhússins, í með förum þeirra Kristbjargar Kjeld, Gunjiars Eyjólfssonar otg Gísla Alfreðssonar, (Bera, Frami, Stefn ir). Þau eru kórinn í leiknurti (ásamt með sty.rkþegunum fjórum síðar meir), og leikurinn nýtur sín bezt einmitt sem kórverk fyrir leiksvið, öfgafull, stílfærð lýsing ómannlegrar áróðursfabrikku, reyndar með snertipunktum við kunnúglegan stjórnmálaveru’eik. En „sólóhlutverk” leiksins eru aá sínu leyti miklu miður gerð úr garði. Guðmundi Steinssyni næg ir ekki kórverkið, ep honum tekst Framsýning- Forsstaefnisins !! fór fram fl. október s.I., og í; var þessi umsögn skrifuff dag j I inn eftir. En þá skall j; á prentaraverkfall, eins og j I kuanugt er, og náði greinin j í í>ví ekki birtingu í tæka tíff. j; Þáíti rétt, eftir atvikum aff ! birta umsögnina nú, eftir ; dúk og disk, tii aff sýningar j innar yrffi þó ekki meff öllu !; égetiff í blaðinu. ; [ MmwMwwwwwmwi Gunnar Eyjólfsson, Gísli Alfreffs son og Kristbjörg Kjeld. Stjórnmálamaskínan sízt þar sem hann freistar nánari lýsingar stjórnmálahetjunnar í leiknum, Úlfs Úlfars. Fimmta at- riði t.d., Úlfur með styttu Heimis Heimis, eða annað, blaðaviðtal Úlfs Áreiðanleg'a gæti Guðmundur sitt hvað lært ennþá af Max Frisch sem einatt beitir kór skemmti- lega í verkum sinum en sem kann ekki miður að persónugera sögu- hetjur sínar, sbr. bana Bieder- mann. Sem „kórverk“ lánaðist Forsetaefnið dável fyrir leikni og fimi sýningarinnar. En þótt sýn- ingin sé vönduð, svo langt sem hún kemst, virðist manni óneitan lega að hún hefði getað orðið betri, væri leikritið sjálft bara betra. Guðmundur Steinsson er til ' að mynda ekki nógu fyndinn, orð ræða leiksins þyrfti að vera hnytti legri að jafnaði, betur lldfandi, ' Manni - virðist miklu fullkomnari úrvinnsla stjórnmátaskrumsins hljóti að vera möguleg. Og þótt honum detti sitthvað skrítið og skemmtilegt í'hug, svo sem sjón- varpseinvígi forsetaefnanna í 3. atriði í hnefaleikastíl, virðist und ir hæiinn lagt hvað honum verður úr því. Skopið í þessu atriði var mestallt leikstjórninni að þakka, þarna hefði verið þörf miklu vand aðri háðsfærslu venjulegra þjóð- málaumræðna, hnyttilegri orð- ræðu, til að hugmyndin notaðist til fulls. i sjötta atriði fer fram einum þremur sögum i senn, rann sókn styttubrot1 ins, áróðri Úlfs- m'anna og kosningunni sjálfri, og hvert þetta efni kynni að geta reynzt æði skoplegt. En þau eru alltof laustengd innbyrðis til að röklegt samhengi þeirra verði ljóst og þar með framvinda leiksins, og þetta dregur 'aftur allan mátt úr sjálfu lokaatriði hans, sem kem ur í boinu framhaldi þessa. Efaiaust mætti gera sér grein fyrir einhverju erindi Forseta- efnisins, kannski birtist það einna ljósast í fimmta atriði (Úílfur og Heimir) og svo lokaatriðinu með ákalli listamannsins (Baldvin Hall ddrsson). En þeir meinbugir sem eru á aliri gerð leiksins, draga úr honum máttinn, spilla þeirri ádeilu eða viðvörun sem Forseta efnið kynni að stunda eftir. Og þetta er miður farið, verulega starfhæft skop um íslenzka (nú, eða alþjóðlega) þjóðmálabaráttu svokallaða og stjórnmálaskrum væri sannarlega nýtilegt verkefni. Og tímabært nú á kosninga- og valdaskiptatímum. ERFIÐI OG ERINDI Hafi Forsetaefnið megnað að stytta manni stund mun það sem sagt, einkanlega að þakkia, meðför um verksins í Þjóðleikhúsinu undir handleiðslu Benedikts Árna sonar. Leikstjóri, leiktjaldasmiður og hljómbrigðahöfundur og svo íeikendur allir virðast hafa lagt á það alla stund að halda verkinu sem bezt til haga, og ná, satt að segja, með köflum furðulega góð um árangri. Sú skemmtun sem stendur af sýningunni er einna heízt komin til af fimleik hennar og hraða, furðulega góðri nýtingu þeirra skoptilefna sem textinn veitir, og stundum eru reyndar fátækleg, frumstæð ieða gróf, og vandaðri útfærslu hvers hlut- verks eftír því sem efni standa til. Áður voru nefnd Gunnar, Krist björg, Gísli sem heimfærðu stjörn málaagentána þrjá mjög skilmerki lega, stundum beiniínis uggvæn- lega. Róbert Arnfinnsson fór með aðalhiutverk. leiksins, Úlf Úifars forsetaefni, og átti við ramman reip að draga eins og áður var vikið að. en hann gætti persón- unnar áreiðanlega af mestu trú mennsku, og margt tókst honum listavel upp. Ég nefni bara ræðu hans fyrir Heimi Heimis í upp- hafi fjórða atriðis, það var ómetan leg skopfærsla þ.jóðj.egrar ræðu- mennsku. Róbert hefur með skop- hlutverkum sínum tveimur, Úlfi nú og Plastik- Smith í Teenager- love í vor sýnt nýja og skemmtí- iega hlið sinnar fjöibreyttu leik gáfu, ádeilið skop sem vonandi á eftir að nýtast honum betur við tilþrifameiri efnivið en þennan. Enn má nefna Ævar Kvaran sem gerði mikið gaman úr hlutverki þulsiris í sjónvarpsatriðinu, og Lárus Pálsson sem reyndar gerði furðu kátlega fígúru úr rannsókn arlögreglu I, heldur dauflegu hlut verki. Þetta er nú engin aðfinnsla að Sverri Guðmundssyni sem lék á móti Lárusi, en hefði ekki Árni Tryggvason verið tilvalin rann- sóknarlögregla II? Ég orðlengi ekki þessa sögu meir. Þyki þetta óþarflega óvæginn dómur um frumsmíð ungs höfund ar verður að hafa það. Hins ber þá líka að gæt-a að ekki verður með nokkru móti litið á aðalsvið Þjóðleikhússins sem neinskonar „tilraunaleikhús" Þetta breytir að vísu ekki skyldu leikhúsanna að leggja ungum höf undum tiiL smiðju að æfa sig. í slíkan stað kynni þetta verk Guðmundar Steinssonar að hafa átt erindi. Ó.J. Forsetaefnin: Rúrik Ilaraldsson og Róbert Arnfinnsson. G 5. nóv. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIO

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.