Alþýðublaðið - 05.11.1964, Blaðsíða 7
Kjósendur í Illinois munu fá þennan metcrs langa atkvæð'a
seðil í hendur uin Ieið og þeir greiða atkvæði í kosningunum nú í
Jiaust Á miðanum eru nöfn 263 manna, sem eru í framboði til
fulltrúadeiídarinnar í þinginu í Illinois. Vegna ósamkomulags um
kjördæmaskipan býður liver þingmaður sig fram almennt, en ekki
í sérstöku Kjördæmi.
Á sérstakan stað í borði kosn-
ingavélanna geta menn skrifað
nöfn þeirra sem þeir vilja kjósa,
en ekki eru í framboði.
Washington D. C. 22. okt. EG. 1
BANDARÍKJAMENN hafa tekið ;
tæknina í þjónustu sína við kosn-
ingar jafnt sem annað, það gefur
augaleið, að töluverðan tíma tæki
hér að telja öll atkvæði, ef aðeins
væri kosið með þeirri aðferð, sem
við þekkjum, þ. e. a. s. með því að
krossa við lista eða nöfn á at-
kvæðaseðli. Hér hafa vélar víða
leyst atkvæðaseðlana af hólmi, en
þó er búist við að 43% kjósenda
muni eftir sem áður greiða at-
kvæði á pappír en ekki vélar.
Fyrsta kosningavélin var tekin
í notkun árið 1892 í bænum Locli-
port í New York ríki, en sVo vill
til, að varaforsétaefni repúblik-
ana, William Miller er einmitt ætt
aður frá þeirri borg og hefur ver-
ið búsettur þar lengi. Síðan hefur
notkun þeirra breiðzt út og þykja
þær nú bæði handhægar og í sum-
um tilfellum mun áreiðanlegri en
venjulegir atkvæðaseðlar.
í þessum kosningum verður tek-
in í notkun ný gerð af kosninga-
vélum, New York ríki. Þessar vél-
ar eru að ýmsu frábrugðnar þeim,
sein til þessa hafa verið í notkun
og eiga að vera mun öruggari. Alls
verða 5500 slíkar vélar í notkun
í New York borg einni, þar sem
búizt er við að um 3.7 milljónir
manna muni neyta kosningaréttar
síns.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum, eru nöfn frambjóðenda
sett í lóðrétta röð. í fremstu röð
eru frambjóðendur repúblikana,
svo demókra'tar og síðan koma
smáflokkarnir, sem ævinlega
bjóða fram, en hljóta þó aldrei
menn kjörna. Þeirra á meðal eru
íhaldsmenn og sósíalistar. Templ-
arar hafa nær ævinlega boðið
fram í forsetakosningum og nefn-
ist flokkur þeirra Bannflokkurinn
og hefur það markmið að koma
hér á áfengisbanni, eins og var
fyx'r á árum, en þá eru flestir sam
mála um að skálmöjd hafi verið
hvað mest hér í landi, enda hættu
menn síður en svo að drekka þótt
aðfiutnings- og framleiðslubann
væri á áfengi.
í þeim kosningavélum sem til
þessa hafa vei-ið í notkun hafa
listarnir verið láréttir en ekki lóð-
réttir eins og nú er. Þótt vélarnar
væi'u góðar urðu mörgum kjósend-
um sajnt, skyssur á í sambandi við
notkun þeirra. Það vildi nefnilega
brenna við, að óviljandi kysu
menn allt aðra frambjóðendur en
þeir ætluðu sér. Komið er í veg
fyrir þetta á nýju vélunum. Við
nafn hvers frambjóðanda er rofi,
eða takki, og um leið og hann er
hreyfður kemur x við nafn þess
sem atkvæðið hefur hlotið. Þótt
búið sé að hreyfa einn takkann
getur kjósandi skipt um skoðun
og veitt öðrum atkvæði sitt, en
Kjósandinn dregur tjaldið frá með því að taka í
um leið og hann gerir það, tekur vélin
hans.
Það er auðvelt að kjósa á vélar, — ekki þarf annað en færa til takka við nafn hvers frambjóðenda.
vélin kemur í veg fyrir að menn
geti kosið fleiri en einn til sama
embættis. Þegar kjörfundi lýkur,
er vélin opnuð, og er þá hægt að
lesa atkvæðatölur hvers frambjóð-_
anda beint undir nafni hans. Er
því í rauninni ekki um neina taln-
ingu að ræða þar sem kosið er
með vélum. Vilji menn ekki kjósa
þá, sem eru í framboði geta menn
ritað nafn éða nöfn þeirra, sem
þeir vilja kjósa í þar til gerðan
reit á vélinni, eins og sést á með-
fylgjandi mynd.
Vilji nú einhver kíkja undir
nafn einhvers frambjóðanda til að
sjá hvernig honum vegnar, fer
vélin samstundis í baklás, og er
þá ekki hægt að greiða fleiri at-
kvæði á hana fyi'r en starfsmaður
á kjörstað hefur opnað lxana á ný
og væntanlega gefið viðkomandi
orð í eyra fyrir lmísnina.
Meðan kjósandinn er að kjósa
skýlir honum tjald. Áður en hann
gengur að vélinni og greiðir at-
kvæði, setur einhver af starfs-
mönnunum á viðkomandi kjör-
stað vélina i gang, ef svo má að
orði kveða. Kjósandinn tekur síð-
an í handfang og dregur tjaldið
fyrir áður en hann byrjar að
greiða átkvæði. Þegar hann hefur
lokið við það, tekur hann í annað
handfang og dregur tjaldið frá, en
um • leið ng hann gerir það telur
vélin atkvæði hans.
Á hverja af þessum nýju vélum
er hægt að greiða 999 atkvæði
en fleiri atkvæði geta þær ekki
talið. Á þeim kjörstöðum - en þeir
skipta hundruðum jafnvel í litlum
borgum, þar sem búist er við fleiri
cn 999 kjósendum, eru fleiri en
ein vél hafðar til taks.
Það hefur stundum viljað
brenna við hér, að atkvæði hyríu
á leið í talningu. eða atkvæði
bættust við. Vélarnar eiga að úti-
loka, að hægt sé að hafa nokkur
brögð í tafli, þó minnist ég þecs,
að í siðustu forsetakosningum var
kosning ógild í nokkrum kjer-
dæmum, þar eð upp komst, að a
áðúr en kjörfundur hófst höfSu
Framh. á bls. 10
ALÞVÐUBLAÐIÐ
5. nóv. 1964 'Jf