Alþýðublaðið - 12.11.1964, Page 2

Alþýðublaðið - 12.11.1964, Page 2
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Bencdikt Gröndal. — Fréttastjórl: Arni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Simar: 14900-14903. — Auglýsingasiml: 14906. — Aðseturi Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjaid kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útfiefandi: Alþýðuflokkurjnn. Stuðningur við ieiklistina RÍKISSTJÓRNIN hefur nýverið lagt fram frumvarp til laga um fjárhagslegan stuðning hins opinbera við leiklistarstarfsemi áhugamanna. Hér hefur merku máli verið hreyft, og samþykkt þessa frumvarps mun vonandi hafa það í för með sér, er fram líða stundir, að róður áhugamannaleik- félganna úti um land léttist verulega. Reykjavíkurborg er enn sem komið er nær eini staðurinn á landinu, þar sem verulega kveð- ur að skipulögðum leiksýningum. Mikið líf hefur verið í leiklistarstarfi borgarinnar undanfarið og stundum verið haldið uppi sýningum í þrem leik- húsum í senn. Úti á landi eru allar aðstæður í þessum efn- um erfiðari, því víða vantar fjárhagslegan grund- völl fyrir leiksýningar, þótt nægur áhugi sé fyrir hendi. Að setja upp leiksýningu er dýrt og fjárfrekt fyrirtæki, jafnvel þótt áhugamenn gefi mikla vinnu. Frumvarpi ríkisstjórnarinnar er ætlað fyrst og fremst að styðja og efla leiklistarstarfsemi í dreifbýlinu, þar sem hennar er ekki síður þörf, en þar sem þéttbýli er, og allar aðstæður auðveldari. Frumvarpið gerir ráð fyrir, að leikfélögum verði veittir tvenns konar styrkir, eftir því hve mörg og stór verkefni þau ráðast í. Styrkir til þeirra leikfélaga, sem sýna að minnsta kosti tvö leikrit á ári, er fullnægja nokkrum ákveðnum skil- yrðum, eru ráðgerðir 30—100 þúsund krónur, en styrkir til þeirra, sem eitt leikrit setja á svið, eru ráðgerðir 10—30 þúsund krónur. Þá er einnig 1 frumvarpinu heimild til að veita sérstaka styrki til félaga til að sýna ný íslenzk Íeikrit eða íslenzk leikrit, sem ekki hafa áður verið sýnd á sviði. Frumvarpið gerir og. ráð fyrir því, að heimilt sé að veita sérstakan styrk til ieiksýninga, sem sérstaklega eru ætlaðar börn- um. Þetta frumvarp, sem sennilega verður að lög- | um áður en langt um líður, horfir mjög til efling- I ar leiklistarstarfsemi í landinu almennt, einkum | þó í dreifbýlinu og er það vel. BANASLYSIN BANASLYS hafa verið óhugnanlega tíð síð-. | ustu dægur. Á tveim dögum hafa tvö börn beðið bana þar sem verið var að vinna að verklegum framkvæmdum. Vaknar sú spurning óhjákvæmi- lega, hvort eftirliti á vinnustöðum sé ekki víða ábótavant og væri ekki úr vegi, að Slysavarna- félagið eða annar hlutgengur aðili, beitti sér fyrir því að athuga hvort svo er og benda þá á úr- bótaleiðir eða varúðarráðstafanir. Vinnustaðir mega ekki vera barnaleikvellir, um það geta allir verið sammála. Steingrímur Thorsteinsson og bók Hannesar Péturssonar HÖFUM VIÐ ÁTT meiri sönffva skáld en Steingýím Thorsteins- son? Ég efast um ]>að. Þegar ég var ungur kom út Ijóðabók eftir hann og ég man að hún varð fljótt í hvers manns höndum á Eyrar bakka og mikið rætt um hana á heimilum, í stöðum, í sjógarðs- lilióinu, undir hjöllum og í búða holum. Það voru tíðindi í þá daga þegar ný Ijóðabók kom á mark-' aðinn. Það er öðruvísi nú. Það eru engin stórtíðindi. Og brátt fór maður að heyra þessi ljóð lesin og sungin og hendingar úr þeim teknar í daglegt mál, til útskýr- ingar eða áherzlu. ÉG MANJLÍKA, að ég hlustaði á samtal ungrar stúlku og móður minnar. Stúlkan var að segja móð- ur minni frá pilti, sem væri að gera hosur sínar grænar fyrir henni. „Á ég að taka honum?” — sagði stúlkan. „Ef þér lýst á hann, þá áttu að taka honum,” sagði móðir mín. „Þetta er myndarlegur piltur og ég veit ekki betur en hann sé reglusamur.” Pilturinn átti ekki heima í þorpinu. Stúlkan nagaði á sér hnúana, svo sagði liún: „Hvað heldurðu að liann hafi gefið mér? Hann gaf mér bókina hans Steingríms og skrifaði á hana.” ÞÁ LJÓMAÐI andlit móður minnar — og hún sagði: „Hann er þá ljóðelskur. Vondir menn eru ekki ljóðelskir. Þú skalt hafa þetta til marks um það, að hann sé góð- ur maður.” Og stúlkan var með bókina og fór að lesa í henni og svo skildi hún bókina eftir lijá mér — og ég lærði hana næstum því alla utan að. — Mér leið á- kaflega vel við lesturinn. Það var annarleg birta í þessum ljóðum, allt varð svo fagurt umhverfis mig — og enn öðlast ég þessa birtu, þegar ég lcs eða hey.ri Steingríms ljóð. ÉG SEGI ÞESSA SMÁSÖGU af tilefni úlkominnar ævisögu skálds- ins hjá Menningarsjóði eftir Hannes Pétursson skáld, — og einnig til þess að gefa hugmynd um það, hvernig almúgi manna tók á móti ljóðabókum í þá daga. Bók Hannesar finnst mér mikið afbragð. Hún er látlaus, en dýpt hennar mikil og allt svo tært, að það fer ekki margt fram hjá manni. Þetta er ekki aðeins ævi- saga hcldur skýring á ljóðunum og könnun á þeim með hliðsjón af aldarhætti, þjóðfélagsástandi og liugsjónum höfundarins. HANNES PÉTURSSON lætur þetta allt fylgjast að, svo að sam- skeyti finnast varla, svo haglega er unnið að smíðinni. Það kem« ur mér á óvart, hversu vel et unnið, því að Hannes er enn ung- ur maður — og það virðist n<S vera árátta ungra höfunda. — a® dreifa út orðum í allt annarri merkingu en þau hafa íiaft frá upphafi. Þetta er sérvizka manna, sem eiga litlar hugsjónir og fá viðfangsefni en vilja vera spek- ingar og halda að þeir geti orðið það með því að tala annarlegum tungum. j Hanncs á horninu. SMURT BRAUÐ Snlttur. ] Opið frá kl. 9—83,50. ] Btaiáðstoían ] Vesturgötu 25. Síml 16012 1 SHDBSTðÐIB Sætúní 4 - Sfmi 16-2-27 Biilina cr anuuðnr Ojótt ec nl f leilon tllu tefundtr at ■"■ntiHti1 WWWWWWVWWWWWWWMWVWWtWWWVWWWWWWWWWMWWWWI TÆKITIL VIÐGERÐA Á VATNSKÖSSUM Bifreiðaverkstæðið Sthnpill við Grensásveg hefur nú tek- ið í notkun ný tæki til við- gerða og' eftirlits á vatns- kössum í bifreiðum. Er þetta tækjasamstæða, og er hægt að mæla vatnsniagnið, sem fer gengum kassann, hrcinsa úr honum óhrcinindi og gera við hann. Eftir þcssa yfirferð og þegar kassinn hefur verið lakksprautaður, á hann að vera sem nýr. I>á er einnig hægt að athuga ástand kass anna án þess að taka þá úr bifreiðunum. Myndin sýnir hina nýju tækjasamstæðu. 2 12. nóv. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.