Alþýðublaðið - 12.11.1964, Síða 5

Alþýðublaðið - 12.11.1964, Síða 5
ÍÞROTTIR Framh. af bls. 11. miðist við það ástand sem við er að glíma. Þessvegna skorum við á Aust- firðinga, að veita íþrótta- og ung- mennahreyfingunni styrk í bar- áttunni gegn því ófremdarástandi 6em ae meir er að hasla sér völl hér meðal okkar. Það heyrist sagt að æskan sé óreglusöm. Það kann að vera rétt. En upp á hvað býður umhverfið henni? Skoði hver sitt nánasta. Austfirzk íþróttahreyfing vili beina lífi hinna uppvaxandi kvenna og karla í gagnstæðan far veg við þann sem hér er að fram- an lýst. Til þess að þar fylgi verk Vilja þarf hún efnalegan stuðning Og sterkt jákvætt almenningsálit. Þau tvö vopn mundu bíta bezt í baráttunni við þá félagslegu ómenningu, sem hér steðjar að. Hjálpumst öll að því að skapa eeskunni þær aðstæður, er leiði hana til jákvæðra lífshátta og þroskandi félagsmálastarfsemi. Leggi þar hver sína hönd á plóg Inn. ÞÓRÓLFUR Frh. af 1. síðu. gær, en þá liafði hann nýlega skrif að undir sainningfnn. Björgvin sagði í símtali við Alþýðublaðið, að Þórólfur væri mjög ánægður j með skiptin, en liann hefur kunn- að illa við sig Iijá St. Mirren und- anfarið, eins og við skýrðum frá í Alþýðublaðinu í gær. Þórólfur, sem er 24 ára gamall gerðist atvinnumaður í nóvember 1961 og hefur leikið sinn atvinnu- feril með St. Mirren til þessa. Glasgow Rangers, sem keypti Þórólf, er þekktasta knattspyrnu- félag Skotlands og það bezta. Ran- gers leikur nú sem stendur í Evr- ópubikarkeppninni, þair sigruðu Red Star frá Júgóslavíu í leik fyrir nokkru 3-1 Cfélögin voru jöfn eftir tvo leiki) og næst leikur Ran- gers við Rapid frá Vín. Um tíma lék Albert Guðmundsson með Ran- gers. STJÓRN Framhald af 16. síðu. Mikill og vaxandi áhugi er nú hjá Alþýðuflokksmönnum í Firð- lnum á félagsmálum sínum. Hafa fundir flokksfélaganna verið fjölsóttir og fjörugar um- taeður hafa farið fram um hin ýmsu mál, sem á dagskrá hafa ver- |ð hverju sinni. Þá hefur verið komið á fót spila kvöldum á vegum flokksins og hafa þau verið ákaflega vinsæl og Vel sótt. Þess skal að lokum getið, að Þórður Þórðarson, núverandi for- inaður, var kjörinn formaður Al- þýðuflokksfélags Hafnarfjarðar fyrst árið 1956, og hefur hann ver- ið formaður félagsins síðan, cn þar áður hafði hann setið í stjórn fé- lagsins um árabil. Auglýsingasíminn 14906 LLARTAU Þvol er dásamlegt til þvotta á Wash’n Wear skyrtum og yfirleytt öllu handþvegnu, sem ekki þarf að strauja. Þvol er það bezta, sem völ er á, betra en sápuspænir til þvotta á u11, silki og nælon. Þvol töfrar burt óhreinindin og skol- ast auðveldlega úr. Þvol þvær jafnt í köldu sem heitu vatni, og skýrir liti í ullartaui. Váð upp- þvott er Þvol ómissandi. Fita og önnur óhrein- indi renna af glösum og diskum, og leirtauið verður skýlaust og gljáandi. SÁPUGERÐIN FRIGG UPPÞVOTTUR Sex hundruð sóttu starfs fræðsludaginn á SeSfossi 180 vildu fræðast um flugmálin Reykjavík, 9. nóv. - GO STARFSFRÆÐSLUDAGUR var í fyrsta skipti haldinn austan- fjalls í gær, e'ða nánar tiltekið á Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri og í Ilveragerði. Á Selfossi var leiðbeint um 160 j starfsgreinar, skóla og stofnanir j og notfærðu um 600 unglingar sér | þá fræðslu, en alls munu vera um 700 nemendur í unglinga og ' framhaldsskólum á Suðurlandi. j Áhugi var mjög misjafn á starfs- ' greinunum. Eins og áður vildu flestir fræðast um flugmál, eða 180 og þar af ræddu 91 við flug- freyjuna, sem hafði mest að gera allra leiðbeinenda starfsfræðslu- dagsins. Sunnlenzkar stúlkur virtust dug- legri að afla sér fróðleiks en al- mennt gerist um stúlkur á sama ald'ursskeiði, því fyrir utan þær 91, sem spurðu um flugfreyjustörf, spurðu 55 um hjúkrun, 41 um fóstrustörf, 7 um störf gæzlu- systra, 7 um störf aðstoðarfólks á rannóknarstofuirUog 6 um tann- smíðar. Þá virðast stúlkur hafa áhuga á ýmsum öðrum greinum, t. d. íþróttakénnslu, loftskeyta- starfi, hárgreiðslu, húsmæðra- kennslu, matreiðslu og fram- reiðslustörf, löggæzlu, blaða- mennsku, garðyrkju, verzlunar- störfum og hverskonar listum. Þá spurðu 20 stúlkur um störf hús- mæðra og einnig 2 piltar! | Um störf hjá Landsíma íslands spurðu 82, en enginn leitaði upp- ! lýsinga hjá fulltrúa póstmanna. 19 ! spurðu um garðyrkju og mun það hærra hlutfall en annarsstaðar hef | ur komið fram. Um störf bænda og ' bændaskóla spurðu 29 unglingar. 1 Hvað listunum viðkemur, var greinilega meira spurt um þær I greinar sem gefa ákveðið fjárhags- öryggi, en hinar sem óvissari eru i í því tilliti. Þannig spurðu 42 um leiklist, 28 um teiknikennslu, 21 j um auglysmgateiknun og 15 um ! tízkuteiknun. Hinsvegar ekki nema 1 einn um litmálun og 1 um mynd- höggvaralist. Allmargar fræðslusýningar voru í sambandi yið starfsfræðsl- ur.a. Þannig gengust SH, SIF cg SSF fyrir sameiginlegri sýningu á Stokkseyri og frystihúsið þar Á staðnum var opið unglingunum. Þar var einnig fræðslusýning Eim skipafélags íslands og skipadeild- ar SÍS, þar sem einkennisklæddur stýrimaður fræddi drengina un* leiðir íslenzkra kaupskipa á höf- unum. Á Eyrarbakka sýndi Fiskmat rík isins og á sama stað kynnti Fiski- félagið sína starfsemi. Þar var einnig veitt fræðsla um þang og þaravinnslu. í Hveragerði var fróðleg sýning Atvinnudeildar Háskólans og Bún- aðarsambands íslands um þróun ■ landbúnaðarins. og þar var einnig ! sýning á iðnaði SÍS. Það er í fyrsta ! skipti, sem íslenzkur verksmiðju- ■ iðnaður er sýndur á starfsfræðslu- degi. Þá höfðu Veiðimálatofnunin og Samvinnuskólinn komið upp fróðlegum sýningum í Hveragerði. Þau fyrirtæki, s’em unglingarniv gátu heimsótt, voru: Ullarþvotta- stöð SÍS í Hveragerði, gróðrar- stöðin Fagrihvammur, heilsuhæli Framhald á . 10. síðu ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 12. nóv. 1964 g

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.