Alþýðublaðið - 12.11.1964, Qupperneq 10
SKIPATRYGGINGAR
á vörum í flutningl
á eigum skipverja
Heimisfpygging hentar yöur
Ábyrgðar
Veiðarfa
Aflafrygglngar
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIR"
UNDARGATA 9 REYKJAVlK SIMI 21260 SÍMNEFNt iSITRETY
SJÓNVARPSMÁL
Framhald af síðu 7.
stæður til þess að ná til hlust-.
enda um allt landið en t. d. í
Noregi. Hefur 'Landssími íslands
fengið mjög verðmæta reynslu í
þessum efnum sem sjónvarpið
getur væntanlega byggt mikið á.
Árlegur reksturskostnaður hefur
verið áætlaður frá IOV2 millj. kr.
1965 til 40% milljón kr. i’972, en
þá er einnig talinn með kostnað-
ur við fréttadagskrá og ýmislegt
sem ekki þyrfti að kosta til, ef
eingöngu væri um fræðslusjón-
varp að ræða. Hvorugar tölurnar,
stofnkostnaður kr. 180 milljónir
eða árlegur reksturskostnaður allt
að 40% milljón króna, eru neitt
fráfælandi, þegar málið er skoðað
í ljósi þess gífurlega kostnaðar
sem er við allt fræðslukerfi vort,
og ef fræðslusjónvarp gæti leitt
til einhvers verulegs sparnaðar
eða hagræðis í þeim efnum. Þetta
fyrirtæki verður eingöngu hægt
að reka sem ríkisfyrirtæki með
einkarétti um útsendingu og sýni-
lega verður ríkisútvarpið eða hljóð
varpið, sem það verður víst kall-
að, þegar sjónvarpið er byrjað, að
hagræða dagskrá sinni þannig, að
sjónvarpið geti notið sín við
kennslu. M. ö. o. hljóðvarpið verð-
ur að hætta að senda út meðan
kennsla fer fram í sjónvarpinu.
Hér vinnst ekki tími til þess að
fara ýtarlega út í það hvernig
kennsla myndi fara fram, en ýms-
ar þjóðir, einkum Svíar, Danir,
Bandaríkjamenn og Bretar, hafa
þegar náð mjög góðum árangri um
kennslu í sjónvarpi. Nauðsynlegt
er, að sjónvarpið verði í fyrstu
eingöngu fræðslusjónvarp, en þar
með er ekki sagt, að fræðslan verði
eingöngu í sambandi við skóla-
nemendur. Bændum má kenna
búskapartækni, iðnaðarmönnum
iðntækni og gildir þetta að sjálf-
sögðu um allar atvinnugreinar. Þá
má ekki gleyma konunum. Hús-
mæðrafræðsla og annað, sem kon-
ur þurfa að læra, er auðvelt að
kenna í sjónvarpi. Vel rekið
fræðslusjónvarp gæti þannig orð-
ið eins konar háskóli almennings.
íslenzkt fræðslusjónvarp myndi
nota mikið íslenzkar fræðslukvik-
myndir og þar með skapa grund-
völl fyrir íslenzkan kvikmynda-
iðnað sem væntanlega gæti feng-
ið góðan markað hjá erlendum
sjónvarpsstöðvum fyrir vel teknar
kvikmyndir af íslenzku landslagi,
lífi og þjóðháttum.
Sjónvarpið á eins og ég sagði
áður, að vera eingöngu fræðslu-
sjónvarp en ekki frétta- eða
skemmtisjónvarp, nema að því
leyti, sem sýndar yrðu við og við
erlendar og ef til vill innlendar
fréttakvikmyndir. Nú mun vera
auðvelt að fá ódýrar erlendar
fræðslukvikmyndir meira að segja
frá mörgum löndum og hægt er að
setja íslenzkan texta í tali og
prenti við þær. Það verður að
Einangrunargler
Framleitt elnungls úr trvali
fleri. — B ára ábyrgð.
Pantlð tímanlega.
Korkiðjan h.f.
Skúlagötu 57 — Sími 23200.
. 10 12- nóv- 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
sjálfsögðu nauðsynlegt til þess að
sjónvarpið fái notið sín sem
fræðslutæki, að sjónvarpsstjórn-
in leigt út tækin líkt og síminn
símatækin. Þarf leigan að vera
hófleg svo að allir sem vilja geti
leyft sér að hafa sitt eigið sjón-
varpstæki hvar sem er á landinu.
Á tæknisviði sjónvarpsins eru ár-
lega stórstígar framfarir. Nú hafa
verið fundnir upp örsmáir krist-
almagnarar eða transistorar, sem
nú eru að koma í stað útvarps-
lampanna' áður. Líklega er bezt
að taka orðið transistor strax upp
í íslenzkuna eins og t. d. metri,
þar sem þetta er orðið alþjóða-
orð. Eru þessir litlu transistorar
sem verða hlutfallslega mjög ó-
dýrir að valda byltingu á mörg-
um tæknisviðum og gildir þetta
ekki sízt um sjónvarpið og á senni
lega eftir að gera tækin miklu ó-
dýrari cn ‘þáu eru nú. Litasjón-
varp hefur verið fundið upp og
er það nú þegar í notkun víða í
Bandaríkjunum og verður vænt-
anlega tekið í notkun á Englandi
á árinu 1967. Það verður merki-
legur mælikvarði á manndóm vor
íslendinga, hvort oss tekst að taka
þetta mikla menningartæki, sjón-
varpið í þjónustu. vora öllum
landslýð til gagns og blessunar.
★ STJÓRNARSKRÁRMÁLH).
Rétt fyrir eða um síðustu alda-
mót, þegar stóð í stöðugu stappi
með stjórnarskrármálið og hvorki
gekk eða rak, mun þessi vísa hafa
verið kveðin :
Stirð er þessi stjórnarskrá,
stendur hún æ til bóta,
konunghollir ofan á
ístrubelgir fljóta.
Þó að ólíku sé saman að jafna,
baráttu íslendinga þá um rétt-
indi sín við erlenda yfirráðaþjóð
| og nú, er vér erum orðið sjálf-
stætt lýðveldi, verður því samt
ekki neitað, að nokkurs stirðleika
gætir enn um vor stjórnarskrár-
mál. Því var mjög haldið á lofti
á Alþingi eftir lýðveldisstofnun-
ina, að nú skyldi setja hinu. nýja
lýðveldi nýja stjórnarskrá. Nefnd
mun hafa verið skipuð og jafnvel
fleiri en ein, en engan sýnilegan
árangur virðist þetta hafa borið
nema hvað stjórnarskránni var
breytt til samræmis við það, að
nú var forsetinn æðsti valdsmað-
ur landsins í stað konungs áður.
Ekki má þó gleyma kjördæma-
breytingunni 1959, sem mjög
margir íslendingar voru þá og
eru ennþá óánægðir með. En
hvernig er það. er nokkur þörf
á að breyta stjórnarskránni? —
spyr.ia sumir — óg satt að segja
virðist það vera afstaða stjórn-
málaflokkanna að svo sé ekki. Eg
hygg nú samt að, ef farið væri
að hugsa alvarlega um þetta mál
og ef almenningur fengi tækifæri
til þess að tjá skoðanir sínar í
þessu máli í ræðu og riti en væri
ekki hábundinn af stjórnmála-
flokkunum, myndi margt koma
fram sem heppilegt þætti að festa
í stjórnarskrá.
Eg skal nefna nokkur atriði:
1. Efling lýðræðis en skerðing
flokksræðisins. Stjórnmálaflokk-
arnir útnefna nú raunverulega 11
af 60 þingmönnum auk þess sem
flokkarnir eða öllu heldur fámenn-
ir liópar innan þ.eirra ráða hverjir
eru í framboði í kjördæmunum án
þess að háttvirtir kjósendur fái
næsta mikið um að fjalla. Þegar
að kjördegi kemur smala stjórn-
málaflokkarnir svo kjósendunum
á réttarstað og draga þá í dilka
eins og þeir voru sauðkindur.
2. Aukið vald forseta til þess að
tryggja stöðuga ríkisstjórn. Á-
kvæði um að kjósa varaforseta.
3. Aukið sjálfforræði landshlut-
anna. Sé landinu skipt í fylki sem
fari að miklu leyti með stjórn í
eigin málum. Sé ekki verið að
tefja Alþingi með afgreiðslu mála
sein eðlilegra er að sé gert út um
heima í héraði.
4. Dómaskipan utan höfuðstað-
arins sé skipulögð í samræmi við
þarfir nútímans, en sýslurnar
lagðar niður. Þá er mikil nauðsyn
að endurskipuleggja allt sveitar-
stjórnarkerfið. Er hreppaskipu-
lagið gamla orðið úrelt og væri
réttast að nágrannahreppar kæmu
sér saman urii framtíðarskipulag
og það síðan staðfest með lögum
og jafnvel í stjórharskránni. Þó
er ef til vill mest nauðsyn á end-
urskipulagningu Borgarstjórnar-
mála Reykjavíkurborgar. Þar eru
nú t. d. 15 borgarfulltrúar eða
sama tala og var 1930, þegar íbúa
tala Reykjavíkur var 28 304. en
nú er íbúatalan um 79 000. Reykja-
vík er að verða samvaxin öðrum
bæjarfélögum og er þegar orðin
mikil nauðsyn að setja nú ákvæði
um skipulag og stjórn Stór-
Reykjavíkur.
5. Þá er það samband ríkisins
og þjóðkirkjunnar sem þörf væri
að endurskoða. Það þarf að tryggja
þegnunum fullt trúfrelsi og and-
legt frelsi og önnur mannréttindi
svo sem jafnan kosningarétt.
Ýmsir lögfræðingar halda því
fram, að ýmislegt af þvi, sem ég
hefi nefnt, eigi ekki heima í
stjórnarskránni vegna þess, hve
umsvifamikið sé að fá henni breytt
með tvennum kosningum o.s.frv.
Við þessu er einfalt ráð, nefni-
lega að ákveða í stjórnarskránni
að hún skuli endurskoðuð á um
það bil 10 ára tímabili samhliða
eðlilegum þingkosningum og séu
hafðar aðeins einar kosningar um
breytingarnar, endá skulu tillög
ur um breytingar hafa verið lagð
ar fram a.m.k. ári fyrir kosning-
ar, svo þjóðin hafi fengið nægan
tíma til þess að átta sig á þeim
1 breytingum á stjórnarskránni sem
stungið er upp á að gerðar séu.
Þá er eftir eitt stórmál og það
er endurreisn Alþingis á Þing-
völlum. Rökin fyrir því eru þessi:
. 1. Það þarf að byggja nýtt Al-
þingisbús og vistarverur fyrir þing
menn og yrði þetta sízt dýrara á
Þingvöllum, líklega allmiklu ó-
dýrara.
2. Með nútíma fjarskiptatækni
og bættum samgöngjim er sann-
anlega ekkert erfiðara fyrir þing-
menn að vinna að störfum Alþing-
is á Þingvöllum nema síður sé, á
þetta bæði við um ráðherra og
þingmenn, þ.e.a.s. nema þá þing-
menn, sem hafa þingstörfin í hjá-
verkum.
3. Með því að umskipuleggja
störf þingsins er hægðarleikur að
ljúka störfum þingsins á tíma-
bilinu frá krossmessu til jóla-
föstu, enda þótt þingmenn fái
mánaðar-sumarleyfi.
4. Það má kalla sögulega og
þjóðernislega nauðsyn að endur-
reisa Alþingi á Þingvöllum, sem
eins konar tákn vors endurheimta
þjóðveldis. Sjálfstæðisbaráttunni
er í raun réttri ekki lokið fyrr
en Alþingi hefur verið endurreist
á Þingvöllum með myndarbrag.
En hver á svo að hafa frum-
kvæðið um að koma á fót hreyf-
ingu til að breyta stjórnarskránni.
Varla Alþingi, eftir þeirri reynslu
sem fengin er af tómlæti þess í
stjórnarskrármálinu síðan lýð-
veldið var stofnað. Stungið hefur
| verið upp á því að boða til þjóð-
| fundar á Þingvöllum til þess að
I ræða þetta og fleiri áhugamál
fólksins. Vill nú ekki æskulýður
þessa lands feta í fótspor ung-
mennafélaganna .sem vöktu mikla
þjóðlega hreyfingu fyrir 50-60 ár-
um, og undirbúa, eftir að umræö-
ur hafa farið fram í héraði, þjöð-
fund á Þingvöllum eftir svo sem
þrjú ár til þess að gera samþykkt-
ir um nýja stjórnarskrá. Þurfa svo
þjóðfundarmenn að fylgja fast
eftir- samþykktum þjóðfundar um
st jórnarskrármálið í ræðu og ríti
unz svefnfólkið við Austurvöll rís
á fætur.
Landskort
Framhald úr opnu.
bis terrarum.” Verður að telja
helzt til of langt gengið, eins og
forsagan er, að eigna Guðbrandi
einum kortið, enda hefur honum
vafalaust brugðið að sjá það með
skrímslum, eldgosum og ísum,
að ekki sé minnzt á þá furðu-
rollu, sem Ortelíus prentaði um
landið á bak kortsins. Á sama
hátt væri ekki rétt að eigna Or-
telíusi einum kortið, enda gaf
liann Vedel heiðurinn af því,
sem átti þó minnst í því.
Gömul kort njöta vaxandi vin-
sælda, ekki sízt sem stofuskraut.
Ekkert þeirra er slíkt stáss sem
þetta, þótt mörg séu skrautleg
og fögur. Má búast við, að Guð-
brandur og Ortelíus muni á næst-
unni hengdir á margan stofuvegg
i nágrenni við endurprentanir
af Kjarval eða Ásgrími.
B. Gr.
Látið okkur stilla og
herða upp hýju
bifreiðina!
BlLASKOÐUN
8knii((>n M ->1111' 13-101.
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Grensásveg 18. síml 1-99-48