Alþýðublaðið - 12.11.1964, Side 13
Gósenland skáklistarinnar...
Framhald úr opnu.
af stað. Gligaric varð að láta sér
nægja 'jafntefli í skák sinni við
Mjagmarsuren frá Mongólíu, og
Sveinn tapaði fyrstu skákinni fyrir
Ribeiro frá Portugal.
Þátttökuþjóðunum 50 er skipt
niður til forkeppni í 7 iriðla. tJr
hverjum þeirra fara tvær hinar
efstu í aðalúrslitaflokk, tvær
næstu í B-flokk, þá enn tvær í
C-flokk og loks mynda D-flokk
þær, sem neðstar verða í forkeppn
inni. Þannig verða þrír flokkar
með 14 sveitum og einn með átta.
Verða því umferðirnar alls 20 hjá
flestum þjóðum.
Island lenti í 6. riðli og hefði
að óreyndu getað virzt sæmilega
vel sett þar, hvað sem á daginn
kemur.
Að vísu er þetta óhörðnuð skák
sveit eins og aldurinn segir til
um, hinn elzti að verða 25 ára
og hinn yngsti 19 ára. Gæti ég
bezt trúað að meðalaldur sveitar
okkar sé lægri en nokkurrar ann
arrar á vettvangi hér.
Bardagabræður okkar í 'S. riðli
©ru frá fjórum Ameríkuríkjum
Argentínu, Urugay, Ekvador og
Kanada, og svo frá tveim öðrum
Evrópuríkjum, Austur-Þýzkalandi
og Mónakó. Telja má öldungis
vist að þrjár fjölmennustu þjóð
Irnar verði okkur ofjarljrr, en
um röð hinna veltur meira á
heppni og óheppni.
SetningarathÖfn mótsins fór
fram í stóru leikhúsi að kvöldi
2. nóv., og voru forsætisráðherra
hjónin íslenzku þar viðstödd sem
heiðursgestir. Þar voru haldnar
nokkrar ræður í byrjun en síðan
flutt ýmis þjóðleg skemmtiatriði
Þeirra fyrst var söngur 70 skóla
barna, sem gengu syngjandi milli
áhorfendabekkja og upp á sviðið
öll klædd ljósbláum peysum og
hvítum pilsum eða buxum og báru
rauðan nellikuvönd í hendi. Þau
sungu allmörg lög, og voru þar
í hópnum eigi fáir ágætir ein-
söngvarar. Þeiíjkt söngkona af
yngri kynslóðinni söng fáein lög.
Samleikur var á tvö austurlenzk
strengjahljóðfæri, og sýnd voru
tvö afbragðs skemmtileg og þjóð-
leg dansatriði, annað um Salomon
konung og ástkonu hans drottn
inguna af Saba.
Daginn eftir hófst svo tafl-
mennskan kl. 4 síðdegis. Er aðal
lega teflt frá 4-9 dag hvern og
biðskákir kl. 9-1 árdegis, en frá
þessu eru nokkur vik, einkum
vegna þess hve sabbatsdagurinn
ef helgur haldinn.
íslendingar og Mónakómenn
lentu saman í fyrstu umferð, og
fór vel á því 'að láta tvær smá-
þjóðir reyna hesta sína, áður en
gengið yrði til móts við óvígari
l|ieri. Björn Þorstei^sHon hafði
svart gegn Casa á fyrsta borði og
beitti Sikileyjarvörn. Taflið hall
aðist kannski heldur á hann í
fyrstu en jafnaðist svo, unz Birni
varð á í messunni og tapaði manni
Tókst honum þó síðar að beita
leik, sem gaf honum mjög isterk
miðborðspeð, frí og samstæð, svo
að Casa þótti ráðlegra að láta
i Reykjavík 1957, og heitir þessi
Osvaldo að fornafni. Og það á
ekki úr að aka fyrir okkur gagn-
vart Ekvadormönnum, því að nú
tapaði Björn, tefldi ekki sem rétt
ast gegn Pirc-vörn andstæðings
ins, neyddist til að láta skipta-
mun, en er skákin fór í bið, var
nokkuð einsýnt að hverju mundi
draga. Björn gerði þó Yepez eins
erfitt fyrir og unnt var og gafst
ekki upp fyrr en eftir 63 leiki.
Á öðru borði var einnig um Pirc-
vö,rn að ræða, en nú af Trausta
hálfu. Við hann tefldi roskinn
maður hvatskeytlegur, Martinez
að nafni, og er skemmst af því að
isegja áð honum tókst með ágætri
taflmennsku að brjóta svarta lið
ið á bak iaftur á fremur skömmum
tíma, og telur Trausti þó að hann
hafi ekki leikið neina beina af-
leiki. Magnús Sólmundarson liafði
manninn aftur fyrir tvö peð og J hvítt gegn Garces, og var byrjunin
fyrir
sjálfvirk
kynditæki
fyrir
Súg-
kyndingu
aðeins
það
bezta.
jafnan fyrir-
liggjandi.
Vélsmiðja
Björns Magnússonar.
Koflavík,
sími 1737 og 1175.
var þá orðinn jöfnuður með þeim
görpum á ný. Skákin- fór í bið
og virtist öllu vandtefldari fyrir
Björji, enda fór svo að honum yfir
sást í seinni setunni og tapaði.
Eftir á kom á daginn möguleiki
til að halda jafnteflinu. Trausti
Björnsson var maður dagsins
því að hann sigraði andstæðing
sinn, Weiss að nafni, í 22 leikjum
og varð þar með fyrstur til að
ljúka skák með sigri á þessu
Ölympíumóti. Stóð skákin u.þ.b.
sjö stundarfjórðunga einungis.
Mjög var fallegur endir á skák
inni.því að Trausti lét drottningu
sína standa óvaldaða í dauðanum
og hótaði riddarmáti ef tekin
væ-.ri. Jónas ÞcfrvalcV^on tefldi
við Rometti og fékk þægilegri
stöðu nokkuð fljótt. í 2(1. leik
fórnaði hann riddara fyrir peð
og hugðist fá mann í staðinn inn
ian stundar, en Rometti átti þá
völ á snotrum riddaraleik, sem
breytti útreikningum Jónasar þann
ig að hann lét skiptamun fyrir
peðið sem hann tók. Tíu.leikjum
síðar fór nú svo, að Jónas náði
skiptamuninum 'aftur og hafði
áfram peð umfram hinn, en eng
in leið var að gera sér mat úr
því, þar eð biskupar voru mis-
litir. Jafntefli var samið eftir 52
leiki án þess að skákin færi í bið
Hjá Jóni Kristinssyni varð heldur
hagstæðara tafl upp úr byrjun
inni heldur en hjá mótherjanum
Des Lauriges, en lionum gekk
samt crfiðlega að gera vinnings
áætlun, og virtist helzt sem þar
yrði jafntefli, þegar ekki voru
eftir nema tveir menn hjá hvorum
Fór skákin í bið og við rannsókn
kom á daginn að Jón hafði bezta
biðleikinn og átti völ á öðrum
leik, sem leyndi mikið á sér. Má
vera að andstæðingurinn hafi
ekki gert ráð fyrir honum. —
Varð hann að gefa annan manna
sinna til að forða máti og mátti
leggja niður vopn nokkru síðar.
Höfðum við þá unnið Mónakó-
menn með 2Vz gegn ll/^. Önnur
únslit í riðllinum: Argejntína 3
Ekvador 1, Kanada 2Vé Austur
Þýzkaland 11/2- Urugay sat yfir.
Svo kom önnur umferð og þá
fengum við Ekvadorbúa <and-
spænis okkur. Björn tefldi við
annan Yepez-bræðranna, sem þátt
tóku í alþjóðamóti stúdenta heima
þegið drottningarbragð. Var skák
in í jafnvægi lengstum en þó ofur
lítið hagstæðari Magnúsi, 'að því
er virtist. Eftir að kóngsstaðan
hans hafði olrðið fyrir nokkru
skakkafalli, stakk Magnús upp á
jafntefli, en hinn vildi fá að sjá
næsta leik, áður en hann tæki
boðinu. Brá Garces sér að því
búnu til fyrirliða sveitar sinnar,
sem féllst á jafntefli, en á meðan
tók Magnús að hugsa sitt ráð og
sýndist hann ná sóknarfærum,
svo 'að hann var ekki lengur til
viðtals um jafnteflið. Því miður
reyndist þetta vera ofmat á stöð
unni, sem þróaðist smám saman
hinum í vil. Skákin fór í bið en
tapaðist Magnúsi í seinni setunni
Bragi Kristjánsson beitti hol-
lenzkri vörn gegn Ottati og fékk
brátt góð sóknarfæri, enda tefldi
hinn veikt í upphafi. Náði hann
skiptamun og peði gaf hinum kost
á biskupi en hóbaði um leið mjög
fallegu tveggja riddara máti, og
varð upp úf: þessú óstöðvanídi
sókn. Hvítur gafst upp eftir 38
leiki. Úrslit í okkar riðli: Ekva
dor 3 ísland 1, Urugay 2 Mónakó
2, Argentína og Austur-Þýzkaland
er enn óútkljáð, því að tvær skák
ir fóru í bið. Argentína hefur unn
ið eina skák, en jafntefli varð hjá
einustu stórmeisturum okkar rið
ils, þeim Eliskases og Uhlmanni.
Gegn A.-Þjóðverjum gekk okk
ur liörmulega illa 1 3. umferð.
Þremur skákum lauk í fyrstu setu
og öllum með tapi. Hin fjórða
fór í bið, en er að heita má von-
laus fyrir okkur. Björn fékk frí
og lenti því Trausti á móti Uhl-
manni, sem náði betri tökum
strax í byrjun að segja má. Svo
tapaðist honum maður og staða
hans féll saman. Uppgjöf eftir
30 leiki. Jónas hafði hvítt gegn
Malich og lét ekki sinn hlut eftir
liggja framan af. Svo tók liann
sig til og fórnaði manni til að ná
kóngssókn, og mátti Malich gæta
sín, en hann fann bezta svar.
Jónas var ekki að sama skapi
fundvís á góðs, framlhaldsleiki,
enda tímalítill orðinn, og svo fór
að klukkuvísir hans féll í von-
lítilli stöðu. í nótt sem leið
dreymdi svo Jónas, hvernig hann
hefði getað unnið eða náð þrá-
skák a.m.k., svo að fórnin átti þá
rétt á sér þrátt fyrir allt. Skák
Jóns og Fuchs var mikil þæfings
skák lengst framan af, en Það
háði Jóni óneitanlega að þurfa að
binda drottningu og hrók við að
valda einstætt peð. Hann reyndi
þá að sprengja upp á kóngsvæng,
og var það sjálfsagt rétt eins og
á stóð, því iað báðir voru tíma
Qitlir orðnir, en síðasta leiknum
fyrir biðina lék Jón ekki sem ná-
kvæmast, svo að útlitið er slæmt
um framhaldið síðdegis í dag.
Bragi, sem er veQ, að sér um byrj
anir, tefldi bókleiki framan af, en
þar kom að andstæðingurinn,
Möhring, sá sér færi á að fórna
skiptamun og láta síðan fylgja
svo þrumandi riddaraleik, að eftir
það varð engri vörn við komið.
Eftirtekjan verður því rýr úr
þriðju umferð, líklega hritfgur
með gati. Hjá hinum sveitum rið
ilsins fór talsvert af skákum í
bið, og því verða úrslit þriðju
umferðar ekki irakin í þessu bréfi
Það er sólskin og sunnanvindur
í ísrael þessa dagana, og andrúms
loftið á Ólympíuskákmótinu er
líka með ágætum undir kjörorði
alþjóðasambands skákmanna
„Gens una sumus“: Við erum all
ir eitt.
Föstudaginn 6. nóv. 1964
Baldur Pálmason.
stæði KÁ. Margir bílar voru í
stöðugum flutnlngum milli þess-
ara staða.
Gestir dagsins voru Ingólfur
Jónsson landbúnaðarráðherra, Að-
alsteinn Eiríksson námstjóri, og
Svérrir Júlíusson formaður LÍU.
í framkvæmdanefnd dagsins
voru þessir menn: Árni Stefáns-
son skólastjóri, Bjarni Pálsson
skólastjóri, Valgarð Runólfsson
skólastjóri, sem var formaður
nefndarinnar. Framkvæmdastjóri
dagsins var Ólafur Gunnarsson
sálfræðingur, en fjáröflunarmaður
var Óskar Magnússon kennari á
Eyrarbakka.
Starfsfræðsludagur
Framhald af 5. síðu
NLFÍ, Prentsmiðja Suðurlands,
Mjólkurbú Flóamanna og verk-
Viðræður
Frh. af 1. síðu.
m. k. Eftir því sem bezt er vitað
reynir Sjú En Læ nú að finna nýj-
an grundvöll fyrir hugsjónavið-
ræður kínverskra og sovézkra
kommúnista. Sum sovézku blöðin
fluttu í dag stuttar fréttir um
fundi toppkommanna en ekki
minntust þau einu orði á fund Sjú
En Læ og Bresjnev. Talið er að
viðræður þeirra Bresjnev og Sjú
En Læ einkum að því tvennu aS
komast að samkomulagi um það
hvort eða hvenær hugsjónafræð-
ingar þeirra eiga að hittast aftur
til viðræðna eftir 18 mánaða hlé,
sem nú er orðið. Hitt atriðið er að
hve víðtækri undirbúningsráð-
stefnu í desember sovézki flokk-
urinn eigi að stefna.
Auglýsing frá Póst- og
símamálastjórninni
EVRÓPUMERKI1965
Hér með er auglýst eftir tillögum að Evrópufrímerki 1965.
Tillögui’nar sendist póst- og símámálastjói’ninni fyrir
1. janúar 1965 og skulu þær merktar dulnefni, en nafn
'höfundar fylgja með í lokuðu umslagi.
Póst- og símamálastjórnin mun velja úr eina eða tvær
tillögur og senda hinni sérstöku dómnefnd Evrópusam-
ráðs póst og síma CEPT, en hún velur endaixlega hvaða
tillaga skuli hljóta verðlaun og verða notuð fyrir frí-
merkið.
Fyrir þá tillögu, sem notuð verður, mun listamaðurinn
fá andvirði 2.500 gullfi’anka eða kr. 35.125,00.
Væntanlegum þátttakendum til leiðbeiningar, skal eftir
farandi tekið fram:
1. Stærð frímerkisins skal vera sú sama eða svipuð og
fyrx’i íslenzkra Evrópufrímerkja (26x36 mm) og skal
framlögð tillöguteikning vera sex sinnum stærri á
hvern veg.
2. Auk nafns landsins og verðgildis skal orðið EUROPA
standa á frímerkinu. Stafirnir CEPT (hin opinbera
skammstöfun samráðsins) ættu sömuleiðist að standa.
3. Tillöguteikningarnar mega ekki sýna neins konar
landakort.
4. Heimilt er að leggja fram tillögur, sem kunna að hafa
verið lagðar fram áður.
Reykjavík, 11. nóvember 1964.
Póst- og símamálastjórnin.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. nóv. 1964 13