Alþýðublaðið - 18.11.1964, Page 1
Kristinn Armannsson, rektor
Menntaskólans í Reykjavík í einni
af hinum nýju kennslustofum
skólans. Mynd: OÓ.
Bálför Ólafs
Friðrikssonar
fer fram í dag
Bálför Ólafs Friðrikssonar fer fram í dag kl. 10t30 frá Foss-
vosrskapellunni. Séra Þorsteinn Björnsson flytur minningarræS-
una. Sjómannafélag Reykjavíkur, Vei-kamannafélagrið Dagrsbrún
og Alþýðusamband íslands sjá um útförina. — Alþýðublaðið
minnist hins fallna brautryðjanda með minningargreinum á bls.
7, 8, 9 ogr 10 í dagr.
Skrifstofur Alþýðublaðsins verða lokaðar frá kl. 10 ■— 12
f. h. en skrifstofur Alþýðuflokksins allan daglnn.
{Mmm
44. árg. — Miffvikudagur 18. nóvember 1964 — 255. tbl.
Forseti kjörinn og
nefndir skipaðar
Reykjavík, 17. nóv. -— EG.
Á ÞINGI ASÍ í dag fór fram
kjör forseta og annarra embættis
Myndin er tekin á þingri ASÍ í gærdag er embættismenn þingsins höfðu verið kjömir. Talið frá
vinstri eru á myndinni Björn Jónsson, forseti þingsins, Óskar Jónsson, fyrsti varaforseti, Hannibal Valdi
marsson, forseti ASÍ, Jón Sn. Þorleifsson, annar va raforseti, og þá þrír rltarar, Björgvin Brynjólfsson,
Sigurjón Pétursson og Jón Bjarnason. Einn ritarinn, Tryggrva Emiisson vantar á myndina. Mynd: JV.
Kennsla hafin í viðbótar-
byggingu Menntaskólans
Reykjavík, 17. nóv. — OÓ.
Rektor Menntaskólans í Reykja-
vík, Kristinn Ármannsson, bauð í
dag nokkrum gestum, þar á meðal
biáðamönnum, að skoða hið nýja
viðbótarhúsnæði skólans við Amt-
mannsstíg. Byggingin er enn ekki
fullgerð, þó er byrjaö að kenna í
nekkrum hluta hennar og verður
hún tekin í notkun smátt og smátt,
eftir því sem verkinu miðar, og
verða allar skólastofur þar komn-
ar í gagnið síðar í vetur.
Þetta nýja skólahús er kjallarl
og tvær hæðir. Stærð þess er
5000 rúmmetrar, eða talavert
stærra en gamla skólahúsið.
í nýbyggingunni er sérstaklega
gert ráð fyrir kennslu í sérgrein-
um, þ. e. náttúrufræðigreinum, —
efnafræði, eðlisfræði og tungumál
um, 'þar sem miðað er
við að nota tæki til kennslunnar.
Kennslustofurnar eru yfirleitt
stórar, sumar hehmingi stærri en i
gamla skólahúsinu, þar sem kenn-
sla í þeim greinum sem þar verða
kenndar fer að mestu fram sem
verklegar æfingar við sérstaklega
gerð vinnuborð. í þeim stofum
sem ætlaðar eru fyrir kennslu í
eðlisfræði, efnafræði og náttúru-
fræði er leitt vatn, gas og rafmagn,
í öll borð nemenda, allt eftir því
hvaða greinar v.erða kenndar í
viðkomandi kennslustófum. í nán-
um tengslum við kennslustofumar
eru geymslur fyrir kennslutæki
og áhöld og jafnframt vinnuher-
bergi fyrir kennara. Tvær stofur
eru með upphækkuðum sætum,
önnur fyrir rúmlega 50 netoend-
ur, liin fyrir 27 neraendur. í stof-
um þeim, sem ætlaðar eru fyrir
tungumálakennslu, er gert ráð fyr-
ir að koma fyrir tækjum til mála
kcnnslu. Þar verður einnig bóka-
. Framh. a bi.s. 4
manna þingsins. Þá fór einnig
fram nefndakjör, afgreidd voru
nokkur kjörbréf og forseti ASÍ
ræddi starf samtakanna sl. tvö
ár. Framkvæmdastjóri las reikn
inga samtakanna og voru síðan um
ræður um skýrsluna og reikningr-
ana.
Þingfundur ASÍ hófst klukkan
tvö eftir hádegi í dag. Voru fyrst
samþykkt fjögur kjörbróf fyrir
fulltrúa Verkakvennafélags Kefla
víkur og Njarðvíkur og Verkalýðs
og sjómannafélag Stöðvarfjarðar
Að því búnu var gengið til forseta
kjörs.
Forseti þingsins var kjörinn
Björn Jónsson, Akureyri, með
198 atkvæðum. Eggert G. Þor-
steinsson, Reykjavík, hlaut 156 at
kvæði, auðir seðlar voru 2 og.
einn ógildur. Fyrsti varaforseti
þingsins var kjörinn Óskar Jóns-
son, Selfossi, og annar varaforseti
Jón Snorri Þorleifsson, Reykja-
vík. Þá voru kjörnir fjórir þingrit
arar, Tryggvi Emilsson, Reykja-
vík, Sígurjón Pétursson, Reykja
vík, Jón Bjarnason, Selfossi og
Björgvin Brynjóifsson, Skaga
strönd.
Sami háttur var hafður á um
nefndaskipan og nefndakjör á síð
asta þingi, og er skýrt frá nefnda
skipan á öðrum stað í blaðinu.
Forseti ASÍ, Hanni'bal Valdi-
marsson, tók því næst til máls og
fór nokkrum orðum um skýrslu
sambandsins, sem dreift var prent
aðri meðal fulltrúa í þingbyrjun.
Rakti hann kjarabaráttu ASÍ 1 fá
Framh. á 4. slðu. .
1 /
alþýðu er á
næsta leiti
Reykjavík, 17. nóv. EG.
HANNIBAL Valdimarssoa
skýrði svo frá á þingi ASÍ s dag,
að stofnfundur Sparisjóðs alþýðtt
í Reykjavík og nágrenni yrði
væntanlega haldinn fljótlega eft
ir að Alþýðusambandsþingri lyki.
Sagði Hannibal, að undirbún-
ingur málsins hefði staðið yfir
nokkra hríð, en nefnd var kjör-
in til að vinna að málinu skömmu
Frambald a iiöu «
tHMHHHHHWMMUMMMMHIHHMMMIMMMHMMiMMtV
Börn og unglingar nota sér nú i ríkum mæli skautasvellið
á Tjörninni þótt kalt- sé í veðri og norðauáttin nöpur. Þessi
unga stúlka var að búast til að setja á sig skauta sína, þegar
ljósmyndara blaðsins bar að. Mynd: JV.