Alþýðublaðið - 18.11.1964, Page 3
Fræðslufundur
Kvenfélagsins
Kvenfélag- Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík heldur
fræðslufund í kvöld klukkan
8,30 í Félagsheimili prent-
ara, Hverfisgötu 21. Ilalldór
J Hansen yngri, læknir, flytur
erindi um heilsugæzlu, cink-
um barna og mæðra. Ýmis
félagsmál verða einnig tii
umræðu á fundinum. Konur
eru beðnar að fjölmenna,
og taka með sér gesti.
MMMtMMMtMMMMMMttM*
Vopnasala til S
Afríku bönnuð
London, 17. nóv. (\TB-Reuter). j
Harold Wilson forsætisráð-
herra Bretlands tilkynnti í neðri.
málstofu brezka þingsins í dag, I
að stjórnin hefði ákveðið að banna ,
sölu vopna til Suður-Afríku, —
Samningur um afhendingu 16
Buccaneer-sprengjuflugvéla til i
Suður-Afríku er nú til endur-
skoðunar, sagði hann.
TT-
FRETTIR I STUTTU MALI
1
Róm. ítalskir tollgæzlumenn
fundu í dag mann nokkurn sam-
ankipraðan og meðvitundarlaus-
an í kassa einum á tollstöðinni
í Róm. Utan á kassanum stóð, að
innihald hans væri liljóðfæri. Á-
fangastaður kassans var borg í
Miðausturlöndum. Tollþjónarnir
heyrðu stunur úr kassanum rétt
áður en skipa átti honum um
borð í flugvél. Málið er í rann-
sókn.
Bonn: Bændasamtök Vestur-
Þýzkalands hafa tilkynnt að þau
muni taka upp harða stjórnmála
baráttu við ríkisstjórn Erhard
kanzlara ef stjórriin láti hafa sig
til að samþykkja lækkun á vest-
ur þýzku korn. Er óttast að það
verði gert í samningaviðræðunum í
Brussel þar sem samið er nú um
sameiginlegt verð á korni fyrir
Efnahagsbandalagið.
Brussel: Ráðherranefnd Efna-
hagsbandalagsins hefur orðið að
gefast upp við það að sirini að
ná einingu um sameiginlegt korn
verð. Hljóðið í fundarmönnum í
dag var þó betra en nokkru sinni
fyrr. Er því talin von til þess að
samkomulag takizt á fundinum í
desember.
Forsætisráðherrann tilkynnti,
að ekki hefði verið gefin út nein
vopnaútflutningsleyfi til Suður-
Afriku síðan verkamannaflokks-
stjórnin kom til valda. Þeir samn
ingar verða uppfylltir sem nú eru
í framkvæmd en engir nýir gerð-
ir. Ennfremur verða öll þau inn-
flutningsleyfi innkölluð sem enn
hafa ekki verið notuð, þó að fyrr-
nefndum samningum undanskild-
um. Útflutningsbannið nær einn-
ig til veiði og íþróttavopna.
íhaldsmaðurinn Peter Thorney
croft, sem var varnarmálaráð-
herra í ríkisstjórn Alec Douglas-
Home, réðst á forsætisráðherrann
vegna yfirlýsingar hans, einkum
að því er varðaði útflutninginn
á flugvélunum. Forsætisráðherr-
ann endurtók þá yfirlýsingu sína
um að það mál væri til athugun-
ar og kvaðst hann myndu gefa
neðri málstofunni skýrslu um ár-
angur þeirrar endurskoðunar er
henni væri lokið.
í París tiikynnti varnarmála-
ráðuneytið að því væri ekki kunn
ugt' um að beiðni hefði borizt til
Frakkiands frá ríkisstjórn S.-
Afríku um kaup á 30 sprengju-
flugvélum af Mirage 5 gerð í stað
brezku vélanna.
Kristianssund: Hollensk herþota
hrapaði í hafið hér rétt fyrir utan
um miðjan dag í dag eftir að hún
hafði flogið góða stund með sjálf
stjórnartækjum vegna þess að
flugmaðurinn var meðvitundar-
laus eða látinn. Þota þessi var á
æfingaflugi. Norskir flugmenn er
fylgdust með öllu þessu tilkynntu
að önnur hollensk herþota hefði
orðið að snúa við vegna eldsneyt-
isskorts en ekki mun henni hafa
tekizt að komast heilu og höldnu
til heimahafnar.
NEFNDAKJÖR
Á ÞINGI ASf
*wmwmmmWMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMWMM»
/ /■
SYNINGAJARN
SMÍÐAVÉLUM
Reykjavík, 17. nóv. ÓTJ.
MIKIL sýning á járn-
smíðavélum stendur nú yfir
í húsakynnum Sigurðar
Sveinbjörnssonar við Skúla-
tún 6. Er það fyrirtækið G.
Þorsteinsson og Johnson
sem heldur sýninguna.
Vélar þessar eru frá
þýzka fyrirtækinu WMW
sem er samsteypa margra
verksmiöja. í stuttu ávarpi
til gesta og frétlamanna
sagði Garðar Þorsteinsson
að íslcnzka nafnið „járn-
smíðavélar” skýrði eiginlega
ekki nógu vel hlutverk
þeirra. Járnsmíðavélar væru
undirstaða alls iðnaðar, því
að án þeirra yrðu ekki
byggðar neinar aðrar vélar.
Sýning þessi verður opin
frá kl. 1-8, fram á sunnudag,
að honmn meðtöldum. Á
myndinni sjást nokkrir gest-
ir vera að skoöa vélarnar.
Mynd: JV.
Rej'kjavík, 17. nóv. — EG.
í DAG var kjörið í nefndir á
þingi Alþýðusambands íslands. —
Þingnefndir eru þannig skipaðar:
Verkalýðs- og atvinnumálanefnd:
Eðvarð Sigurðsson, Rv.
Tryggvi Helgason, Ak.
Björn Jónsson, Ak.
Sturla Sæmundsson, Ak.
Snorri Gunnlaugsson, Patr.
Björgvin Jónsson, Skagastr.
Björgvin Sighvatsson, ísafirði.
Elínbergur Sveinsson, Ólafsvík
Jón Sigurðsson, Rv.
Guðbjörn Sigurðsson, Rv.
Sverrir Hermannsson, Rv.
Trygginga- og öryggismálanefnd:
Hermann Guðmundsson, Hafn.
Kristin Ág. Eiríksson, Rv.
Baldur Svanlaugsson, Ak.
Ásbjörn Pálsson, Rv.
Jóhanna Egilsdóttir, Rv.
Pétur Sigurðsson, ísafirði
Kristján Jóhannsson, Sjóm, Rv.
Fræðslunefnd:
Björgúlfur Sigurðsson, Rv.
Tryggvi Emilsson, Rv.
Karvel Pálmason, Bol.
Hrafn Sveinbjamarson, Hall.
Jón H. Guðmundsson, ísafirði
Pétur Stefánsson, Rv.
Gunnar S. Guðmundsson, Hafn.
Skipulags- og laganefnd:
Snorri Jónsson, Rv.
Björgvin Sigurðsson, Stokkseyri
Einar Ögmundsson, Rv.
Jón Snorri Þorleifsson, Rv.
Guðm. Björnsson, Stöðvarfirði
Óskar Hallgrímsson, Rv.
Jóna Guðjónsdóttir, Rv.
Magnús L. Sveinsson, Rv.
Einar Jónsson, Rv.
Fjárliagsnefnd:
Einar Ögmundsson, Rv.
, Kristján Jóhannsson, Dagsbrún
Sigurfinnur Karlsson, Nesk.st.
Sveinn Gamalíelsson, Kópav.
Óskar Hallgrímsson, Rv.
Bergsteinn Guðjónsson, Rv.
Björn Þórhallsson, Rv.
Allsherjarnefnd:
Sigurður Stcfánsson, Vestm.
Hulda Sigurbjörnsdóttir, S.kr.
Pétur Pétursson, ísafirði
Guðm. J. Guðm. Rv.
Sig. Jóhannsson, Ak.
Pétur Krjstjánssori, Kópav.
Eggert G. Þorsteinsson, Rv.
Þórunn Valdimarsdóttir, Rv.
Sigurrós Sveinsdóttir, Hafn.
Einar Magnússon, Akranesi
Bjarni Guðbrandsson, Rv.
k.
KULDAÚLPUR
skinnfóðraðar
Kuldajakkar
vattfóðraðir m/prjóna-
kraga
Ullarpeysur
Ullarnærföt
Ullartreflar
Ullarleistar
UHarvettlingar
Vinnuskyrtur
Mlslitar kr. 125,00
Klossar, fóðraðir
Klossar, ófóðraðir, —
kvenn- og karlmanna-
stærðir.
Gúmmístígvél
Gúmmívinnuskór
Gúmmíbomsur
Sandalar með trésóla
Sjófatnaður
Regnfatnaður
Vinnuhanzkar
fjölbreytt úrval
Olíuofnar
Lampar
Gaslugtir
Lampar úr smíðajárni
Arinsett
Fýsibelgir
Kopar-luktir
margar gerðir
Vasaljós
í fjölbreyttu úrvali
Ljóskastarar
með rafhlöðu
Verzlun
0. ELLINGSEN
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 18. nóv. 1964 3