Alþýðublaðið - 18.11.1964, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 18.11.1964, Qupperneq 7
V TIL MINNINGAR UM ÓLÁF FRIÐRIKSSON X dag veiður til moldar bor- inn brautryðjandinn, baráttu- maðurinn og rithöfundurinn Ólafur Friðriksson. Með fráfalli Ólafs er í val- inn fallinn sá maður er íslensk alþýða og verkalýðshreyfing á einna mest að þakka, að mörg um þeim öðrum ógleymdum er brautina ruddu. Ólafur var fæddur á Eski firði 16. ágúst 1886 og var því fullra 78 ára er hann féll frá 12. þ.m. en hann hafði við vanheilsu búið nokkur hin síð ustu ár. Ólafur var einn af þeim fáu unglingum síns tíma, er fékk að njóta skólamenntunar. Hann lauk gagnfræðaprófi á Akureyri vorið 1903 en fór svo þrem árum sjðar til Kaup- mannahafnar og var þar við nám og ritstörf í átta ár eða til 1^14, að hann kom heim fullur æskuþrótti og eldmóði jafnaðarstefnunnar sem hann hafði kynnzt í Kaupmanna- höfn og hrifizt af. Ólafur Friðriksson var ekki einn af þeim er grófu pund sitt í jörðu. Þegar heim kom, tók hann strax til starfa. Á Akur eyri, en þar átti hann heima, stofnaði hann jafnaðarmanna- félag liið fyrsta hér á landi og útgáfu blaðsins „Dagsbrún“ réðst hann í til þess að ná betur til manna um boðskap sinn, jafnaðarstefnuna. Á þessum árum 1914 - 15 var talsvert að togaramönnum þrengt. Vökulög voru þá engin til og, var mönnum þá stórlegn ofþjakað með vökum og vinnu, auk þess sem kjörin voru slæm og versnandi. Sumarið 1915 vaknaði áhugi manna fyrir stofnun sjómanna félags, til þess í gegnum það að vinna sér aukin réttindi og kjarabætur og -átti Ólafur Friðriksson auk Jóns Guðna- sonar . og Jónasar Jónssonar frá Hriflu stærsta báttinn í að það skyldi takast, en Há- setafélag Reykjavíkur (nú Sjó mannafélag Reykjavíkur) var stofnað 23. okt. 1915. Ólafur var strax kosinn í stjórn fél agsins, tvö fyrstu árin var hann ritari þess og svo síðar, eða 1928 - 50 varaformaður auk þess sem hann gegndi ýmsum öðrum störfum í þágu þess. Ahuga og starfsþreki Ólafs vo.ru engin takmörk sett. Hann átti stærsta þáttinn í stofnun Aþýðuflokksins og AJþýðusam bandsins árið 1913 og varð fyrsti ritstjóri Alþýðublaðsins 10(19. í stjórn vmf. Dagsbrún átti hann sæti í nokkur ár jafnframt þvi að vera í stjórn Sjómannafélagsins. í bæjar- stjórn Reykjavíkur var hann fulltrúi Alþýðuflokksins um tveggja áratuga skeið. Hér er aðeins fárra þátta getið í hinni miklu og merkilegu lífssögu Ölafs Friðrikssonar. sem sann arlega er samtvinnuð sögu ís- l.enzku þjóðtarinnár á þessu tímabili framfara, aukinnar mannúðar og menningar. Ég er þessar línur rita átti því láni að fagna að starfa með Ölafi Friðrikssyni í stjórn Sjómannafáilags Reykjavíkur í Alþýðusambandinu og Álþýðu flokknum og' hefi honum mik ið að þakka. Sjómannastétlin svo og öll alþýðan á honum þakkarskuld að gjalda er bezt verður af hendi leyst og Ólafi mest að skapi með því að halda hátt á lofti merki því er hann hóf fyrir réttum fimmtíu árum, er hann kom aftur heim til lands ins að námi loknu. Persónulega og fyrir hönd sjómanna færi ég Ólafi þakk ir fyrir ómetanleg störf hans og votta syni hans og öðrum aðstandendum samúð. Þótt Ölafur Friðriksson sé nú horfinn, farinn þá leið er við öll eigum fyrir höndum, mun minning hans lengi Iifa með íslenzkri þjóð. Jón Sigurðsson stofnaði hann þar jafnaðar- mannafélag, hið fyrsta á ís- landi, en jafnaðarstefnunni hafði Olafur kynnzt í Dan- mörku og var sannfærður um, að hún ætti mikið og nauðsyn- legt erindi til íslendinga Hann kom því einnig til leið- ar, að verkamannafélagið á Akureyri hafði sérstakan lista í kjöri við bæjárstjórnarkosn- ingar þar í janúar 1915 og bar sigur úr býtum. Til Reykjavíkur fluttist Ólaf- ur vorið 1915 og átti þar heima síðan. Varð þess skjótt vart, að nýr maður með nýjar hugsjónir var kominn í bæinn. Hann hóf þegar útgáfu á litlu blaði, Ðags- brún, og var sjálfur ritstjóri þess. Hann átti mikinn þátt í, að Hásetafélag Reykjavíkur (síðar Sjómannafélag Reykja- víkur) var stofnað 1915 og átti sæti í fyrstu stjórn þess. Hann hefur sjálfur lýst erindi sínu til höfuðborgarinnar með þess- um orðum: „Ég kom til þess að sann- færa íslendinga um, að nauð- synlegt væri, að þeir tækju upp að minnsta kosti að nokkru leyti fyrirkomulag jafnaðar- stefnunnar”. Fyrir þessu barðist Ólafur Friðriksson á margan veg. Hann vann að eflingu félagssamtaka, bæði fræðilegra félaga jafnað- armanna og stéttarfélaga. Und- ÓLAFUR Friðriksson ritstjóri var fæddtir á Eskifirði 16. ágúst 1886. Foreldrar hans voru Frið- rik Möller kaupmaður og póst- afgreiðslumaður þar, siðar póst- meistari á Akureyri, og kona hans Ragnheiður, dóttir Jóns Ólafssonar bónda á Helgavatni í Vatnsdal. Er föðurætt Ólafs dönsk að langfeðgatali, en hafði flutzt hingað til lands um aldamótin 1800 eða fyrr, en giftir voru þeir frændur ís- lenzkum konum. Föðurmóðir Ólafs Friðrikssonar var til dæm is að taka Margrét, dóttir séra Jóns Jónssonar á Grenjaðar- stað og systir þeirra Björns Jónssonar, ritstjóra Norðan fara, og Guðnýjar Jónsdóttur skáldkonu, ömmu Haralds pró- fessors Níelssonar. Ólafur ólst upp með foreldr- um sínum á Eskifirði fram yfir aldamót. Þá fluttist hann til Akureyrar til systur sinnar, sem þar var gift. Hann lauk gagnfræðaprófi á Akureyri vorið 1903. Árið 1906 fór hann til útlanda og dvaldist þar í átta ár við nám og ritstörf, lengst af í Kaupmannahöfn, en fór þó miklu víðar um. Hann las ákaflega margt á þessum ár- um og gerðist fjölfróður maður og prýðilega menntaður. Heim til Akureyrar kom Ól- afur sumarið 1914 og dvaldist þar þangað til vorið eftir. Þá ir stjórn hans lenti Sjómanna- félag Reykjavíkur í verkfalli 1916, einhverju harðasta verk- falli, sem það hefur staðið í. — Ólafur átti sæti í stjórn fé- lagsins 1915-17 og 1928-50, lengstum varaformaður. í stjórn Dagsbrúnar var hann ár- in 1928-32, en í báðum þessum félögum starfaði hann geysi- Ólafur Friðriks son flytur ræðu, mikið, hafði drjúg áhrif á stefnu þeirra og markaði djúp spor í hugsunarhátt einstakra félagsmanna. Ólafur átti góðan þátt í, að Alþýðusamband íslands var stofnað 1916 og átti sæti í stjórn þess 1916-24 og aftur 1930-32. Sama ár var Alþýðu flokkurinn stofnaður til þess að hefja og halda uppi sókn á stjórnmálasviðinu fyrir bættum hag almennings í anda jafnaðar stefnunnar. Hafði Ólafur Frið- riksson áður beitt sér fyrir beinni þátttöku verkamanna í kosningum, eins og vikið var að hér að framan. Nú var sú sókn hert víða um land. í Reykjavíic Framhald á 10. síðu ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 18. nóv. 1964 J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.