Alþýðublaðið - 18.11.1964, Page 10
í';
Ölafur Friðriksson
Hann kom þegar
þörfin var mesf,..
Framhald úr opnu.
an þátt í deilum og átti stund-
um upptök að þeim, en það var
einna líkast því, sem hann liti
á þær sem umræður, leik, sem
styrkti samheldnina í barátt-
unni, en gáetu ekki orðið til
sundrungar eða vinslita. Þá
varð hann oft fyrir vonbrigð-
um.
V.
Eldri Reykvíkingar muna
fundahöld fyrri tíma. Þá voru
allir stórfundir haldnir í Bár-
unni og þaðan man ég Ólaf
Friðriksson bezt sem funda-
mann. Hann gekk alltaf fremst-
ur. 'í átök'um. Hann gekk aldrei
settum ákveðnum skrefum upp
að ræðupúltinu heldur stökk
hann þangað, sneri sér strax að
umræðuefninu og slöngvaði
slagorðunum yfir fundarmenn.
Það þýddi ekkert fyrir andstæð
ingana, að ætla sér að slá hann
út af laginu með því að kalla
fram í fyrir honum, því að taf-
arlaust, svaraði hann fyrir sig á
þann hátt, að sá sem kallaði
varð að athlægi. Þá greip hann
stundum til orðaleikja. Eins og
þegar einn helzti íhaldsjaxlinn,
sem aldrei hafði dyfið hendi í
halt vatn, kallaði fyrirspurn til
hans um málefnið sem um var
rætt og Ólafur lét sig hafa það
að kalla á móti: „Snáfaðu niður
á eyri”. — Og Báran nötraði af
hlátri, því að engum hafði til
hugar komið, að slíkur maður
gæti nokkuð unnið að gagni
niður á eyri.
Ég held að mér skjátlist ekki,
að öll fyrstu árin hafi Ólafur
verið á fundum á hverju ein-
asta kvöldi. Þá voru fundir
félaganna baráttufundir, og
alltaf var Ólafur helzti ræðu-
maðurinn. Fólkið kom til Ól-
afs og sagði: „Við þurfum að
halda fund“. „Já”. sagði Ólafur.
„Hann verður að vera annað
kvöld, og þú verður að tala“.
„Já”, sagði Ólafur, „um eitt-
hvað sérstakt?” „Já, við þurfum
að segja upp samningum”. „Já”,
sagði Ólafur. Svo auglýstu
menn fundinn, gengu frá fund-
arhúsinu — og svo kom Ólafur
þjótandi, stökk upp á ræðupall
og talaði eld í fólkið. Ég man
ekki til þess, að Ólafur væri í
samninganefnd. Það getur þó
verið, að hann hafi einstaka
sinnum átt sæti við samninga-
borð andspænis útgerðarmönn-
um, en hann var ekki lagaður
fyrir slíka fundi, undi sér þar
ekki og leiddist þeir. Hins veg-
ar var hann alltaf harðastur
allra manna í kaupdeilum, sam-
þykkti síðastur tilboð, gekk
alltaf lengst í kröfum. Hann
reiddist illa að því er virtist,
ef einhver dró úr eða taldi
deilu tapaða.
Einu sinni áttu verkakon-
ur í harðvítugri deilu og Dags-
brún lenti í henni líka. Á smá-
fundi hvatti ég til samninga ef
unnt væri, taldi aðstöðu verka-
kvenna erfiða, vildi reyna að
semja, en fara síðan aftur ðf
stað að ári. Ólafur réðst harka-
lega á móti þessu, og verkfall-
inu var haldið áfram. Daginn
eftir tók Ólafur mig afsíðis,
vildi tala við mig einslega og
sagði og studdi hendinni á öxl-
ina á mér. „Hefði þetta verið í
byltingu, þá hefði ég fyrirskip-
að að skjóta þig. Það er dauða-
sök að tala um uppgjöf þegar
komið er að örlagastundu.” —
Hann hefði hvorki skotið einn
eða neinn.
Annars kom okkur Ólafi allt-
af mjög vel saman. En honum
lynti illa við þunglamalega
þumbara, sem voru lengi að
velta málum fyrir sér og tóku
ekki neina afstöðu. Ólafur var
ekki „theoretískur" jafnaðar-
maður. Það voru tilfinningarn-
ar og hjartað sem stjórnuðu
honum. Hann var baráttumaður
augnabliksins og lifði því full-
komlega. Hann veifaði hendi
afgerandi þegar rætt var um
framtíðarverkefni. Koma dag-
ar, koma ráð. Hann kom ekki
nærri fjármálum, enda fannst
honum alltaf að þau skiptu
ekki miklu máli. Og þó var
hann alltaf að berjast fyrir
fimmeyringum handa verka-
fólkinu.
VI.
Við unnum mörg ár saman
við ritstjórn Alþýðublaðsins, og
þó að hann væri ekki fastúr
starfsmaður, kom hann daglega
og oft á dag. Eins og kunnugt er
hafði Ólafur mikla unun af
náttúrufræði og fór víða um
land og skoðaði það, gróður
þess, jarðmyndanir og annað. í
blaðinu er langur greinaflokkur
um landið og gróður þess, sem
hann skrifaði og undirritaði:
Náttúruskoðarinn. Meðan hann
var ritstjóri í seinna sinnið,
stóð hann í stöðugum bréfa
skriftum út um heim og pantaði
rit og fræ og plöntur. Bréf bár-
ust í tugatali og fræbögglar,
stönglar og plöntur í moldar-
kögglum. Mér var illa við þetta
drasl, en Ólafi gramdist, ef
hann varð var við það, og sagði
sem satt var, að á þessu hefði
ég „hreint ekkert vit”. Það var
hann, sem flutti inn pílvíðinn
og þess vegna minnist ég alltaf
Ólafs Jþegar ég sé í görðunum
þessa harðgerðu viðartegund.
Ólafur fékk ósköp af teinung-
um utanlandsfrá og auglýsti
svo í Alþýðublaðinu, að hver
sem hafa vildi gæti komið og
fengið pílvið, „stinga honum
bara niður í moldina, og svo
vex hann”. Og svo birtum við
daglega í blaðinu: „Tíu fengu
pílvið í gær“, „Þrjátíu hafa feng
ið pílvið", „837 hafa nú fengið
pílvið í Reykjavík”. — Ólafur
fékk land í Fossvogi, sem hann
kallaði Faxafen — og þar stund
aði hann margskonar ræktun.
Eitt sinn sýndi hann mér full-
an poka af fræi. „Það er bara
að strá því á jörðina svo kemur
það upþ’, sagði hann.
Ólafur hafði mörg járn í
eldinúm. Hann var sískrifandi.
Hann lét mig einu sinni sjá
handritasafn sitt. Þarna voru
drög að smásögum og drög að
leikritum. Nokkrar bækur
komu frá hans hendi undir höf-
undarnafninu Ólafur við Faxa-
fen. Einu sinni minntist ég á
það við hann, hvort hann vildi
ekki skrifa endurminningar
sínar. Hann féllst á það. Ég
sagði eitthvað á þá leið, að ég
skyldi tala við útgefanda, hann
mundi borga mjög vel, en þó
ekki fyrr en handrit lægi fyrir,
þá mundi hann borga það kon-
tant og eins ef um tvö bindi
yrði að ræða. Ólafur hafði
áhuga á þessu og svo hittust
þeir heima hjá mér útgefandinn
og Ólafur og ágætir samningár
tókust. Svo liðu mánuðir og
þeir urðu að ári. Þá spurði
ég Ólaf hvernig. gengi. „Jú“,
sagði hann. „Ég er nú alltaf að
rannsaka Esjuna. Fyrsta bind
ið verður um hana“.
Fæstir njóta eldanna, sem
fyrstir kveikja þá. Atvikin, ör
lögin, eða hvað menn vilja kalla
það, urðu á þann veg, að tíma-
bil Ólafs Friðrikssonar stóð
ekki nema í um það bil þrjá
áratugi. Hann var eldhugi og
brautryðjandi, en ekki maður
þrautseigs, þreytandi og lang-
vinns baráttustarfs. „Bara
stinga því niður í moldina, svo
kemur það iipp“. Hann varð ein
fari hin síðari ár og svo varð
hann sjúkur.
En hrópandans rödd í eyði-
mörkinni var sterk og mynd-
ug. Hann vakti fólkið af svefni,
hann reif það upp úr mókinu,
hann hratt því af stað. En hrað-
inn varð svo mikill í þjóðfélag-
inu að jafnvel sá, sem horfði
hæst og sá vfðast gat ekki fylgst
með. En starfið lifir hjá fólk-
inu eins og pílviðurinn skýlir
nú mörgum gróðri og stendur
styrkur og grænn af sér flest
veður. V. S. V.
Hann frúði á
málsfað sinn ...
Framhald af síðu 7.
buðu verkalýðsfélögin fram
sérstakan lista við kosningu
endurskoðenda bæjarreikning-
anna í desember 1915 og fengu
endurskoðandann kosinn. í
janúar 1916 fékk Alþýðuflokk-
urinn í Reykjavík 3 menn
kosna af 5, er kjósa átti. Sama
ár fékk hann mann (Jörund
Brynjólfsson) kosinn á alþing
fyrir Reykjavík. Sjálfur sat Ól-
afur í bæjarstjórn Reykjavíkur
fyrir Alþýðuflokkinn árin 1918-
38. Hann var endurskoðandi
bæjarreikninganna frá 1930 og
þar tiíl heilsan leyfði það ekki
lengur.
Ekki kvað minnst að blaða-
mennsku Ólafs Friðrikssonar.
Hann var ritstjöri Dagsbrúnar,
sem áður var getið, meðan það
blað kom út (til 1919). Hann
var fyrsti ritstjóri Alþýðublaðs-
ins, sem var stofnað 29.' okt.
1919, og annaðist ritstjórn
þess til 1922. Aftur var hann
ritstjóri Alþýðublaðsins 1929-
32. Skrifaði hann jafnan mikið
í blöðin sjálfur. Hann var flest
um mönnum ritfærari. Hef ég
lýst þeirri íþrótt hans að
nokkru í grein, sem ég skrifaði
um hann sjötugan í Alþýðu-
blaðið 16. ágúst 1956. Skal það
ekki endurtekið hér, nema það
sem þar segir, að undirstaðan
undir ritsnilld hans hafi verið
„óvenju skörp hugsun, mikil
og fjölbreytt þekking, sterk
löngun til að verða þjóð sinni
að gagni og örugg sannfæring
um, að fyrir réttum málstað sé
barizt”.
Þá langar mig til að taka hér
upp lýsingu mína á ræðu-
mennsku Ólafs Friðrikgsonar
úr sömu grein: „Hann var fund
armaður, svo að af bar: mælsk-
an mikil og glæsileg, gaman-
semin jafnan tiltæk, en þung
alvara undir, hugsunin rökföst
og skýr, tilfinningin blossandi
heit. Fáum mönnum var jafn-
lagið og honum að tala til heil-
ans og hjartans í senn”.
Þótt ritgerðir og greinir Ól-
afs Friðrikssonar um þjóðfé-
lagsmál séu merkastar ritsmíða
hans, liggur þó fleira eftir
hann á því sviði. Hann hefur
skrif'að margt um náttúrufræði
leg efni, en um þau liugsaði
hann mikið, átti lengi gróðrar-
stöð í Fossvogi og var jafn
áhugasamur um ræktun lands-
ins og ræktun mannlífsins.
Hann tók saman ársritið Sól-
skin árið 1936 fyrir barnavina-
félagið Sumargjöf. Það hefti
ber heitið Við Tjörnina, og lýs-
ir dýralífinu þar, prýðilega
samið rit og skemmtilegt, í
samtalsformi milli kennslu-
konu og þriggja barna á mis-
munandi aldri. Og einu sinni
gerði Ólafur það sér til gam-
arxs að semja skemmtilegan
reyfara undir höfundarnafninu
Ólafur við Faxafen.
' Mörg síðustu árin átti Ólafur
við vanheilsu að stríða. Hann
lézt í Landsspitalanum aðfara-
nótt fimmtudagsins 12. nóvem-
ber sl.
Ólafur var kvæntur danskri
konu, sem Anna Christensen
Hejnæs hét. Hún lézt 1960 og
hafði lengi veitt Hljóðfærahúsi
Reykjavíkur forstöðu. Sonur
þeirra er Atli, forstjóri í
Reykjavík.
Hér hefur verið farið fljótt
yfir sögu og stiklað á stóru um
ævistarf hins bjartsýna braut-
ryðjanda og eldheita baráttu-
manns, Ólafs Friðrikssonar. —
Aðrir munu gera ýmsum köfl-
um þeirrar sögu rækilegri skil.
En ég ætla að ljúka þessum
greinarstúf með því að taka upp
nokkrar línur úr fyrrnefndri af-
mælisgrein minni um Ólaf, því
að ég þykist ekki geta lýst hon-
um sannar eða réttar:
„Ólafur Friðriksson hefur
alla ævi sett baráttu fyrir hug-
sjónum ofar öllu öðru. Hann
hefur trúað á málstað sinn,
trúað á sigur sannleika og rétt-
lætis. Hann hefur trúað á
land sitt og þjóð, trúað á mögu-
leikann að skapa hér gott og
menningarríkt þjóðfélag. Þessi
trú hefur aldrei brugðizt hon-
um. Hún hefur yljað honum á
köldum stundum, hún hefur
gefið honum þrek, þegar allar
bjargir sýndust bannaðar. Og
hún hefur varðveitt hjarta hans
hlýtt og óspillt”.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
SENDISVEINN Kaupi SMURT BRAUÐ Snittur.
óskast. — Vinnutími fyrir hádegi. hreinar tuskur Opið frá U. 9—XS.S0. Brauðstofan
AfþýðublaðiÖ Sími 14 900. Bólsturiðjan Vesturgötn 25.
Freyjugötu 14. Sími 16012
•i>
Pússníngarsandur
Heimkeyrðui 'ussningarsandur
og vikursandii' -ígtaður eða
ásigtaöur vir húsdvrnar eOa
kominn un •>> hæO sem
er. eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN ■•u’ ^iiiðavof u±
Sim) 41920
•j 10 18-nóv-1964 — alþýðublaðið