Alþýðublaðið - 18.11.1964, Qupperneq 14
24 18. nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐID
. HW'
MæSrastyrktarnefnd Hafnar-
fjarðar hefur opna skrifstofu alla
miðvikudaga frá kl. 8wl0 s.d. í
Alþýðuhúsinu. Tekið verður á
móti fatnaði og öðrum gjöfum til
jóla.
Æskulýðsstarf Nessóknar: Fund
nr fyrir 10— 12 ára stúlkur í dag
kl. 5 og 13 — 17 ára stúlkur kl.
8.30 í fundarsal Neskirkju. Fjöl-
breytt fundarefni.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Félagsfundur Hjarta og æða-
verndarfélag Hafnarfjarðar held
ur almennan 'félagsfund í Góð-
templarahúsinu í kvöld kl. 8,30.
Húsmæður! *
Munið fræðslufund Húsmæðra-
félags Reykjavíkur miðvikudaginn
18. nóv. kl. 8,30 í Oddfellow, niðri,
og verður að þessu sinni tekið
til meðferðar grillofn og stór sýn-
ing verður á ýmsum tegundum á
emurðu brauði. Sérlært fólk kem-
ur og svarar spurningum. Allar
húsmæður eru velkomnar.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband í Dómkirkjunni af sr.
Óskari J. Þorlákssyni, ungfrú Elisa
bet Magnúsdóttir og Baldvm Ein
arsson, Hverfisgötu 90. (Studio
Guðmundar, Garðastræti).
HMívmvmmmvnmwmt
Flateyrar-
söfnunin
SÖFNUN vegna sjóslys-
anna á Flateyrarbátunum
tveimur, sem fórust í s£ð-
asta mánuði, stendur nú yf-
ir. Tekið verður á móti fram-
lögum á Biskupsskrifstof-
unni og hjá dagblöðunum
öllum.
WWVWVWV IWWWWWWWWWV
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Guðna-
syni ungfrú Gugrún Þórarna Þór-
arinsdóttir frá Suðureyri og Jón
Haukur Hermannsson rafvirki
frá Reykjavík. Heimili þeirra er
að Pólgötu 6, ísafirði. (Studio Guð
mundar, Garðastræti).
Hjúkrunarkonur!
Athugið að skila munum á bazar
til Jóhönnu Björnsdóttur á Lands
spítalanum eigi síðar en fimmtu-
daginn 19. nóvember.
KIRKJUKVÖLD
Á KIRKJUKVÖLDI sem haldið
verður í Hallgrímskirkju næstk.
fimmtudagskvöld kl. 8,30, talar dr.
Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra um nýafstaðna ísraelsför
sína. Svala Nilsen syngur einsöng
með undirleik Páls Halldórssonar,
og kirkjukórinn aðstoðar. Allir
eru velkomnir.
7.00
12.00
13.00
14.40
15.00
17.40
18.00
18.20
18.30
18.50
20.00
Miðvikudagur 18. nóvember
Morgunútvarp — Veðurfregnir — Tónleik- 20.15
ar. 7.30 Fréttir. — 7.50 Morgunleikfimi. —
8,00 Bæn. — 9.00 Útdráttur úr forustugrein-
um dagblaðanna.
Hádegisútvárp.
,,Við vinnuna": Tónleikar.
„Við, sem heima Sitjum": Framhaldssagan
„Katherine“ eftir Anya Seton, XI.
Síðdegisútvarp.
Framburðarkennsla í dönsku og ensku.
Útvarpssaga barnanna: „Þorpið sem svaf“
eftir Monique de Ladebat. — Unnur Eiríks
dóttir þýðir og les. VIII.
Veðurfregnir.
Þingfréttir. — Tónleikar.
Tilkynningar. 1— 19.30 Fréttir.
Konur á Sturlungaöld. III. 23.35
21.30
22.00
22.10
23.00
Helgi Hjörvar.
Kvöldvaka:
a) Hvannalindir, fyrra erindi.
Benedikt Gíslason frá Hofteigi.
b) íslenzk tónlist: Lög eftir Bjarna Þorsteins
son.
c) Frá Yorkshire.
Einar Guðmundsson kennari.
d) Kvæðalög.
í tónleikasal: Sellósnillingurinn Caspar
Cassado og kona hans Chieko Hara leika són
ötu í F-dúr, op. 99, fyrir selló og píanó eftir
Jóhannes Brahms.
Fréttir og veðurfregnir.
Létt músik á síðkvöldi.
Bridgeþáttur.
Hallur Símonarson,
Dagskrárlok.
Fiskskortur
Framhald af 16. síðu.
maðurinn halda Því fram að Veð-
urstofan ætti hér nokkra sök á,
með því að spá verra veðri
til stóð, þannig að bátarnir hafa
ekki farið út.
Fiskmiðstöðin hefur 6 fasta
báta, sem 'allir veiða með línu.
Aflinn er mestmegnis ýsa, en
nokkuð af þorski með. Aldrei lief
ur borist svo mikið að, að hægt
hafi verið að hengja upp fisk, eða
salta, nema í mjög smáum stíl.
Dagsaflinn hefur verið um 10—
15 tonn, en til að fullnægja eftir-
spurn viðskiptavinanna þarf mið-
stöðin að fá 30—40 tonn á dag.
Verkstjórinn sagði að ástandið
hafi raunar verið svo slæmt að
undanförnu, að hann sjálfur hafi
ekki einu sinni átt afgangs nýjan
fisk fyrir sitt heimili. Loks sagð-
ist hann ekki sjá annað ráð
vænna, en að allar húsmæður í
„Stór-Reykjavík” sameinuðust í
einu allsherjar bænaátaki til mátt
arvaldanna um betri gæftir fyrir
bátana og skarpari spádómsgáf-
ur hjá Veðurstofunni.
Við höfðum líka samband við
Veðurstofuna. Þar varð Páll Berg
þórsson fyrir svörum. Hann sagði
að vitaskuld yrði Fiskmiðstöðin
að hafa einhverja afsökun eins
og aðrir, en staðreyndin væri sú,
að tíð hefur verið mjög óstöðug
að undanförnu. Þó veður sé ssemi
legt í landi, sé engin trygging fyr-
ir því að gott sé á miðunum. —■
iRaun^ejrule^ hafi veðrljð ekki
farið að skána neitt að ráði fyrr
en í gærmorgun og þá hafi spáin
raunair gengið eftir. Að lokum
sagði Páll. - Við getum ekki verið
100% hérna á Veðurstofunni og
við erum tiltölulega ánægðir með
an við erum með yfir 50% réttar
spár.
twwwwww*wwwwwwwww
HVER ER MAÐURINN?
Svarið er á næstn slðu.
Aðalfundur Al-
þýðuflokksfél.
Vestmannaeyja
Vestmannaeyjar.
Alþýðuflokksfélag Vest-
mannaeyja lieldur að'alfund
sinn fimmtudagskvöld 19.
nóv. kl. 8,30 að Hótel HB.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á þing
Alþýðuflokksins.
3. Önnur mál.
Suðaustan stinningskaldi, sums staðar él. I
gær var vaxandi austanátt sunnanlands, en ann-
ars staðar hægviðri. í Reykjavík var austnorðaust
an kaldi, frost mældist 2 stig.
Karlinn hcfur tekið
hvotsóttina og er með
óráði. Hann kallar til
dæmis kellinguna elsk-
una sína . . .
Á þessum síðustu og
verstu spillingartímum,
skyldu menn hafa það hug-
fast að það er t. d. ekki öll-
um hent að ljúga. Góður
lygari verður að hafa gott
minni. . .
Frélsun í „Landinu helga“
(Heimild: Þjóðv).
Hann fékk, samkvæmt nýjustu fregnum,
frelsun á sálinni.
Hann gekk eins og úlfaldi gegnum
gatið á nálinni.
Kankvís.