Alþýðublaðið - 28.11.1964, Qupperneq 1
SmMM'
44. árg. — Laugardagur 28. nóvember 1964 — 264. tbl.
LDARAFLINN
30% MEIRIIÁR?
Reybjavík, 27. nóv. - AG
Sjávarútvegsmálaráðherra, Emil
Jónsson, flutti í dag- ræSu á aðal-
fundi Landssainbands isl, útvegs-
manna. Hóf hann mál sitt á því að
segja: „Mér þykir ánægjulegt að
- geta hafiö mál mitt á því að minn-
ast þess, að árið 1964 hefur verið
gjöfult ár frá náttúrunnar hendi,
og aflabrögð sennilega meiri en
nokkru sinni áður”.
Sjávarútvegsmálaráðherra sagði:
„Skýrslur liggja að vísu enn ekki
fyrir, sem hægt er að byggja end-
anlega á, nema til júlíloka, en þá
Nýtt skip
LANGÁ
Reykjavík, 27. nóv.
FÖSTUDAGINN 27. nóv. var
hinu nýja flutningaskipi Hafskips
h.f. gefið nafn, og heitir það
„Langá“. Heimahöfn þess er Nes
kaupstaður.
Frú Guðrún Sveinbjarnardótt
ir, frá Vestmannaeyjum, kona
Gísla Gíslasonar, stjórnarfor-
manns Hafskips h.f. gaf skipinu
nafn.
M.s. „Langá, sem er fjórða skip
Framhald á 4. siðu
var aflinn orðinn 636 þúsund
tonn, eða 149 þúsund tonnum
meiri en um sama ley ti í fyrra, eða
um 30% meiri".
Sjávarútvegsmálaráðherra sagði,
að ætla mætti að heildaraflinn í ár
yrði um ein milljón tonn. Væri
það furðu mikill afli miðað við
þann mannfjölda sem veiðarnar
stunduðu, og nálgast mjög heildar-
afla Norðmanna, þó að um 10 sinn
um fleiri stunduðu þar veiðarnar
að staðaldri, — og enn fleiri sem
ígripavinnu”..
í lok ræðu sinnar gat Emil þess,
að ísland væri meðlimur í alþjóða-
samtökum um fiskveiðar á norð-
vestur Atlantshafi. Sú stofnun
hefði haldið síðast fund sinn í
Hamborg um mánaðamótin maí-
júní sl. Á þessum fundi hefðu
komið fram áhyggjur yfir því að
fiskmagn í norð-vestur Atlants-
hafi færi minnkandi.
í skýrslu samtakanna hefði m. a.
komið fram:
„Síðan 1957 hefur heildaraflinn
á veiðieiningu á norðurhluta
samningssvæðisins lækkað um
40% samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem til eru um sóknina, og
er það sennilega of lágt áætlað.
Talið er, að nú séu fundin og
reynd flest þau fiskimið, er nokkra
þýðingu hafa á svæði þessu og að
frekari aukningu veiðanna muni
hafa í för með sér lækkandi afla
á veiðieiningu”.
VALA Kristjánsdóttir var
aðalhetjan í söngleiknum
„My Fair Lady”. Innan
skamms mun Þjóðleikhúsið
sýna annan söngleik, og einn
ig þar, mun Vala leika aðal-
hlutverkið. A baksíðu í blað
inu í dag er viðtal við Völu
um hið nýja hlutverk.
Starffi fallhlifar-
hermanna lokið
Leopoldville, 27. nóv.
(NTB - Reuter).
HVÍTIR málaliðar sem farið
hafa yfir Kongó-fljót frá Stan-
leyville hafa fundið lík 28
hvítra manna, að því er banda-
riska sendiráðið hér tilkynnti í
dag. Einnig fundu þeir fjögur
börn, tvær konur og tvo karl-
menn á lífi. — Samtímis því,
að þessar fréttir bárust, skýrðu
flóttamenn, er komnir voru frá
bænum Paulis, svo frá, að þeir
hefðu heyrt að allir hvítir íbú-
ar Wamba-þorps, um 50 talsins,
hefðu verið teknir af lífi af upp
VAXANDIHARKÁ /
Reykjavík, 27. nóv. ÁG.
BLAÐIÐ hafði í dag sam-
band við Stefán Jóh. Stcfáns-
son, ambassador íslands í Kaup
niannahöfn, og ynnti hann eftir
nýjustu fréttum af liandrita-
málinu. Stefán sagði, að harlt
an yrði sífellt meiri og mikið
væri skrifað með og á móti af
hendingu handritanna, þá meira
á móti.
Hann sagði, að nú hefði
Stúdentafélag jafnaðarmanna í
I-Iöfn gefið út yfirlýsingu þar
sem segði, að félagið væri
fylgjandi afhendingu. Aftur á
móti hefði æskulýðshreyfing
innan Radikalaflokksins tjáð
sig vera á móti afhendingu, en
þó ekki gefið út neina yfirlýs-
ingu í þeim efnum.
Annars sagði Stefán, að
blaðaskrifin væru misjöfn.
Margir væru mjög á móti af-
hendingunni, en aðrir henni
hlynntir. í skrifunum liefði þó
borið meira á þeim, sem á móti
væru. Yfirleitt væri mikil og
sterk „pressa“ á móti afhend-
ingunni, en fylgismönnum ís-
lendinga hefði oft tekist vel í
skrifum sínum^ þeir verið rök
fastir og greinar þeirra vel rit-
aðar.
Stefán sagði, að óvíst væri,
að handritamálið yrði tekið til
annarrar umræðu í danska
þinginu fyrir áramót. Málið
væri enn hjá þingnefndinni, en
fundur í nefninni yrði ekki fyrr
en 3. desember. Væri nefndin
Framhald á 4. síðu
IWWWvtWWW.'.MWMMWIWMtWMWWIIMMWtWMWMWMIWWVMMWWWMWWWWWWWIM
reisnarmönnunum. Ekki gátu
þó yfirvöld í Leopoldville stað-
fest frétt þessa. Að þeim með-
töldum, er fundust látnir í dag,
er tala þeirra, er uppreisnar-
menn hafa myrt, komin upp í
80 manns, allir hvítir menn.
Meðal þeirra eru margir prest-
ar og: nunnur. Flóttamennirnir
segja, að enn séu um 100 manns
í og umhverfis Paulis, er ekk-
ert hafi enn spurzt til.
Að því er APF-fréttastofan seg-
ir, skýrði málsvari belgíska utan-
ríkisráðuneytisins svo frá í dag,
að aðgerðir belgísku fallhlífarher
mannanna í Stanleyville, Paulis
og nágrenni, væru nú á enda. —
Mætti gera ráð fyrir því að þeir
yrðu komnir aftur til Belgíu á
þriðjudag. Hann kvað það' ekki
vera rétt, er áður hafði verið skýrt
frá, að uppreisnarmennirnir í
Paulis hefðu þvingað hvíta menn
tit að koma meo sér inn í frum-
skóginn. Síðustu evrópumennirn-
ir í Paulis, 150-170 manns. komu
til Leopoldville í dag og belgísku
fallhlífarhermennirnir hafa snúið
aftur til Kamina-herstöðvarinnar,
sagði málsvari þessi.
Reuter-fréttastofan hefur skýrt
frá því, að margir evrópumenn,
sem einangraðir eru í frumskóg-
inum norður af Stanleyville, séu
í alvarlegri hættu, er aukizt í sí-
fellu með aukinni framsókn kong-
ósku stjórnarhersveitanna. Eigi
sér stað harðir bardagar um víg-
hreiður, er uppreisnarmenn hafa
skilið eftir á leið sinni til að verja
undanhaldið. Ekki hefur neitt
spurzt til þeirra hvítu manna, sem
saknað er.
Belgíski forsætisráðlierrann
Theo Lefevre sagði á blaðamanna-
fundi í dag að björgunarstörfum
þessum lyki senn. Væri það gert
til þess að ekki kæmi fram grun-
ur um að gengið hefði verið lengra
en þörf hefði verið á af mannáðar-
ástæðum. Forsætisráðherrann lét
i ljós þakklæti sitt við Bretland og
Bandaríkin, hverra framlag hefðu
gert þetta starf mögulegt, sagði
hann.
Línan Moskva-
Washington
rofnaði í gær
Kaupmannahöfn, 27. nóv.
(NTB - Reuter).
Fjarritunarsambandið' beina
milli Hvíía hússins í Was-
hington og Kreml í Moskvu
rofnaði í dag er jarðýta skar
kabalinn í sundur á Sjálandi.
Slitnaði og þar með aðal-
fjarritunarsambandið milli
Danmerkur og útlanda. Bú-
izt var við að viðgerð myndi
taka mestan hluta dagsins.
Símasambandi hefur verið
komið á með því að taka út-
vat psbylgjur í notkun.
Það voru þeir Kennedy
Bandaríkjaforseti og Kxúst-
jov • forsætisráðlierra, er
komu sér saman um að setja
upp línu þessa.
IWWWWMtWMWWWtlHWMI
Itttttttttttttttttttttt