Alþýðublaðið - 28.11.1964, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 28.11.1964, Blaðsíða 11
 Norræn skíðaganga hefst um helgina SKf hefur ráðið 3 landsþjálfara SKÍÐASAMBAND ISLANDS hef- ur margt á pi’jónunum um þessar mundir og verður hér skýrt frá því helzta. Stjórn SKÍ hefur í-áðið þrjá þjálfara til starfa í vetur, einn í íslendingar verða með EINS og lesendur íþróttasíð- unuar ef til vill muna, stóð til að fram færi norræn skíðaganga sl. vetur, en vegna snjóleysis bæði hér og einnig á hinum Norðurlönd unum, varð það að ráði að fresta göngunni. Mun hún hefjast um þessa helgi og standa yfir í allan vetur, eða fram að páskum. Öll Norðurlöndin, nema Dan- mörk taka þátt í göngunni, en ís- land er nú með í fyrsta sinn. Hér verður um keppni að ræða milli Norðurlandanna og til þess að ís- lendingar hafi einhvérja mögu- loika hefur verið ákveðið, að þátt- taka íslan'ds verði margfölduð með 20. Telja má, að ísland hafi góða möguleika til að sigra, ef 25000 ganga nú, en slíkt er alls ekki úti- lokað, þegar þess er gætt, að í skíðalandsgöngunni 1957 gengu rúmlega 23 þúsund. í síðustu norrænu keppni sigruðu Finnar, alis gengu 430 þús. Keppni verður einnig milli kaupstaða og sýslna, en í síðustu landsgöngu sigruðu Siglfirðingar í kaupstaðakeppn- inni og Þingeyjarsýsla í sýslu- keppninni. Það skal tekið fram, að öll gögn keppninnar eru merkt með ártalinu 1964, en orök þess er áðurnefnd frestun göngunnar Annars birtum við hér að lok- um bréf, sem framkvæmdanefnd norrænu göngunnar hefur sent hei-naðarbandalögum og skíðaráð- um, en þar er að sjá allar nauð- synlegar upplýsingar um fyrir- komulag göngunnar. Frá meistaramóti Reykja- víkur í körfuknattleik REYKJAVÍKURMÓTIÐ í körfu- knattleik hefur fallið algerlega í skuggann vegna landsleikjanna í handknattleik. Mótið hélt áfram á miðvikudagskvöld og þá fóru fram þrír lelkir. í meistaraflokki karla léku Ár- mann og íþróttafélag stúdenta. Sigur Ármanns var aldrei í neinni hættu, en þó var leikurinn harður, meira að segja óvenju harður. Ár- mann vann með 20 stiga mun, 65:45, en í hálfleik var staðan 32:17. í 2. flokki karla léku B-lið ÍR og Ármann. Leikurinn var mjög spennandi og að loknum venjuleg- um tima var jafnt. í framlengingu höfðu ÍR-ingar betur og sigruðu í leiknum með 61 stigi gegn 51. Loks fór fram leikur í 3. flokki karla, KR og Ármann léku. KR- ingar sigruðu eftir jafnan leik 22 stig gegn 19. Um helgina fara fram nokkrir leikir, m. a. leika ÍR og KR til úr- slita í meistaraflokki kvenna og fer sá leikur fram í íþróttahúsi Háskólans. Skíðasamband Islands hefur á- kveðið að taka þátt í Norrænu skíðagöngunni í vetur. Norðurlöndin efna til fjölda- göngu á skíðum í ár og keppa sín á milli um það, hvert þeirra fær flesta þátttakendur. Gengnir eru 5 km en ón tímatakmörkunar. Okk ur var boðin þátttaka með þeirri reglu að þátttakendatala íslands skal margfaldast með 20. Þó að skemmra sé liðið frá síðustu lands göngu en stjórn Skíðasambands- ins telur æskilegt að sé milli lands gangna, þótti henni þó rétt, fyrst tækifæri bauðst, að ganga nú til samstarfs við frændur okkar á Norðui-löndum. Skíðasamband ís- lands hefur frá upphafi átt marg- vísleg og ánægjuleg samskipti við skíðasambönd hinna Noi’ðurland- anna og vonar að þessi Norræna skíðaganga megi enn bæta og auka það samstarf. . Landsganga á skíðum hefur tví- vegis farið fram áður með góðum árangri. Fyrra skiptið 1957 og gengu 23.235 og síðara sinnið 1962 og varð þátttakan 16.056. Snjóleys- ið um Suður og Vesturland spillti i árangri göngunnar í síðara skipt- ið. Fyi-ir beztan árangur, þ. e. fyrir að ná hæstri hundraðstölu íbúa í gönguna, voru bæði skiptin veitt tvenn verðlaun. Annað fyrir kaup- staði, en hitt fyrir sýslur. Mun svo einnig gert nú. Skíðasamband íslands hefur skipað okkur undirritaða, til þess að annast forustustörf um fram- kvæmd göngunnar. Ef okkur á að takast að fá fjöldann til þess að halda út á skíðaslóðir og ganga þar 5 km án tímatakmörkunar, er okkur ljóst að við verðum að leita samstarfs við ykkui’, kæru sam- herjar. Framhald á 10 síðu norrænum greinum og tvo í alpa- greinum. Birgir Guðlaugsson, Siglufirði sér um norrænu grein- arnar, en Magnús Guðmundsson, Akureyri og Jóhann Vilbergsson Siglufirði kenna í alpagreinum. Magnús er þrautreyndur skíða- kennai’i og hefur m. a. starfað við þekktan skíðaskóla í Bandaríkjun- urn. Vei’kaskipting er ekki að fullu ákveðin, en Magnús mun þó aðal- lega kenna á Akureyri og í ná- grenni. í byi-jun næsta árs mun SKÍ efna til leiðbeinendanámskeiðs, síðari hluta. Þetta námskeið er haldið í samvinnu við íþróttakenn- araskóla íslands og fer fram á Alt- ureyi’i, en aðalkennari verður Magnús Guðmundsson. í þessxi námskeiði taka þeir aðeins þátt, sem voru með í fyrri hlutanumu Skíðamót íslands fer að þessu sinni fram á Akureyri, en þar er aðstaða til að halda skíðamót sxS langbezta hér á landi. Snjór nægur og hið ágæta Skíðahótel til að hýsa gesti. Um þessar mundir stendur yfir endurskoðun á skíðahandbókinni, sem orðin er mjög úrelt, var síðast gefin út 1946. Þá bók sáu uni þeir Steinþór heitinn Sigurðsson og Einar B. Pálsson. Um þessa útgáfu sér Einar B. Pálsson og er geif: rá9 fyrir að bókin komi út ú næsta ári, Þorsteinn Hallgrímsson. Islendingar unnu varnarliðsmenn i körfubolta 87:76 Þessi mynd ætti að koma öllum í skíffagönguskap. EINS OG SKÝRT hefur verið frá hér á íþróttasíðunni, fer fram eins- konar bikarkeppni í köi-fuknatt- leik milli úrvalsliðs varnarliðs- manna á Keflavíkurvelli og Reykja vikurúrvals, fimm leikir yfir vet- urinn. í fyrravetur sigruðu islend-' ingar í þessari keppni, unnu þrjá leiki, en varnarliðsmenn tvo. Þriðji leikurinn í vetur var háð- ur á Keflavíkurflugvelli í fyrra- kvöid og lauk með sigri Reykvík- inga, sem skoruðu 87 stig gegn 76. Liðið, sem mætti vai’narliðsmönn- um, er það sama og fer til Banda- ríkjanna um áramótin og leikur þar 12 leiki. í hléi var staðan 42:28 fyrir réykvíska liðið Reykvíkingar hófu leikinn af ki-afti og komust í 30:15, en úr því skoruðu liðin svipað þar til í hléi. í síðari hálfleik minnkuðu vai-nai’liðsmenn bilið verulega og xim tíma munaði aðeins 7 stigum, en undir lokin ti-yggðu íslenzku leikmennirnir öruggan sigur, þann ig að munurinn í lokin var 11 stig. Reykvíska liðið lék svæðisvörn, sem var býsna sterk á köflum, varnarliðsmenn notuðu aftur á móti varnaraðferðina maður á mann. Bandaríkjamenn skoruðxi mikið af löngu færi, þeir dekkuðxl mjög framarlega og það truflað! íslenzka liðið oft ótrúlega mikið. í liði Reykjavíkur bar mest á Birgi Bii’gis, sem átti ágætan leik og skoraði 14 stig. ÞorSteinn Hall- grímsson átti einnig góðan leik, cn samt ekki eins góðan og oft áð- ur, hann skoraði einnig 14 stig. Einar Bollason skoraði 13 stig. Hjá varnarliðsmönnum var Doiv ! ner (nr. 9) beztui’, hann skoraðl 20 stig, Serrano ínr. 4) skoraði 12, Cutshaw (nr. 7) 11 og Robertson (nr. 61 8 stig. Jón Otti Jónsson og bandarísk- ur dómari dæmdu leikinn. Svíar unnu Sviss 19:16 Basel, 27. nóv. (NTB-AFP) Svíar sigruffu Sviss í lands- leik í handkuattleik í dag, þeir skoruffu 19 mörk gegn 16. Staffan í hléi var 10-0 fyrir Svía. %%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%V,%f ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 28. nóv. 1964

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.