Alþýðublaðið - 28.11.1964, Síða 10
Bazar - Kaffisala
KVENFÉLAGIÐ HRINGURINN
heldur sinn árlega jólabazar í húsi Almennra trygginga, Pósthús-
stræti, n.k. sunnudag kl. 2 e. h.
Margt fallegra, ódýrra og nytsamra muna. — Kaffisala verður að
Hótel Borg.
Lúðrasveit drengja Ieikur á Austurvelli, ef
veður leyfir.
Komið og styrkið þetta géða málefni. Allur ágóði
rennur í barnaspítalasjóð.
Danskennsla
Framhald af síðu 7.
vegna samvinnuáhuga Sigríðar og
Minervu, að þær ekki vildu fá
lærðan kennara til að annast um-
j rætt 4 vikna námskeið árið 1962
■ ■, og er það þá ef til vill af sömu
orsök, að þær ekki eru í Dans-
,/ kennarasambandi íslands?
■(, Ég skil ekki betur en að með
sífelldu staili á orðunum „telja
sig Iærða kennara" séuð þér. að
efast um þekkingu mína á dansi;
Til þess að fá úr benni skorið, vil
ég hér með skora á þær Sigríði
j Þ. Valgeirsdóttur og Mincrvu Jóns
dóttur í danskeppni. Tel ég rétt,
að keppt verði í Enskum Valsi,
i) Foxtrot, Tangó, Quickstep, Samba,
;1 Rúmbu, Paso Doble, Jive, Cha-
Cha-Cha og Vínarvalsi. Til þess að
'fá gullmerki The Imperial í þess-
um dönsum, þarf að kunna um
200 spor. Legg ég til, að við not-
um þau öll. Vilji þær fá að nota
fleiri spor en þessi 200 standard
spor, er ég reiðubúinn til að sam-
þykkja það. Ég legg til, að keppn-
in í suður-'ameríku dönsunum
fari fram á Hótel Sögu, en í „Ball-
room“ dönsunum í Sjálfstæðishús-
inu eða Lídó. Ég er reiðubúinn
nú þegar, bíð þess eins, að ákveð-
inn verði staður og stund.
Hafni þær þessari áskorun minni
krefst ég þess, að þér viðurkennið
mig þeim fremri í samkvæmisdöns
um. Mig varðar ekkert um, hverja
þér teljið getu mína í þeim döns-
um, sem þær hafa samið.
Virðingarfyllst,
Heiðar Ástvaldsson, I.S.T.D.
(H. Comm.) L.B., A.D.T.V.
E. S. Ef þér ekki skiljið titil
minn, þá biðjið kollega mína að
þýða hann; þær eiga að vita, hvað
þetta þýðir.
100 ár frá fæðingu
Frh. af d. síðu.
komist i tízku eftir hátíðahöldin
í tilefni af hundrað ára afmælinu,
sem Frakkar hófu snemma á þessu
ári í Albi, heimabæ málarans. Til
er fjöldmn aliur af góðum end-
urprentunum, og sem betur fer
er tækni Toulouse-Lautrec þann
ig, að hún er vel fallin til endur-
prentunar með nútíma aðferðum.
Þær endurprentanir eru t. d. miklu
betri en endurprentanir af verk-
um Van Goghs.
(Candide í Arbeiderbladet).
Æskulýössiarf
Framhald úr opnu.
menn spyrja ef til vill, hvern-
ig hægt sé að hýsa svona mikla
starfsemi. Til. þess þarf að
sjálfsögðu mikið húsrými.
Nærri niá telja fullvíst, að
Æskulýðsheimilið væri ekki
jafn merk stofnun og það er,
og einnig að starfsemi þess
væri ekki með svo miklum
blóma, ef Síldarverksmiðjur
ríkisins hefðu ekki látið Æsku-
lýðsráði í té hús það við Vetr-
arbraut, sem starfsemin fer öll
fram í, og nú er nefnt Æsku-
lýðsheimili Siglufjarðar. Húsa
kynni öll éru þar mjög vistleg
og skemmtileg. Starfsemin er
á tveim hæðum og er þarna
mjög góður salur með tilheyr-
andi eldhúsi, auk 10 herbergja
og eru þessar vistarverur not-
aðar til fundahalda og skemmt-
ana. Segja má að aðstaðan sé
eins góð og bezt verður á kos-
ið, og gildir það einnig um
aðsóknina. Daglegir gestir
heimilisins eru frá 100 til 300
og til dæmis má geta þess, að
síðastliðinn föstudag voru 184
viðstaddir kvikmýndasýningul
kl. 5 og kl. 9 um kvöldið voru
þeir 128.
BRUNATRYGGINGAR
á húsum í smíöum,
vélum og áhöidum,
efni og lagerum o. II.
•4,J,0 28. nóv. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Skíðagangan
Framh. af bls. 11.
Framkvæmd hinnar Norrænu
skíðagöngu innan hvers íþrótta-
héraðs er falin stjórnum héraðs-
sambanda (íþróttabandalaga) og
skíðaráða, þar sem þau eru til. —
Þessum aðilum er treyst til að
skipuleggja þátttöku göngunnar
með aóstoð stjórna íþrótta- og ung
mennafélaga hinna einstöku
byggðarlaga. Þær leiti síðan sam-
starfs við skólastjóra og kennara
þeirra skóla, sem eru á félagssvæði
þeirra.
Við í framkvæmdanefndinni höf
um látið gera skráningabækur,
þátttökumerki, auglýsingar og 'afl
að hins sameiginlega Norræna
göngumerkis.
Ykkur eru send þessi gögn í
trausti þess, að þið annist dreif-
ingu þeirra til félaga og skóla.
Við óskum þess sérstaklega, að
okkur sé tilkynnt nafn og heim-
ilisfang þess einstaklings, sem
stjórn héraðssambandsins útnefn-
ir sem formann framkvæmda-
nefndar í héraði.
Þá viljum við leggja sérstaka á-
herzlu á, að þið eða framkvæmda-
nefndin gangi ríkt eftir því, að
stjórn hvers íþrótta- eða ung-
mennafélags skipi trúnaðarmann
eða framkvæmdanefnd.
Þessum aðilum skal sérstaklega
bent á eftirfarandi:
1) leita samvinnu við skóla-
stjóra og kennara; aðstoða skól-
ana; leitast við að komið verði á
keppni milli skóla, deilda eða
bekkja.
2) koma á keppni milli félaga,
stofnana, sveitarfélaga, bæjarhluta
o. s. frv.
3) auglýsa vel hvar göngubraut
er lögð og á hvaða tíma trúnaðar-
maður er þar staddur til eftirlits
og skráningar.
4) skipuleggja sölu merkja og
hvetja þátttakendur til þess "að
kaupa þau, svo að takast megi með
því að greiða kostnað, en tekjuaf-
gangur rennur til eflingar sldða-
iðkana í landinu.
5) geyma vel skráningarbækur
og senda þær ásamt uppgjörl
nierkja til landsnefndarinnar fyr-
ir 15. maí n. k. Gætið þess að
merkja uppgjör vel.
Merki þessarar Norrænu skíða-
göngu eru þannig gerð áð líma má
þau á skíði eða annan skíðaútbún-
að, t. d. skíðastafi, skíðastakka,
skíðahúfur og vettlinga. Verð
hvers merkis er kr. 10.00. Sá fram-
kvæmdaaðili, sem sér um viðkom-
andi göngustað og annast sölu
merkja, fær kr. 3.00 af andvirði
hvers selds merkis. Afgangurinn
kr. 7.00 sendist landsnefndinni.
Auglýsingum skal dreifa sem
víðast, t. d. í skóla, á samkomu-
staði, verzlanir, benzínsölur o.s.frv.
Séu blöð gefin út í byggðarlag-
inu, getur framkvæmdanefndin
sent myndamófc af merki hinnar
Norrænu skíðagöngu.
Vonum við að brugðist verði vel
við þessum tilmælum okkar um
virkt samstarf að giftudrjúgri
þátttöku íslands í þessari fyrstu
Norrænu skíðagöngu.
Tilgangur göngunnar er sá, að
koma sem flestum til þess að iðka
skíðaíþróttir og njóta útivistar að
vetri í glaðværum hópi góðra fé-
laga.
Heilir til starfa.
í framkvæmdanefnd Norrænu
skíðagöngunnar:
Ólafur Þorsteinsson
Stefán Kristjánsson
Sigurgeir Guðmundsson
Þorsteinn Einarsson.
SMURT BRAUÐ
Snlttn'
Oplð frá kl. 9—Í3.S0.
Brauðstofan
Vesttire-otn 25
Sím 16012
Eyjólfur K. Sigurjónsson
Ragnar A. Magnússon
Löggiltir endurskoðendur
Flókagötu 65. 1. hæð, sími 17903
MMÐ
vantar unglinga til að bera hiafjið til áskrif-
enda í þessum hverfum:
Hverfisgötu
Bergþórugötu
Högunum
Afgreiðsla AlþýðuMaSsín*
Síml 14 900.
SENDISVEINN
óskast. — Vinnutími fyrir hádegi.
Aiþýðubla&ið Sími 14 900.