Alþýðublaðið - 08.12.1964, Side 14
&mr-
í upphafi skapaði guð him-
inn og jörð og hvíldist síðan.
Þá skapaði hann manninn og
hvíldi sig:, síðast skapaði
hann konuna og upp frá bvi
hefur hvorki guð eða maður
inn fengið hvíld.
■iHliiHiiiniipinniiiiiniiiiiiiRirimnimiiiinniTiiiiimmmnm
MUNIÐ jólasöfnun- I
ina, Njálsgötu 3- Opiö |
frá kl. 10—6 daglega. j
Gleðjið einstæðar .
mæður og börn fyrir
jólin.
Mæðrastyrksnefnd.
Ameríska bókasafnið:
Næsta þjóðiagakvöld 'ameríska
bókasafnsins verður haldið n.k.
fimmtudagskvöld 10. des ki. 8.30,
aðgangur er ókeypis, en fólk er
beðið að tilkynna þátttöku og
fjölda gesta í síma 19900 eða
19331.
11111 .
Húsmæffrafélag Reykjavíkur
vill minna á jólafundinn að Hótel
Sögu (Súlnasal) þriðjudaginn 8;
des. kl. 8, s.d. Félagsknur sæki að
göngumiða að Njálsgötu 3 föstu
daginn 4. des. kl. 2.30—5,30, það
sem eftir verður, verður aflient
öðrum reykvískum húsmæðrum
laugardaginn 5 des. sama stað og
tíma, sjá nánari fréttir í dagblöð
unum. Stjórnin
Verkfall á
Skagaströnd
Framhald iaf síðu 1.
Þá hefur ekki heldur sést liér síld
arsporður í jafnlangan tíma.
Um aðra atvinnu hér er ekki að
ræða. Verzlun er lítil, enda fer
hún að mestu fram á Blönduósi.
Samgöngur eru litlar, og iðnaður
svo lítill að vart er hægt að nefna.
hann því nafni.
Útgerðarmenn hófu haustvertíð-
ina í þeirri von, að þeir fengju
einhvern styrk til útgerðarinnar.
Einnig hafa frystihúsin búist við
einhverri fjárveitingu, en aurarn-
ir hafa því miður ekki sést.
Það má reyndar segja, að ekki
sé heppilegt, eins og stendur, að
reka hér tvö frystihús. Þau eru
bæði arfur betri tíma og byggð
meðan íbúar Skagastrandar liorfðu
björtum augum til framtiðarinnar.
Frystihús Kaupféiagsins var
byggt 1938 en Hólsnesfrystihúsið
1944. Hafa þau bæði reynt að
halda í horfinu, en aflaleysi mein-
að það.
Vegna þessa bága ástands hefur
talsvert af fólki flutt burtu. Á síð-
ast liðnu vori fóru 7-8 fjölskyld-
ur, og ef útlitið batnar ekki, má
búast við að sú tala verða enn
hærri næsta vor. Hér á Skaga-
strönd búa um 600 manns. Á síðast
liðnu ári leituðu rúmlega 100 at-
vinnu annars staðar. Sama er uppi
á teningnum í ár. Það er ekki und
arlegt að menn, sem fá góða og
næga atvinnu í öðrum byggðarlög-
um, og eru að 'heiman mestan
hluta ársins, ákveði einfaldlega
að flytja héðan með sitt fólk, í stað
þess að lepja dauðann úr skel.
Annað ógnar úú Skagstrending-
um. Allar líkur benda til þess, að
stóru bátarnir fari héðan til veiða
annars staðar og minnkar þá enn
atvinnulífið. Má jafnvel búast við
því, að engin útgerð verði héðan
eftir febrúarmánuð. Einn bátur
hefur nú legið hér lengi bundinn
við bryggju. Hólanesfrystihúsið
hefur eignarhald á þessum báti.
Gekk honum illa á síldveiðum í
sumar og liggur á honum sjóveð.
Hefur frystihúsið ekki haft bol-
magn til að greiða skuldirnar og
koma bátnum á veiðar.
í,
[ 7.00
i
12.15
13.00
14.40
15.00
17.00
18.00
18.20
18.30
18.50
19.30
19.45
20.15
Þriðjudagur 8. desember.
Morgunútvarp — Veðurfregnir —- 7.30
Fréttir — 7.50 Morgunleikfimi 8.00 Bæn. —
9.00 Útdráttur úr forustugreinum dagblað-
anna.
Hádegisútvarp.
„Við vinnuna." Tónleikar.
„Við sem heima sitjum".
Vigdis Pálsdóttir talar um jólaskraut.
Síðdegisútvarp.
Fréttir. — Endurtekið tónlistarefni.
Tónlistartími barnanna,
Veðurfregnir.
Þingfréttir.
Tilkynningar.
Fréttir.
Útvarp frá Másshalen í Gautaborg. Sigurð-
ur Sigurðsson lýsir leik Fram, íslandsmeist-
ara og Redbergslid, Svíþjóðarmeistara í Ev-
rópukeppninni í handknattleik.
Þriðjudagsleikritið: „Heiðarbýlið" eftir Jón
Trausta. II. þáttur.
Valdimar Lárusson bjó tii flutnings í útvarp.
Persónur og leikendur:
Egill, hreppstjóri í Hvammi
Róbert Ax-nfinnsson
Borghiidur kona hans
Guðbjöi-g Þorbjarnardóttir
Þorsteinn, sonur þeirra .. Bjarni Steingrímss
Ólafur bóndi í Heiðahvammi Guðm. Pálss.
Halla í Heiðarhvammi .. Helga Bachmann
Jóhanna, vinnukona í Hvammi Jóh. Norðfj.
Þorbjörn, vinnumaður í Hvammi
Baldvin Halldórsson
Sveinn, vinnumaður i Hvammi Jón Júlíuss.
Finnur í Bollagörðum .. Árni Tryggvason
Sögumaður ................ Jónas Jónasson
Leikstjóri: Valdimar Lárusson.
21.00 íslenzkt mál.
Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag.
21.15 Erindi: Á Indíánaslóðum I,
Bryndís Víglundsdóttir.
21.40 Sinfóniuhljómsveit belgíska útvarpsins leik-
ur „Dansa frá Polovetsiu" og „Á steppum
Mið-Asiu“ eftir Boi-odin. Franz André stj.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Úr endurminningum Friðriks Guðmunds-
son. XII. Gils Guðmundsson les.
22.30 Lög unga fólksins.
Ragnheiður Heiðreksdóttir kynnir lögin.
23.20 Dagskrárlok.
í fyrra gekk um þaS ferleg sögn.
að frelsi í ástum magnist,
og til séu þeir, sem agnar ögn
á þessu kannske Ragnist.
Ýmsir, sem stela, fá óspart hrós
og umbun hjá frændum og vinum.
Og einhverjir þeirra, sem eru til sjóffs,
hafa áfegni í skorsteininum.
Ég heyrffi um daginn — og hnykkti viff
aff hinir og affrir drekki.
Ja, Ijótt er aff fétta um lauslætið.
— Eg líð þetta bara ekki.
Kankvís.
Fundur FUJ í
Keflavík um
húsnæðismál
FÉLAG ungra jafnaðarmanna
í Keflavík efnir til félagsfund-
ar um húsnæðismál og lána-
mál húsbyggjenda í hinu nýja
samkomuhúsi, Njarðvíkur i
kvöld (þriðjudag) U. 8.30 e. h.
Framsögumaður flytur r ei
G. Þorsteinsson alþm., for-
maður Ilúsnæðismálastjómar.
Auk hans er boðið á fundinn
þeim Ólafi Sigurjónssyni odd-
vita í Njarðvíkum og Sveini
Jónssyni bæjarstjóra í Kefla-
vík. — Alþýðufiokksmenn á
Suðurnesjum eru hvattir til að
sækja ftmdinn vel og stundvís-
lega — Stjórnin,
Breytileg átt, él en létt á milli. I gær var
breytileg átt um land alit, éi við Suðurströndina,
en bjart á Austfjörðum.
í Reykjavík var logn, úrkomulaust, skyggni 30
kílómetrar.
Brennivínið er cini
óvinurinn, sem mannin-
um liefur tekizt að elska.
14 8. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐI0