Alþýðublaðið - 12.12.1964, Blaðsíða 13
Hannes á horninu
Framhald af 2. síðu
vafa um þetta. Það var aðeins átt
við bækur kvenrithöfunda.
VITANLEGA ERU bækur
kvenna mjög misj'afnar, en við eig
um ágæta kvenrithöfunda eins og
Elínborgu Lárusdóttur og Ragn-
heiði Jónsdóttur, og við eigum líka
ósköp lélega kvenrithöfunda. En
þannig er þetta einnig um karl-
mennina. Gæði bóka fara ekki
eftir kynferði höfunda. Þar koma
hæfileikarnir fyrst og fremst til
greina, og þeir eru ekki skammt
aðir jafnt.
HEIMURINN- HEFUR ÁTT fjöl
marga afburða kvenrithöfunda. Og
okkar land hefur jíka átt afburða
góða kvenrithöfunda. Þó að eitt
hvað bókaforlag hirði lítið um
gildi bóka sinna og hæfni höfunda
sinna, þá er það undantekning ög
það nær ekki nokkurri átt, að grípa
til orða, breyta merkingu þeirra
og stimplá konur sérstaklega smán
inni um leið og reynt er að koma
höggi á útgefandann.
ÉG GERI ÞETTA AÐ umtals-
efni vegna þess, að þetta gamla
orð er nú hent á Jofti í nýrri merk
ingu. Þetta lýsir hrokafullum hugs
unarhætti, menntasnobbi og lítil-
mennsku. ,,Getur ekkert gert vel
gengur þó með sperrt stél“.
Hannes á horninu
Polarís
Framhald af síðu 16.
skipum hins nýja kjarnorku-
flota meinaður aðgangur að
Eystrasalti, og að sjálfsögðu
verður þeim einnig bannað að
sigla í landhelgi Frakklands,
bæði á Ermarsundi og Miðjarð-
arhafi.
Búizt er við að kjarnorkuflot-
inn fái bækistöðvar í Bretlandi
og ef til vill á Spáni. Þar hafa
Bandaríkjamenn nú þegar
stóra höfn fyrir kjarnorkukaf-
báta í Rota, sem er 60 mílur
norður af Gíbraltar. Á Miðjarð
arhafssvæðinu mundu Mar-
okkó, Alsír, Líbía, Sýrland, Al-
banía, Júgóslavía og Arabíska
sambandslýðveldið ekki leyfa
skipunum að sigla í landhelgi
(þó yrði þehn leyft að sigla um
Súez-skurðinn).
Ms. „Dronning
Alexandrine"
fer frá Reýkjavík þann 17. des.
n.k. til Færeyja og Kaupmanna
hafnar. Tilkynningar um flutn
ing óskast sem fyrst.
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen.
HúsgagnaverzL Austurbæjar
LYSTA
VERÐ
KR. 15.950.00
SÓFASETTIÐ
Falleg húsgögn gera heimilið aðlaðandi. ★ Prýð-
ið heimilið með húsgögnum frá
HÚSGAGNAVERZLUN
AUSTURBÆJAR
Skólavörðustíg 16
— Sími 24629.
OPIÐ TIL KLUKKAN 6 Í DAG.
Hamrafell
Framh. af 1. síðu.
er langt undir heimsmarkaðsverði
en Hamrafellið stóð til boða til
sömu flutninga fyrir 33 sh. Töldu
eigendur Hamrafells skipið ekki
geta flutt olíuna fyrir lægra verð
enda viðurkenndu Rússar að þeir
stórtöpuðu á þessum flutningum.
Fyrir þessar sakir hefur ekki
litið vel út með verkefni
fyrir Hamrafellið á næsta ári.
Eigendur þess áttu um þá kostl
að velja að leigja skipið eða selja
sem mun einföld leið -og auðfarin
Tekin var ákvörðun um að klóra í
bakkann og halda skipinu áfram
undir íslenzkum fána, að því
kemur að þörf verður á Hamra-
fellinu til að flytja olíu til Is-
lands.
Undanfarin ár hefur Ha^nra-
fellið flutt til landsins 3-4 farma
af olíu fyrir Olíufélagið, frá Suð-
ur-Ameríku, sem fer á Keflavík-
urflugvöll. Verður þeim flutning
um haldið áfram og reynt að
leigja skipið milli þeirra ferða.
Eins mun það á árinu fara í 4-6
vikna klös'-un. Góðar vonir standa
til að unnt verði að halda skip-
inu úti með þessu móti næsta ár
og eftir það verði um örugga flutn
inga að ræða.
RUSK
SMUBSTðeiH
Sætúni 4 - Sími 16-2-27
Billtna ar smnrffur Ojótt og vcl
•djina allwr togtmdir atammlte
Framhald af 1. síffu
áhugamál en að verja öllum stund-
um til að kryfja vandamálin og
finna á þeim heilladrjúga lausn.
Ætla mætti, að Kennedy forseti
liefði þekkt Dean Rusk náið, þeg-
ar hann útnefndi hann í hið vanda
sama embætti utanríkismálaráð-
herra, en svo var ekki. Fundum
þeirra bar ekki saman fyrri en fá-
einum dögum fyrir útnefninguna.
Hlnsvegar þekkti Kennedy hann
af orðspori, því að Rusk hafði
lengi starfað að alþjóðamálum við
ágætan orðstír, þótt aldrei léti
hann bera á sér.
Dean Rusk fæddist í Georgíu-
fylki 9. febrúar 1909. Var faðir
hans prestur sem jók tekjur sínar
með kennslu, en þegar meinsemd
í hálsi varð til þess, að hann
missti röddina, gerðist hann bréf-
beri til að sjá heimili sínu far-
'vHELGAS0N/_ _ A .
SÖOBRyoO 20 !•>/ GRANlT
leqsteínap oq
° plÖtUK ° ■
borða. Og þrátt fyrir þröngan
efnahag kom hann fimm börnum
sínum til mennta. Dean var ágæt-
ur námsmaður og hlaut meðal ann-
ars styrk í Oxford fyrir frábæran
námsárangur, og jafnskjótt og
þann kom heim frá framhalds-
námi í Oxford og Berlín árið
1934, var hann ráðinn aðstoðar-
prófessor í stjórnvísindum og al-
þjóðasamskiptum við Mills Col-
lege í Oakland í Kaliforníu.
Rusk gegndi herþjónustu í
heimstyrjöldinni — var m. a.
varaformaður í foringjaráði Jo-
seph Stillwells í Burma — en að
stríðinu loknu gerðist hann starfs-
maður hermálaráðunéytisins í
Washington. í janúar 1948 gekk
liann í þjónustu utanríkisráðu-
neytisins og naut þar vaxandi álits
og trúnaðar, meðan Harry S. Tru-
mann gegndi forsetastorfum. Hann
sagði af sér, þegar Dwight Eisen-
hower tók við 1953, en var þó ráð-
gjafi John Foster Dulles í ýmsum
málum. Þegar hann hætti störfum
í ráðuneytinu, gerðist hann forseti
Rockefellerstofnunarinnar og var
í því starfi. þegar John F. Kennedy
óskaði eftir, að stjórn hans mætti
njóta starfskrafta hans.
Dean Rusk er maður kvæntur
og eiga þau hjón þrjú börn.
Eiginmaður minn
Kristján Jónsson
bifreiffastjóri Suffurgötu 50, Hafnarfirffl
andaðist að heimili sínu 11. þessa mánaðar
Klara Hjartardóttir og synir;
Innilegt þakklæti til allra þeirra mörgu, nær og fjær, sem
auðsýndu okkur vinsemd og hluttekningu við andlát og jarðarför
Halldórs H. Snæhólm*
Elín Guffmundsdóttir Snæhólm.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. des. 1964 13