Alþýðublaðið - 22.12.1964, Side 2
Kltstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl:
Arni Gunnarsson. — Ritstjómarfulltrúi: Eiöur Guðnason. — Simar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — AÖsetur: Alþýöuhúsiö viO
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskrlftargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Lýðræð/ og peningar
LÝÐRÆÐI byggist á þeirri hugsjón, að allir
•einstaklingar hafi sömu áhrif á stjórn lands síns.
Er þetta tryggt með stjórnarskrá og lögum, sem
næst verður komizt. Hins vegar hefur reynsia
sýnt, að þetta kerfi nær ekki tilgangi sínum, nema
menn sameinist um ákveðnar stefnur og myndi
pólitíska flokka,
Lagalega hafa stjórnmálaflokkarnir jafna að-
stöðu í baráttu sinni. Hins vegar hefur áróðurs-
tækni nútímans orðið dýrari með hverju ári, og
þörf flokkanna fyrir málgögn og starfslið farið vax-
andi. Hefur farið svo, að stjórnmálaflokkar á ís-
landi hafa mjög ólíka aðstöðu til að afla fjár til
starfsemi sinnar. Tveir stærstu flokkarnir hafa að
bakhjarli sterka aðila, sem mikil fjárráð hafa og
geta fengið fé nokkurn veginn eftir þörfum. Hinir
flokkarnir hafa mjög erfiða aðstöðu til fjáröflunar
og mun minna fé til starfsemi sinnar.
Alþýðuflokkurinn hefur frá upphafi barizt fyr-
ir rétti hinna efnaminni landsmanna og verið í
meiri eða minni andstöðu við peningaöflin. Flokk-
urinn hefur því ávallt átt við fjárhagslega örðug-
leika að etja, og hafa þeir farið vaxandi. Sérstak-
lega er útgáfa Alþýðublaðsins flokknum bæði nauð
synleg og dýr, þar sem mikill halli er á rekstri
blaðsins eins og raunar er um öll íslenzk dagblöð,
nema eitt.
Alþýðublaðið hefur síðustu ár notið mikillar
aðstoðar happdrættis, sem er kennt við blaðið.
Treystir Alþýðuflokkurinn á fylgismenn sína og
velunnara, þegar þessi lífæð flokksblaðsins á í hlut.
Lýðræðið er lítils virði, ef sumir stjórnmálaflokk-
ar vaða í peningum, en aðrir verða að takmarka
starfscmi sína vegna fjárskorts.
Bætur trygginganna
SPARIÐ
KAUPIÐ í
SPORIN
Meösta hæð
Fjölbreytt húsgagna-
úrval á 700 fm.
gólffleti
Borðstofuhúsgögn
8 gerðir
Sófasett — mjög
glæsilegt úrval
80 gerðir af áklæðum
S vef nherbergishús-
gögn 10 gerðir
Svefnsófar eins og
fveggja manna
Sófaborð og smáborð
í mjög fjölbreyttu
úrvali.
Seljum frá flestum
húsgagnaframleið-
endum landsins
I. hæð
Karlmannaföt
Drengjaföt
Frakkar
Skyrtur
Bindi
Nærfatnaður
Peysur
Sportfatnaður
Vinnufatnaður
Sportvörur
Jólaskraut
Ritföng
Leikföng
Búsáhöld
Glervörur
II. hæð
Kvenkápur
Kvenhattar
Regnhlífar
Kventöskur
Kvenhanzkar
Kvenskófatnaður
Inniskófatnaður
Kjólar
Kjólasaumur
Undirfatnaður
Lífstykkjavörur
Sokkar
Peysur
Blússur
Greiðslusloppar
Snyrtivörur
Hárgreiðslustofa
Garn og smávörur
U ngbar naf atnaður
Telpnafatnaður
Tækifæriskjólar
Vefnaðarvara
Gluggatjöld
TRABANT-umboðið tilkynnir:
Getum til áramóta afgreitt nokkra station-bíla á'kr. 80.800,00. — Eftir það hækkar bíllinn
um nærri 8 þúsund krónur vegna tollahækkana.
UKAGIÐ ÞVÍ EKKI AÐ GERA GÓÐ KAUP.
Einkaumboð: INGVAR HELGASON, Tryggvagötu 6, sími 19655.
í UMRÆÐUM um fjárhagsmál ríkisins, sem
fram hafa farið síðustu daga, hefur hvað eftir ann-
að komið fram hjá fjármálaráðherra og öðrum for-
svarsmönnum ríkissjórnarinnar, að reiknað sé með
hækkun almannatygginga samhliða væntanlegri
3% vísitöluhækkun kaupgjalds. Er talið sjálfsagt,
að bætur trygginganna hækki með kaupinu.
Þessi skilnmgur er nýr af nálinni hér á landi.
Til skamms tíma hafa tryggingar ekki hækkað með
kaupi, heldur hefur leiðrétting þeirra verið langt
á eftir annarri verðlagsþróun. Það er fyrst og
fremst verk Alþýðuflokksins, að vjðhorf til trygg-
inganna hefur breytzt á þennan hátt, og hefur ver-
ið um þetta ágætt samstarf við Sjálfstæðisflokk-
inn. Vonandi ríkir þessi skilningur framvegis,
þannig að bætur almannatrygginga breytist með
almennu kaupgjaldi.
Söluumboð: BÍLAVAL, Laugavegi 92, sími 19092.
Skemtileg
Jólagjöf
Málarinn h.í.
Sími 11496.
Myndir til að mála eftir númerum.
2 22. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ