Alþýðublaðið - 22.12.1964, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 22.12.1964, Blaðsíða 11
ÍSLÁNDSMÓTIÐ í HANDKNATTLEIK: Spennandi leikir og óvænt úrslit ---------------------------r—^---------TiniiiirTi^rr ifrBjiUWi.piB^q ÍSLANDSMÖTIÐ í handknattleik hófst að Hólogalandi síðastliðið föstudagskvöld. Ásbjörn Signrjóns son, formaður HSÍ, setti mótið með stuttri ræðu. Fyrsta kvöld mótsins voru háðir tveir leikir í 1. deild karla, milli Víkings og KR og Fram og Ár- manns. Báðir leikirnir voru tví- sýnir mjög og úrslit komu nokkuð, á óvænt. Ekki var útséð um úr- slit leikjanna fyrr en á síðustu sekúndunum. Leikur Víkings og KR var mjög jafn allan leiktimann, en l>ó höfðu KR-ingar frekar yfirhönd- Ina. En Víkingur gaf sig ekki og tókst að jafna metin á síðustu sek- úndunum. Eftir atvikum má segja, að úrslitin 17:17 hafi verið nokk- uð sanngjörn, þó að KR-ingar hafi verið nær sigri, 1 ★ Fram tapar. Lið Ármanns hefur verið í stöð- ugri framför undanfarin ár, en þó verður að segja, að sigur yfir ís- jjiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiU | KNATTSPYRNUSPIL | KÖRFUBOLTASPIL IBORÐTENNIS | f UMFERÐASPIL | HOLUTENNIS .! TAFLMENN ! TAFLBORÐ : 5 - = I HELLAS jjj í = I Skólavörðustíg 17,‘ I ♦ xiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiininiiiiiiiiiiiiiiiimiiirilitnniiiiiniiit landsmeisturum Fram hafi nokk- uð komið á óvænt, sérstaklega þar sem Einar Sigurðsson og Lúðvík Lúðvíksson vantaði í liðið. í lið Fram vantaði Gylxana tvo. Tveir leikmenn Ármaxms, þeir Þorsteinn Björnsson og Hörður Kristinsson báru af og má öðrum fremur þakka þeirn hinn verðskuldaða sig- ur. Lokatölurnar voru 24:22 Ár- manni í vil. íslandsmótið hélt áfram á sunnu dag og þá fóru m. a. fram tveir leikir í II. deild. Fyrst léku ÍR og Keflvíkingar. Leikurinn var mjög , jafn allan tímann og aldrei mun- j aði nema tveim mörkum á annan hvorn veginn. ÍR-ingar höfðu þó oftar yfirhöndina og segja má, að þeir hafi verið einstaklega klaufsk- ir að tryggja sér ekki bæði stigin. Undir lokin náðu Keflvíkingar tveim mörkum yfir og ÍR tókst að jafna á síðustu mínútunum og með tilliti til þess, má segja að jafn- tefli 25:25 hafi verið sanngjarnt. Lið Keflvíkinga undir stjórn Pét- urs Bjarnasonar hefur tekið ótrú- legum framförum, en beztu menn- irnir voru Magnús Torfason og markvörðurinn. ★ Heppnir Valsmenn. Valsmenn áttu í miklum erfið- leikum með Þrótt og sigurinn hékk á bláþræði og reyndar má segja, að sigurmarkið hafi verið hreint lieppnismark. Þróttur hefði átt fyllilega skilið að hljóta annað stigið. Þegar tvær mínútur voru eftir var staðan 19:18 Þrótti í vil, en þá fengu Þróttarar á sig tvÖ klaufamörk, sem gerði út úm allar vonir þeirra. Valsliðið er skemmti- legt og mjög jafnt, en beztur er fyrirliðinn Sigurður Dagsson, markmennirnir stóðu sig einnig vel. Guðmundur Gústavsson var langbeztur í Þróttarliðinu. í 3. flokki karla vann FH ÍBK með 7:4. íslandsmótið heldur á- fraxn á sunnudaginn. mwuwmwwwmwuww WMMMMMMMMMMXMMW Skozk blöð Jofa Þóráif ÞÖRÓLFUR Beck lék með Rangers á laugardag, er liðið vann Third Lanark með 5-0. Skozku blöðin hrósa Þórólfi mjög fyrir leikinn, hann skor- aði eitt ágætt mark og sýndi yfirleitt mjög jákvæðan leik. Glasgow Rangers færir sig stöð ugt ofar í afrekaskrá 1. deild- ar og er í 4. sæti eins og er, en efst er Hearts frá Edin- borg. MMMtMMlMMMMMMMMMM HKT, Finnlandi sigraði Gladsaxe, Danmörku í Evrópubikarkeppn- inni í körfuknattleik 127-53 í sið- ari leik félaganna. Finnarnir mæta Real Madrid í næstu umferð, en Real sigraði í keppninni í fyrra. ■' ' ' ' -- -****-< — ... -* A-1.IW V , ,*- * . * - . Sigurður Dagsson, Val átti góðan leik gegn Þrótti. R vann Coilegi- ans með 63:47 ÍR-INGAR LEIKA VIÐ FRÖNSKU MEISTARANA í 2. UMFERÐ SÍÐARI leikur ÍR og Collegians basketball club í Evrópubikar- keppninni fór fram í Belfast sl. laugardag. ÍR sigraði eins og vænta mátti, en munurinn var minni en í fyrri leiknum hér heima, eða 63 stig gegn 47. ÍR byrjaði leikinn glæsilega og komust í 14-2, en þá taka írarnir ágætan sprett og tókst að jafna metin 22-22. í leik- hléi hafði ÍR þó betur 30-26. ÍR tryggði sér þó öruggan sig- ur í síðari hálfleik og munurinn var 16 stig í lokin. Leikurinn fór fram í badmin- ton höll og settar voru upp bráðabirgðakörfur og algjör- vanir og hafði þetta að sjálf- sögðu, sín áhrif. Beztur ÍR-inga var hinn 16 ára gamli leikmaður, Birgir Jakobssön, sem skoraði flest stigin eða 25 alls. ÍR heldur nú áfram keppni og mætir frönsku meisturunum, sem eru frá Ly- on, í 2. umferð. Þetta er í fyrsta sinn, sem íslenzkt lið kemst í Evrópubikarkeppni. v mÓTTAFHÉTTIR STÚTtUM DREGIÐ var um það fyrir helgi hvaða lið leika saman í næstu um- ferð evrópubikarkeppninnar í knattspyrnu, en eftirtalin lið voru dregin saman: Glasgow Rangers - Inter, Benfie - Real Madrid, Liverpool - FC Köln, Vasas, Búdapest - D. W. S. Am- sterdam. RÚMENAR sigruðu Vestur-Þjóð- verja í handknattleik um helgina með 22-14. DENIS Law var kjörinn bezti knattspyrnumaður Evrópu árið 1964 í atkvæðagreiðslu, sem „France Football“ gekkst fyrir. Hann hlaut 61 stig, eða 18 fleiri en Suarez, Inter, sem var næstur. Þriðji var Amancio, Real Madrid með 38 stig. Jimmy Greaves, Tot- tenham varð sjötti með 19 stig. Glæsilegt úr- val af VETRARKAPUM, REGNKAPUM, REGNHLÍFUM, REGNHÖTTUM, TÖSKUM og FÓÐRUÐUM SKINNHÖNZKUM. BERNHARÐ LAXDAL Kjörgarði. Auglýsingasíminn er 14906 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. des. 1964 %%

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.