Alþýðublaðið - 22.12.1964, Side 8

Alþýðublaðið - 22.12.1964, Side 8
Gamalt furðumál varð Eskol að falli EITT dularfyllsta mál síðari tíma, mál Pinkas Lavons fv. landvarna- ráðherra ísraels, hefur orðið stjórn Levi Eskhols forsætisráðherra að falli. Hinar ýmsu rikisstjórnir, sem setið hafa að völdum í ísrael síðan 1954 þegar mál þetta var á döfinni, hafa haldið kringumstæð- um þess leyndum. Nýlega krafðist Davíð Ben Gurion, fv. forsætis- ráðherra, þess, að ný rannsókn yrði gerð í málinu. Krafa Ben Gurions, sem var studd af fyrrverandi dómsmála- ráðherra hans, Dov Joseph, og Moshe Ben Zeeva ríkissaksóknara, varð til þess, að Levi Eskhol sagði af sér. Þótt Ben Gurion sé aftur isetstur að á . amyrkjubúi í eyði- mörkinni er hann síður en svo hættur afskiptum af stjórnmálum. Hann veldur Eskhol ef til vill meiri erfiðleikum en Adenauer fyrrum kanzlari veldur Erhard kanzlara Vestur-Þýzkalands. Ben Gurion hefur hótað að kljúfa flokk sinn, Mapai-flokkinn, og stofna eigin flokk verði rann- sókn ekki gerð í málinu á ný. — Fróöir menn telja, að Levi Eskhoí hafi sagt af sér til þess að geta aftur komið til valda á þann hátt, að hann losni við áhrif Ben Gurions, sem honum og fleirum finnast hvimleið. Eskhol vonast til að vinna ótvíræðan meirihluta í stjórn flokksins sem hann hefur ekki haft til þessa. Stjórn hans sit- ur áfram til bráðabirgða. Eskhol er hins vegar í erfiðri aðstöðu, þar eð hann var einn helzti maður nefndar þeirrar, sem hreinsaði Lavon af sök 1960. Nið- urstöður þessarar nefndar dregur Ben Gurion nú í efa. En Eskhol er andvígur nýrri rannsókn vegna fyrri afskipta sinna af málinu. Auk þess telur hann óviturlegt að ýfa upp gömul sár og samstarfsflokk- ar hans í ríkisstjórninni mótmæla því eindregið, að niðurstöðum nefndarinnar frá 1960 verði breytt á nokkurn hátt. ★ DULARFULLT MÁL í ísrael hefur verið bannað að birta einstök atriði í sambandi við „öryggisafglöp“ þau, sem Ben Gurion sakar Lavon um að hafa átt sök á. En almennt er talið, að mál þetta standi í sambandi við handtöku tíu manna og einnar konu í Egyptalandi 1954. Sagt var, að þau hefðu m. a. reynt að kveikja í bandarískum skrifstofum, þ. a m. skrifstofu bandarísku upp- lýsingaþjónustunnar í Alexandríu. Fólki þessu var stefnt fyrir rétt, gefið að sök að hafa stundað njósn- ir í þágu ísraels. Tveir voru dæmd ir til dauða og líflátnir, einn framdi sjálfsmorð, tveir voru Tveir gamlir menn, sem eru nýjum lciðtogum þungir í skauti: Davíð Ben Guríon og Konrad Adenauer. dæmdir í ævilangt fangelsi, tveir voru sýknaðir og hinir sættu minnl refsingum. Þetta gerðist á sama tíma og ísraelsmenn voru mjög áhyggju- fullir vegna aukinnar vináttu, sem virtist hafa tekizt með Egyptum og Bandaríkjamönnum. Talið var að skemmdarverkin í Egyptalandi hafi átt að spilla þessari bættu sambúð Egypta og Bandaríkja- manna. Á því mun leika enginn vafi, aS hin öfluga leyniþjónusta ísraels- manna, Shin Beth, hafi skípulagt skemmdarverkin og að þeim hafi stjórnað Abraham Dar ofursti, öðru nafni „John Darling”, HRAÐFERÐI ÖRUGG ÞJÓNUSTA |||| r ýif " .. •••• •— j . r | ; ; 1 g * •' Js.v A-tw /> HAGKVÆM KJÖR 8 22. des. 1964 — ALÞÝÐUBLAGIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.