Alþýðublaðið - 31.12.1964, Qupperneq 16
mWWWWMWWWWWWWWMMWWWWWWWWMWWWMWtWWWWMWW
Miklar líkur á að
flotinn stöðvist
VIÐTAL VIÐ JÓN SIGURÐSSON
Reykjavík, 30. des. — EG.
VERKFALL hefur verið boð-
að á bátaflotanum sunnanlands
frá og með 1. janúar, takizt
samningar ekki fyrir þann
tíma. Alþýðublaðið ræddi í
dag við Jón Sigurðsson, for-
mann Sjómannafélags Reykja-
víkur og taldi hann harla litt-
ar líkur á að samkomulag
mundi nást fyrir þennan tíma
og mundi því koma til vinnu-
stöðvunar eins og boðað hefur
verið.
Sáttafundur var haldinn í
gærkvöldi og stóð hann til kl.
3 um nóttina og annar fund-
ur er boðaður með fulltrúum
útvegsmanna og sáttasemjara
í kvöld.
— Hvað mun þessi vinnu-
stöðvun ná til margra, ef hún
kemur til framkvæmda?
Öll félögin innan Sjómanna-
sambands íslands, hafa boðað
vinnustöðvun, en þau félög eru
í Reykjavík, Hafnarfirði,
Keflavík, Akranesi, Grindavik
og Sandgerði. í Sandgerði mun
hins vegar ekki koma til
vinnustöðvunar þar eð skeyti
með heimiid til samningsupp-
sagnar misfórst í meðförum
Landssímans og var af þeim
sökum ekki hægt að segja upp
samningum í tæka tíð. í þessum
félögum eru samtals um 2500
JÓN SIGURÐSSON.
meðlimir en vinnustöðvunin
nær ekki til þeirra allra. Eg
mundi telja, sagði Jón Sigurðs
son, að 170-180 bátar myndu
stöðvast og þá myndu á að
gizka 1600-1700 manns leggja
niður vinnu.
— Um hvað stendur mestur
styrinn?
— Einkum er deilt um breytt
hlutaskipti, ef veitt er með
línu eða í þorskanet, þar vilj-
um við fá dálitla hækkun. Við
förum fram á að mannskapur-
inn fái 34% af aflaverðmætinu
á línu og netum, en nú sem
stendur er prósentutalan 29,5
%. Þetta er í rauninni aðal-
krafan, en auk þess höfum við
sett fram kröfur um ýmsar aðr
ar lagfæringar' fyrst farið er
að hreyfa við samningunum á
annað borð. Við viljum til
dæmis fá 5% hækkun á hluta-
tryggingu og öðrum launalið-
um áhafnar. Við fórum fram
á þetta við LÍÚ strax í sumar,
þar eð ákvæði eru í samn-
ingunum um að kaup sjómanna
hækki, ef hækkun verður á
kaupi landverkafólks. Á þetta
neitaði LÍÚ að fallast á þeim
grundvelli, að júnisamkomu-
lagið, sem gert var milli verka
lýðssamtakanna, vinnuveitenda
og ríkisstjómarinnar, hefði
ekki haft í för með sér neina
kauphækkun. Eg get skotið því
hér inn í, að þeir samningar
sem við nú höfum eru að mestu
óbreyttir frá þvi í ársbyrjun
. árið 1961, er þeir voru gerð-
ir.
Annað atriði, sem við viljum
fá lagfært er það, að gerðir
verði sérstakir samningar um
veiðar í þorsknót, en ekki eru
nú til neinir samningar um það
efni. Um þetta atriði ber enn
allmikið á milli. Útvegsmenn
vilja að um þetta gildi sama
Framh. á 15. síðu.
WWMWMMWMWWWWMMMMWWMWWMWWWWWWWMWWWWWWMWWtWMMtW»WWW»
Hávaðarok og
skafrenningur
Hvolsvelli, 30. des. ÞS-ÁG.
UM MIÐJA síðastliffna nótt
gerði hér hávaffa rok á norffan af
norð-austan meff mikliun skafbyl.
■Snjór var lítill fyrir á láglendi, og
liefur þetta því ekki komiff mikið
aff sök gagnvart samgöngum í
Rangárvallasýslu.
Að vísu var vegurinn i Austur-
og Vestur-Landeyjum all erfiður,
og voru mjólkurbílarnir lengur á
leiðinni en venjulega gerizt. Erf-
itt var að aka eftir vegunum
vegna skafrennings, enda liurfu
brautirnar gersamlega í kófinu. —
Hér er fyrir löngu orðið haglaust
fyrir allar skepnur, bæði kindur
og hross. Svo langvarandi kuldar i
og snjógangur hafa ekki verið hér
£ mörg ár. Vonast menn nú eftir
að vorið verði betra fyrir vikið.
Mjólkurbílar, sem vanir eru að
koma hingað um kl. 10 á morgn-
ana, voru ekki komnir klukkan
14 í dag. Meiri snjór mun vera
í Mýrdalnum en í Rangárvalla-
sýslu, og vegir þar eftir því erf-
iðari. Engir bílar fóru héðan í
morgun, nema áætlunarbíllinn,
sem er sterkur og stór, og kemst
vafalaust á leiðarenda án teljandi
erfiðleika.
Hvolsvellingar og Rangæingar
munu fagna nýja árinu í samkomu
húsinu hér annað kvöld. Skemmt-
unin hefst eftir klukkan 12 eins
og á hverju ári. Hefur þetta á-
vallt verið hinn bezti gleðskapur
og staðið fram undir morgun á
nýársdag.
STOLIÐ ÚR
KVENTÖSKU
Reykjavík, 30. des. — ÓTJ.
ÞÚSUND króna seðli var stoliff
úr kventösku í verzlun hér í bæ
í gær. Tvær stúlkur á fermingar-
aldri höfffu komiff inn í- verzlun-
ina, og fengið aff máta þar ein-
hver föt. Til þess fóru þær inn
í bakhcrbergi, þar sem veskiff
var. Nokkru eftir aff þær voru
farnar ætlaði konan aff nota pen-
ingana, en greip þá í tómt. Hún
kveffur engan annan hafa farið
inn í bakherbergiff.
Alþýðublaðið kost-
ar aðeins kr. 80,00
á mánuði. — Gerist
áskrifendur.
Fimmtudagur 31. des. 1964
Bandarískar vörur
fyrir 95
Miðvikudaginn 30. desember
1964 voru gerffir tveir samningar J
á milli ríkisstjórna Bandaríkj-
anna og íslands um kaup á banda
rískum landbúnaffarvörum. Samn-
ingana undirrituffu James K.
Penfield, sendiherra Bandaríkj-
anna, og Guðmundur í. Guff-
mundsson, utanríkisráðherra.
Samningar um kaup á banda-
rískum landbúnaðarvörum hafa
verið gerðir árlega við Banda-
ríkjastjórn síðan 1916. Hinir nýju
samningar, sem gilda fyrir árið
1965, gera ráð fyrir kaupum á
hveiti, maís, byggi, tóbaki, hrís-
grjónum, soyjabauna- og bómull-
arfræsolíum.
Annar samningurinn er að fjár
hæð 39 milljónir króna og hinn
að fjárhæð 56 milljónir króna.
Gera má ráð fyrir, áð 65% af and
virði þeirra gangi til lánveitinga
vegna innlendra framkvæmda. —>
Endurgreiðslur slíkra lána færu
fram á um 20 ára tímabili, i krón-
um samkvæmt fyrrnefnda samn-
ingum, en í dollurum samkvæmt
þeim siðarnefnda.
BIFREIÐIN FAUK
ÚTAF VEGINUM
Akranesi, 30. des. HDan.-ÁG.
MJÓLKURBIFREIÐ, sem var
á leiff til Akraness, fór út
af þjóffveginum í Innri-Akranes-
hreppi um klukkan 11 í morgun.
Tveir menn, sem stóffu á palli bif-
reiffarinnar, slösuðust, er bifreiff-
in valt, annar þeirra var fluttur
í sjúkrahús.
ig mikið í andliti. Bifreiðarstjór-
inn slapp ómeiddur.
i
Er bifreiðin fór um veginn ekki
langt undan bænum Miðhús, lenti
hún á miklum svellbunka, eftir að
hafa ekið lengi í djúpum hjólför-
um og miklum vatnselgi. Veður-
ofsinn var svo mikill, að þegar
hún kom á svellbunkann, fauk hún
til á veginum og lenti út af hon-
um.
Á palli hennar stóðu tveir
ménn. Stóðu þeir innan um stóra
mjólkurbrúsa, sem allir voru full-
ir af mjólk. Er bíllinn valt urðu
mennirnir fyrir brúsunum. Annar
þeirra, Ólafur Elíasson, Heiðar-
braut 41 gat sig ekki hreyft og
var hann fluttur í sjúkrahús. —
Báðir mennirnir hrufluðust einn-
Óhemjuálag
Reykjavík, 30. des. — OÓ.
ÁLAG á sjálfvirka símakerfinu i
Reykjavík hefur aldrei veriff eins
mikið og í dag. Hefur stöffin ekki
getaff annaff öllum þeim hringing-
um, sem henni hafa borizt. Hefur
| þetta lcitt til þess aff margir sím-
| notendur hafa þurft aff bíffa lengf
i eftir aff fá són, allt upp í 30 mín.
' Ástæffan fyrir þessum miklu síma
hringingum mun vera óveðriff,
sem hér liefur geysað. Fólk hefur
fariff sem minnst út fyrir dyr, en
reynt að sinna erindum síntun
gegnum símann eftir því sem viff
verffur komlff. Þá liefnr veriff
hringt mjög mikiff í bílastöffvarn-
ar, en miög fáir leigubílar hafa
verið í akstri vcgna ófærffarinnar.
IMMmWMWWMWWMMWMWMWWWWMWMMMtMMMMMtWWWMMWWWWWMMWWM
NÝÁRSFAGNAÐUR
Föstudaginn 8. janúar næstkomandi verffur nýárstagnaður Alþýffuflokksfclags Reykjavíkur í Leik-
húskjallaranum. Vel er til hans vandaff, eins og i fyrra, en þá var hann einnig haldinn í Leikhús-
kjallaranum og komust þá færri en vildu. Ekki er enn búiff aff ákveða endanlega dagskrá kvölds-
ins, en nú þegar er hægt aff skýra frá því, aff Emil Jónsson, félagsmálaráffherra, formaffur Alþýffu-
flokksins, mun flytja þar nýársávarp og lcikarar nir Rúrik Haraldsson og Róbert Arnfinnsson munu
flytja þar nýjan skemmtiþátt eftir Ragnar Jóhann esson. — Kvöldverffur verffur framreiddur fyrir
. þá, sem þess óska. Nú þegar er hægt áff panta affgöngumiffa á skrifstofu Alþýffuflokksins, símar
15020, 16724. — Skemmtinefndin.
WWWMMWWMWWMWWMMWWMWWWVWMWWIMWWMWWMMWWMMMMMMWMWWMW