BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Blaðsíða 1
□□
í.-2.’82 Félagsrit Bindindisfélags Ökumanna rr^“^rnnaL49múia6
Ritstjóraarþaukar
Hér kemur fyrsta tölublað BFÖ-frétta á þessu ári.
Mikil seinkun hefur orðið á útkomu þesa blaðs. Það
hefur verið stefna BFÖ að koma út fjórum blöðum á
ári. Það er Ijóst að það tekst ekki þetta árið. Ritstjóri
tekur þar alla sök á sig. Miklar annir hafa verið hjá
honum fyrri hluta ársins og sumartíminn fer yfirleitt í
annað en að koma út blaði. Nú er ætlunin að gera
bragarbót, um leið og afsökunar er beðið. Eins og sjá
má er þetta venju fremur myndarlegt blað. Víða er
komið við en þó lögð áhersla á að greina sem best
frá mjög svo kröftugu starfi BFÖ á þessu herrans ári
1982. Óhætt er að segja að mörg járn hafi verið (
eldinum, þó að ökuleiknin beri þar langhæst. Nú þeg-
ar það virðist vera landlæg tíska að keppa í alls konar
röllum, með aðaláhersluna á hraða og spennu, þá
hefur BFÖ haldið sínu striki. Aldrei hefur verið kvikað
frá því að það væri áhersluatriði númer eitt í umferð-
inni, að hafa fullkomið vald yfir bifreið sinni. Þekkja
hana út í gegn, hafa til að bera ökuleikni. Þess vegna
hefur verið lögð áhersla á að auka umfang ökuleikni-
keppna BFÖ frá ári til árs. Fjölga þeim, bæta þær. Nú
á þessu ári var í fyrsta sinn keppt ( sérstökum kvenna-
flokki og tókst sú nýbreytni mjög vel. Eins og fyrri ár
var farið víða um land. Framkvæmd keppnanna tókst
mjög vel og á framkvæmdastjóri BFÖ sérstakar þakkir
skyldar fyrir dugnaðinn. Að venju var stjórn BFÖ stór-
huga og endurbætti bílakost sinn. Það er reyndar for-
senda fyrir því að hægt sé að halda keppnum sem
þessum úti, að aðstaða stjórnanda sé góð og að bif-
reiðin verði aldrei til þess að fella þurfi niður keppni.
Nánar er greint frá bílakaupunum á öðrum stað í
blaðinu. Rétt er að geta þess að BFÖ stjórnaði ( sam-
vinnu við Umferðarráð og Æskulýðsráð vélhjóla-
keppnum á 8 stöðum víðsvegar um landið. Það sam-
starf tókst mjög vel. Einnig starfar á vegum BFÖ reið-
hjólahópur og fór ( sumar fram brautakeppni á hans
vegum. Á þessu má sjá að skipulagning og fram-
kvæmd keppna í hinum ýmsu greinum umferðarinnar
er orðinn geysilega viðamikið starf og sem sífellt
eykst. Af mörgu fleiru er að taka úr starfinu en þetta
er það sem hæst ber en þessir þættir starfsins koma
nánar fram á innsíðum blaðsins.
Nú er komið haust, birtu tekið að bregða og börnin
farin að sækja skólann enn á ný. Það er orðið árvisst
að með haustdögum skellur yfir okkur slysaalda. Akst-
ursskilyrði versna og umferð gangandi eykst. Öku-
menn aka ennþá miðað við bestu skilyrði sumarsins.
Hvað er hægt að gera til varnar þessum árvissu slysa-
bylgjum? Herða viðurlög auka áróður, auka eftirlit?
Eitthvað af öllu þessu þarf efalaust að koma til. Fyrst
og fremst þarf ökumaðurinn þó að vera þess meðvit-
aður að hann situr við stjórn stórhættulegs tækis og
að hann megi eiga von á því hverja stund, að nú þurfi
hann að framkvæma neyðarráðstafanir. Ef slfk
vitneskja byggi með hverjum ökumanni væri stórt skref
stigið. Annað þarf að koma til. Stórlega hert viðurlög.
Lögreglan verður að hafa heimild til að taka ökuskír-
teini af mönnum ef þeir sýna vítavert gáleysi við
akstur. Ég veit til þess að lögreglumenn í Danmörku
hafa heimild til að krefjast sektargreiðslu á staðnum.
Á það t.d. við akstur yfir gatnamót á móti rauðu Ijósi.
Eins eru aðilar er ekki nota bílbeltin látnir greiða sekt-
ina á staðnum og hefur það eflaust átt sinn þátt í hve
notkun öryggisbelta varð fljótt almenn ( Danmörku.
Eins hafði ég fregnir af manni í Frakklandi er ók yfir
gatnamót á móti rauðu Ijósi. Hann var staðinn að
verki og ökuskírteinið var tekið af honum á staðnum
og hann síðan sviptur þvi (tvo mánuði. Aðgerðir sem
þessar skapa aga og virðingu fyrir reglunum, en þá
þarf líka að vera samræmi í framkvæmdinni.
Það er Ijóst að sú málamyndasamþykkt um lögleið-
ingu notkunar á bílbeltum er Alþingi gerði, dugar
skammt. það verður að koma til skylda um notkun.
Fyrr verður nýting ekki almenn. Eins telur undirritaður
að rétt sé að fara að dæmi Svía og lögleiða stöðuga
notkun bllljósa. Það er alveg víst að slíkt myndi draga
mikið úr slysatíðni. Það er algeng afsökun/skýring við
árekstur „ég sá bara engan bíl". Þetta eru nokkur
dæmi um aðgerðir sem áreiðanlega drægju úr fjölda
slysa. Margt annað þarf að koma til. BFÖ mun berjast
fyrir betri umferðarmenningu og halda áfram um ók-
omin ár, sem hingað til, að benda á úrbætur á því
sem betur má fara. Við verðum að vinna minnug þess
að dropinn holar steininn. Sv.H.Sk.