BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Blaðsíða 11

BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Blaðsíða 11
inn í öflun nýrra félaga úti á landsbyggðinni, en von- andi bætir framhald þessa starfs úr því og þeir sem kynnast félaginu sjái ástæðu til að gerast félagar og leggja lið. Lokapunktur hverrar keppni er þátttaka sig- urvegara í norrænni ökuleikni sem haldin hefur verið í samvinnu við General Motors í Þýskalandi s.l. tvö ár. Mikill ávinningur var að þeirri þátttöku sem jók víðsýni og reynslu bæði keppenda og fararstjóra. Nokkur kostnaður fylgdi utanferðum, en sem oftar kom Ábyrgð hf. myndarlega til móts við vandann og verði ferðirnar mögulegar. Góðaksturskeppni var haldin í umsjá Reykjavíkurdeildar, sem gengið hefur vel. Þá annaðist félagið framkvæmd ökuleikniatriða á þjóðhá- tíðardaginn 17. júní 1980, en þátttakendur voru allir félagar í Fornbílaklúbbi íslands, og kepptu á eldri bílum. Þetta var liður í hátíðahöldum þjóðhátíðardags- ins og vakti töluverða athygli. FÉLAGAFJÖLGUN Snemma þessa árs samþykkti stjórn BFÖ að efna til herferðar er fékk yfirskriftina „Ég safna nýjum félög- um“ og stóð hún yfir um þriggja mánaða skeið. Öllum félögum BFÖ var send lítil blökk með eyðublöðum fyrir nýja félaga. í tengslum við söfnunina var efnt til happ- drættis, þar sem þeir einir fengu miða sem gerðust nýjir félagar eða söfnuðu þeim. Átak þetta færði félag- inu yfir 60 nýja félaga, en félagar eru nú 120 fleiri en í upphafi starfstímabils. LOKAORÐ Ég hefi tekið þann kost að vera ekki langorður í skýrslu stjórnar. Ég lít svo á að útsending stjórnarf- undargerða og fundargerða framkvæmdaráðs hafi heldur verið rök fyrir því, þar sem stjórnarmenn og deildarstjórarnir geta með þeim hætti fylgst með starfi stjórnar jafnóðum. Ég tel nauðsynlegt að þetta þing ræði svo sem kostur er hvað betur mátti fara, og byggi á þeirri reynslu umræður um framtíðarverkefni félagsins. Að fortíð skal huggja er framtíð skal byggja. Margt hefðum við viljat gera meira og betur. Margar hugmyndir hafa ekki náð fram að ganga vegna tíma- skorts, en við skulum reyna að nýta þær á næsta starfstímabili. Ég hef ákveðið að láta af starfi forseta BFÖ á þessu þingi. Starfstímabilið hefur veitt mér mikla ánægju og samstarf við samstarfsmenn verið mjög gott. Ég ber engan kviða fyrir áframhaldandi starfi BFÖ þótt einhverjar mannabreytingar verði í stjórn. Til þess er mannaval of mikið og sá starfsandi sem ríkt hefur ráðið ferðinni. Um leið og ég þakka fyrir það tækifæri sem mér var veitt í forystuhlutverki, vil ég þakka þeim sem með mér hafa starfað og oftlega bjargað mínu skinni í timans önn og amstri. Ég undrast oft þá fórnfýsi sem félagar hafa sýnt er starfað er að málefnum félagsins, en trúlega er það sú kenning sem ræður að vitundin um að góðu málefni er lagt lið, er meiri hvíld en nokkurn grunar og svo hitt að velgengni í góðri samvinnu er hvatning til enn meiri starfa. Hvetjum aðra til þátttöku í starfi að bindindi og bættri umferðarmenningu. Gunnar Þorláksson. Eftirtaldir aðilar hafa styrkt Öku- leikni BFÖ 1982 og færum við þeim bestu þakkir fyrir. Pennaviðgeröin, Ingólfsstræti 2, 101 Rvík, S.13271 Prenthúsið sf., Barónsstíg 11 b, 101 R., S.26380 Radíóstofa Vilbergs og Þorsteins, Laugavegi 80, 105 Rvik, S. 10259 Rafeindaiðjan, Skeifunni 4, 108 Rvík, S. 83311 Rafgeymasalan hf., Dalshrauni 1,220 Hafnarf. S.51275 Ragnar Björnsson-húsgagnabólstrun, Dalshrauni 6, 220 Hafnarf. S. 50397 Regnbogaplast-Skiltagerð og plastiðnaður, Hverfisgötu 74, 101 Rvík S. 25570 Samvinnutryggingar gt, Ármúla3, 105 Rvík, S.81411 Sjónvarpssmíðastöðin sf., Síöumúla 2, 105 Rvík.S. 39090 Studíó Guðmundar, Einholti 2, 105 Rvík, S. 20900 Söluturninn Hárið, Efstalandi 26, 108 Rvík, S. 39522 Söluturninn v/Sogaveg, Sogavegi 1, 108 Rvík S. 31060 Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Aðalstræti 6, 101 Rvik, S. 22280 Tómas Einarsson-tannlæknastofa, Æsufelli 6. 109 Rvík, S. 75708 Þumalína-barnafataverslun, Tumi Þumall-matvöruverslun Leifsgötu 32, 101 Rvík, S. 22544 Úðafoss-fatapressa, Vitastíg 13, 101 Rvik, S. 12301 Vatnsvirkinn hf., Ármúla 21,105 Rvík, S. 85966 Verkfræðistofan Itak hf., Melhaga 5, 107 Rvik, S. 26305 Verzlunarbanki Islands hf., S. 27200 Verslunin Anna Maria, Laugavegi 11, 101 Rvík, S. 29430 Verslunin Blóm og kerti, Eddufelli 2, 109 Rvík, S. 78100 Verslunin Casa, Borgartúni 29, 105 Rvík S.20640 Vougehf., Skólavörðustíg 12, 101 Rvik, S.82871 Skoifunni 17 108 Roykjavík — tcoland R»nl - A . Car • Tat.: • 81300 • 813S7 • (7*000 • 43205) BMALEíGA Bjðrn & Jón sf., c/o Bilaryðvðrn hf., 11

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.