BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Síða 5

BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Síða 5
Sveinbjöru Jónssou byggmgameistari — minniug — í byrjun þessa árs lést einn dyggasti stuðningsmaður BFÖ. Sveinbjörn starfaði mikið fyrir BFÖ og eftir að hann dró sig í hlé úr hinu daglega starfi, þá studdi hann okkur ætíð með ráðum og dáð. Hann var kjörinn heiðursfélagi BFÖ1978. Sveinbjörn var einn af aðalhvatamönnum að stofnun Ábyrgðar hf. tryggingarfélags bindindismanna. Helgi Hannesson formaður Ábyrgðar og fyrrum forseti BFÖ skriíaði í Morgunblaðiðnokkurkveðjuorðtil Sveinbjörns. Ritstjórn ákvað að fengnu leyfi Helga Hannessonar að birta minningargreinina í BFÖ-blaðinu. Sveinbjörn Jónsson, byggingameistari, er látinn, 85 ára að aldri. Við andlát hans er fallinn frá mikill félagshyggju maður, hugmyndaauðugur athafnamaður, sem mark- að hefur fjölda framfaraspora í íslensku þjóðlifi. Hann var síleitandi verkefna, er leyst gætu af hólmi ríkjandi óhentug vinnubrögð á fjölda mörgum sviðum. Hann var frumherji nýrra stefna í iðnaði og orkunýtingu. Hann lagði gjörva hönd að verki til framkvæmda hugmyndum sínum Sveinbjörn var maður sem lét sér ekkert óviðkomandi varðandi þau mál, sem hann taldi til heilla og hamingju þjóðar sinnar. I fari hans voru auðgreind þau sérein- kenni, sem þeir menn er aðhyllast hugsjónastefnur eiga öðrum fremur. í öllu því umróti, sem er ráðandi einkenni fyrir veröld okkar í dag, þar sem flestir eru haldnir vantrú og efa- semdum, þarf hugrekki til að trúa og enn meira hugrekki til að játa trú sína, hvort sem það er um að ræða ákveðin trúarbrögð eða félagshreyfingar, sem á hugsjónum byggjast. En slíkt hugrekki átti Sveinbjörn í ríkum mæli. Hann var mikill trúmaður og ötull talsmaður alls þess, er hann áleit að þroskað gæti siðgæðisvitund þjóðarinnar. í samræmi við þetta lífsviðhorf sitt gerðist Sveinbjörn virkur félagsmaður bindindishreyfingarinnar í landinu. Hann studdi við bakið á ýmsum þeim, sem brjótast vildu undan ofurvaldi vínnautnarinnar, og oft leiddi sá stuðn- ingurtil sigurs. En þó hann teldi mikils virði að slíkur sigur næðist, vissi ég um þá skoðun hans, að mest um vert væri að ná sem bestum árangri í baráttunni gegn áfengisbölinu með fyrirbyggjandi aðgerðum. Hann taldi að heillaríkara væri „að byrgja brunninn áður en barnið dytti ofan í hann“. Sveinbjörn gekk snemma til liðs við okkur í Bindindisfélagi ökumanna, sem starfað hefur í tæpa þrjá áratugi, og heiðursfélagi samtakanna var hann kjörinn 1978 í þakkar- og virðing- arskyni fyrir störf sín í þágu þeirra. Hanngerðistlíka einn af stofnendum Ábyrgðar hf. — Tryggingarfélagi bindind- ismanna, þegar það var stofnað 1960. En stofnfundur þess var haldinn í skrifstofu hans í Ofnasmiðjunni. Með stofnun framangreindra félagasamtaka var leitast við að sýna og sanna raungildi bindindishugsjónarinnar. Sveinbjörn var þegar við stofnun Ábyrgðar hf. kosinn í stjórn félagsins og átti þar sæti til ársins 1976, er hann óskaði að láta af þeim störfum. Af þeim kynnum, sem mynduðust milli okkar Svein- bjarnar við áratuga samstarf í Bindindisfélagi ökumanna og Ábyrgð hf., tel ég mig geta sagt með sanni, að hann hafi með starfi sínu í báðum þessum félagasamtökum unnið bindindishugsjóninni með þeim ágætum, sem sá einn orkar, er trúir á sköpunarmátt hugsjónarinnar. Sveinbjörn var maður háleitra hugsjóna, er hann vildi gera sem flesta meðeigendur að. Ég mun ekki með þessum kveðjuorðum mínum leitast við að rekja litríkan æviferil Sveinbjarnar nema að litlu leyti. Það munu aðrir gera, en mérer bæði Ijúft og skylt að minnast þessa vinar míns nú við þau vegaskil, sem orðið hafa og bera fram þakkir fyrir samstarfið í Bindindisfélagi ökumanna og Ábyrgð hf., en minningin um það samstarf geymir svo margar ánægjulegar samverustundir. Að leiðarlokum vil ég bera fram einlægar þakkir til hins látna fyrir ómetanlegt starf innan bindindissamtakanna og jafnframt benda á að bindindis-,. siðgæðis- og trúar- hugsjónin hefur misst dugmikinn boðbera við andlát Sveinbjarnar Jónssonar. Vandfyllt skarð hefur myndast. Þörf er dugandi, dáðrlkra manna til að hefja á ný það merki bindindishreyfingarinnar, sem Sveinbjörn hélt á lofti til vegs og virðingar meðal þjóðarinnar. Bindindisfélag ökumanna og Ábyrgð hf., tryggingar- félag bindindismanna þakka Sveinbirni Jónssyni heilla- rík störf I þágu bindindismálanna. Minnirigin um hann mun hvetja til starfa í þágu góðra málefna. Ættingjum Sveinbjarnar Jónssonar sendum við einlægar samúðarkveðjur. Helgi Hannesson, formaður Ábyrgðar hf. inn hugleiðingu um bindindishugsjónina og starf An- svar í 50 ár. Mikill fjöldi fólks var á staðnum og naut þess er fram fór í dásamlegu veðri. Sú spurning hlýtur að vakna hvort við höfum gagn af norrænu eða alþjóðlegu samstarfi. Að mínu áliti er slíkt samstarf lífsnauðsynlegt fyrir BFÖ. Þaðan fáum við hugmyndirnar og það að vita aðra vinna að sömu verkefnum og vera að berjast við sömu vandamálin gefur hvata. Þau verkefni er bera hæst hjá BFÖ þessa dagana eru öll tilkomin vegna norræns samstarfs. Það eitt sannar hve mikils virði slíkt sam- starf er. Þess vegna á ekki að draga úr samvinnunni heldur miklu fremur auka hana. Með því tryggjum við einna best áframhaldandi kröftugt og hugmyndaríkt starf BFÖ. Sv.H.Sk 5

x

BFÖ-blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.