BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Qupperneq 6
r
N
I sumar eins og undanfarin sumur stóð Bindindisfé-
lag ökumanna fyrir Ökuleikni [ samvinnu við Dagblað-
ið & Vísi ásamt Sambandinu, véladeild, sem eins og
kunnugt er hefur umboð fyrir Opel á fslandi. BFÖ stóð
fyrir öllum undirbúningi og framkvæmd, en DV birti
úrslit keppnanna. Þáttur Sambandsins var annars
vegar að leggja til hluta af því fé, sem til þurfti vegna
framkvæmda keppnanna, og hins vegar að leggja til
tvo Opel Kadett sem notaðir voru í úrslitakeppninni.
Keppnir urðu alls 24 talsins og var gífurleg aukning
frá því í fyrra. Nú tóku alls 307 keppendur þátt í
keppnunum en 250 í fyrra. Hafa því um 1000 kepp-
endur tekið þátt í Ökuleikni frá því henni var hleypt af
stokkunum 1978.
Það geta verið margar ástæður fyrir auknum vin-
sældum Ökuleikniskeppnanna. Eflaust vegur þyngst að
hver sem hefur bílpróf og skoðunarhæfan bíl, getur
verið með, því ekki er krafist neins aukabúnaðar enda
er engin hætta fólgin í þátttöku í Ökuleikni. Hún bygg-
ist fyrst og fremst á nákvæmni og leikni ökumanns
ásamt þekkingu í umferðarlögunum.
Úrslitakeppnin var haldin þann 11. september f
Reykjavík. Keppt var í tveimur riðlum, karla- og
kvennariðli. Úrslitakeppnin var mun viðameiri en
undankeppnirnar og hófst dagskrá hennar kl. 9.00 að
morgni og lauk með kvöldverðarboði, sem tryggingar-
félagið Ábyrgð hélt til heiðurs þátttakendum, sem
komnir voru alls staðar að af landinu. Mun meiri krafa
var gerð til þátttakenda í úrslitakeppninni en í for-
keppninni enda samankomið lið bestu keppenda af
landinu.
Keppnin var mjög jöfn og spennandi og ekki hægt
að sjá hver myndi sigra fyrr en á síðustu mínútum
keppninnar og fór svo að einn félagi úr BFÖ sigraði.
Hann heitir Jón S. Halldórsson úr Reykjavík og í öðru
Einar Guðmundsson framkv.stj. BFÖ stjórnaði í sumar 26
ökulelkniskeppnum, 9 vélhjólakeppnum og 2 reiðhjóla-
keppnum.
• •
Okuleikui ’8S
Ökuleikni í Galtalækjarskógi.
Frá úrslitum vélhjólakeppninnar í Reykjavik.
Reiðhjólarall í Hafnarfirði.
sæti var Ingvar Ágústsson frá (safirði. I þriðja sæti
varð Þór Árdal frá Blönduósi. I kvennariðli varð efst
systir Jóns, Fríða Halldórsdóttir og í öðru sæti varð
Kristín Birna Garðarsdóttir. Þau Jón, Ingvar og Fríða
munu verða fulltrúar íslands í norrænu Ökuleikninni
sem að þessu sinni mun fara fram á Spáni í nóvem-
ber n.k. Eins og áður hefur komið fram standa
bræðrafélög BFÖ á hinum Norðurlöndunum fyrir sams-
konar keppni hvert í sínu landi. Þau munu senda full-
trúa sína til Opel-verksmiðja sem nýreistar haffa
verið ( borginni Saragossa á Spáni. GM-OPEL munu
standa fyrir þeirri keppni. Við islendingar erum bjart-
sýnir um að ná góðum árangri á Spáni í haust.
Kvennaökuleini
Þegar BFÖ hafði haldið 23 keppnir var Ijóst að að-
eins voru 18 konur af þeim 180 keppendum sem þátt
höfðu tekið í keppninni. Til að jafna þetta svolítið var
ákveðið að halda sérstaka kvennakeppni. Ekki voru
forráðamenn keppninnar mjög bjartsýnir á að fjöl-
mennt yrði í henni, enda ekki við öðru að búast, með
tilliti til þátttöku kvenna fyrr um sumarið. Þótti mönnum
því allt í lagi að halda hana í miðri viku, síðast í ágúst,
þar sem myrkur skellur ekki á á þeim tíma fyrr en eftir
9 á kvöldin.
Þar skjátlaðist forráðamönnum keppninnar hrapa-
lega, því 27 konur mættu og hefur ökuleikniskeppni
aldrei verið jafn fjölmenn og þessi. Fjöldi keppenda
varð til þess að fresta varð keppni vegna myrkurs og
halda áfram daginn eftir. Ekki létu konurnar það á sig
fá og greinilegt er að kvennaökuleikni á fyllilega rétt á
sér. Vegna fjöldans varð að senda 5 fulltrúa úr kvenna-
keppninni í kvennariðilinn í úrslitakeppninni og stóðu
þær sig vel.
Slgurvegararnir I ökulelkni '82.
Vélhjólakappi.
Frá Galtalækjarskógi.
Lagt í’ann.
V
6
/
7