BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Blaðsíða 9

BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Blaðsíða 9
Skýrsla I5FÖ á $íða$ta þiugi sambaitdsms 14. oóvember 1981 Eins og fram kemur í ritstjórnargrein þá var ætlunin aö koma BFÖ-blaðinu út fyrri hluta ársins. í því blaði átti að birta skýrslu síðustu stjórnar. Útkoma blaðsins hefur degist, en ritstjórn taldi engu að síður að full ástæða væri til að birta skýrsluna í því blaði sem nú sér dagsins Ijós, þó liðið sé nær ár frá því að þingið var haldið. Skýrslan er fyrir starfsemina árin 1979 - 1981. ( skýrslunni kemur vel fram hve viðamikið starf- ið er og því full ástæða til að gefa BFÖ-félögum tækifæri til að lesa hana. framkvæmd. Allt sem áður var hand- og vélritað, eins og blaðaútsendingar, innheimta og fleira, fæst nú með lítilli fyrirhöfn, og kostnaður ekki teljandi miðað við þægindin. Þetta hefur stórlega létt á störfum stjórnar og framkvæmdastjóra, sem þá hafa væntanlega hafa nýtt tímann til annarra starfa fyrir BFÖ. FJÁRMÁL Skýrsla stjórnar BFÖ á 12. sambandsþinginu í Reykjavík 14. nóvember 1981, fyrir tímabilið 10/11 1979 til 14/11 1981. SKRIFSTOFAN Stjórnin réði á fyrsta fundi dugmikinn framkvæmda- stjóra, Einar Guðmundsson kennara, sem í hvívetna hefur reynst hinn ágætasti starfsmaður. Óhætt er að segja að dagleg framkvæmd skrifstofunnar og fram- gangur félagsins hafi verið mikið honum að þakka, og sýnir Ijóslega hve mikla þýðingu það hefur að hafa góðum starfsmanni á að skipa. Skrifstofan hefur verið opin fjórar klukkustundir i viku, en framkvæmdastjóri lagt fram mun meiri tíma sem erfitt er að þakka með fáum orðum. Skrifstofan hefur sinnt þjónustu við félagsmenn, inn- heimtu og skipulagningu Ökuleikni og öðru því sem þurft hefur að gera. Stjórnarmenn hafa á tímabilinu verið kallaðir til ein- stakra verkefna á skrifstofu, en alltof mikið hefur mætt á framkvæmdastjóra einum. STARFSÁÆTLUN Stjórnin setti sér á fyrstu fundum að vinna sam- kvæmt fyrirframgerðri starfsskrá, eða starfsáætlun og var að því hagræði, en ekki eru allir hlutir séðir fyrir og sumt var ekki hægt að framkvæmaþ FÉLAGATAL - TÖLUVÆÐING Félagar BFÖ eru nú um 850 talsins. Síðar í skýrsl- unni verður vikið að átaki í félagafjölgun. Stjórnin leit- aði fljótlega eftir tilboðum í tölvuvæðingu félagaskrár og möguleika á framkvæmd þess máls. Eftir athugun og viðræður við nokkur tölvufyrirtæki, var tekið tilboði frá fyrirtæki Tryggva Árnasonar, og hefur samstarf við hann gengið mjög vel. Ekki þarf að lýsa fyrir fulltrúum þessa þings hvert hagræði hefur verið af þessari Á síðasta þingi var gerð grein fyrir skuldum BFÖ sem þá námu gkr. 800.000 og var það verulegt áhyggju- efni. Stjórninni var Ijóst að fjárhagsvandann varð að leysa, svo takast mætti að reka félagið með eðli- legum hætti. Gripið var til þess ráðs að stofna til happ- drættis, sem góðan árangur gaf, og tókst fljótlega að koma fjárhagsstöðunni á réttan kjöl. Á tímabilinu hafa helstu tekjuleiðir verið fólgnar i sölu auglýsinga í BFÖ-blaðið og sá stuðningur sem Ábyrgð hf. hefur látið i té og ómetanlegur er fyrir fé- lagið. Með sérstöku aðhaldi og dugnaði hefur fram- kvæmdastjóra tekist að reka svo Ökuleiknir félagsins að þær hafa borgað sig sjálfar. Gjaldkeri mun gera grein fyrir fjárreiðum og lýsa hversu ágætlega hefur til tekist með fjármál félagsins. Rétt er þó að geta þess happdrættis sem þessa dagana er verið að hleypa af stokkunum, og hve áríð- andi er að allir leggist á eitt að gera árangur þess sem glæsilegastan. DESEMBERHERFERÐ Er leið að desembermánuði 1979 og 1980 ákvað stjórnin að minnast með einhverjum hætti jólamánað- arins og gaf því út í samvinnu við Reykjavíkurdeild, dagatöl og jólaalmanök, sem dreift var til félagsmanna og almennings í Reykjavlk. Dagatöl þessi hafa hlotið góða dóma, en fram ( þeim komu ráðleggingar og varnaðarorð tengd bindindi og umferð. Þegar er hafin undirbúningur að svipaðri útgáfu vegna næsta jóla- mánaðar, nema hvað fyrirkomulagi hefur verið breytt á þann veg að safnað er auglýsingum til birtingar á dagatali og greiðir það kostnað við útgáfuna. SAMSTARF VIÐ ÁBYRGÐ HF. í íslenskum framfærslulögum er kveðið á um skyld- ur foreldra og barna til framfærslu. Gagnkvæmar skyldur eru þar í heiðri hafðar. Það er Ijúft að minnast þess tíma er Bindindisfélag ökumanna, eða forystu-

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.