BFÖ-blaðið - 01.12.1989, Qupperneq 6
leiðin til að gera sér grein fyrir hversu mikill
mengunarvaldur hver bílvél er.
Bifreiðaskoðun og mengunarmælingar
Reyndar stendur til að Bifreiðaskoðun
íslands hf. hefji mælingar á kolsýrlingi í út-
blæstri bíla eftir næstu áramót. Það eitt, sam-
fara settum hámarksgildum fyrir kolsýrling,
getur jafnvel orðið til þess að ná undraverðum
árangri í hreinsun útblásturslofts frá bílum.
Með þessu móti verða margir þeirra sem lengi
hafa trassað viðhald bílsins síns skikkaðir til
þess að fara með hann í vélarstillingu til þess
að komast í gegnum skoðun. Það mun hafa
bæði hreinna loft og minni eldsneytiseyðslu í
fór með sér. í ljósi árangurs þessara aðgerða
má síðan vega og meta hvort ástæða sé til að
gera kröfu um hvarfa á öllum nýjum bílum frá
og með 1. janúar 1992.
Núna, þegar mengun og þó sérstaklega
mengunarvarnir í formi hreinsibúnaðar fyrir
útblástur er orðið tískuhugtak, er sú hætta
fyllilega fyrir hendi að það gleymist að til eru
fleiri mengunarvaldar sem tengjast bílum.
Sumir þeirra standa okkur ólíkt nær heldur
en óbrunnin kolvetni í afgasi. Hvað til dæmis
með hljóðmengun og olíulekamengun frá öku-
tækjum? Hvað með óþarfa reykmengun frá
díselbílum? Hvað með tjöruþvottinn sem dag-
lega á sér stað á bílþvottastöðinni beint fyrir
utan gluggann minn í vinnunni þar sem tjöru-
eyðirinn rennur óhindrað ofan í jörðina eða
ofan í holræsakerfi borgarinnar? Tjöruþvotta-
fólkið heldur því fram, að ekki fari að bera á
tjöru á bílum fyrr en byrjað er að salta á haust-
in. Og hvað þá með saltmoksturinn?
Samt er þetta allt saman kannski hjóm og
hismi gagnvart þeim mengunarvaldi sem lík-
ast til á mest eftir að breiða úr sér í framtíð-
inni en hefur til skamms tíma verið álitinn
hinn mesti meinleysingi, koltvísýringurinn.
Gegn myndun hans og þeim gróðurhúsaáhrif-
um sem hann veldur eru aðeins tvö ráð til, að
brenna minna eldsneyti eða rækta meiri skóg.
í þeim efnum verður áreiðanlega mun fljót-
virkara að minnka bruna, t.d. með því að stór-
skerða eða taka alfarið fyrir notkun bíla með
brunavélum heldur en að rækta nýjan skóg.
Eftirtaldir aðilar senda lesendum bestujóla- og nýársóskir
Vélaverkstæði J. Kjartanssonar Helluhrauni 4 • Hafnarfirði V erslunarmannafélag Reykjavíkur Kringlunni 7 • Reykjavík
Vélsmiðja Bolungarvíkur hf. Hafnargötu 53 • Bolungarvík Verslunarmannafélag Suðurnesja Hafnargötu 28 ■ Reykjavík
Vélsmiðja Sigurðar H. Þórðarsonar Skemmuvegi M16 • Kópavogi Verslunin Hornið • Hringbraut 99 • Keflavík
Verslunin Hvammsval • Hlíðarvegi 29 • Kópavogi
Vélstjórafélag íslands • Borgartúni 18 ■ Reykjavík Verkamannafélagið Dagsbrún Lindargötu 9 • Reykjavík
Vinnufatabúðin • Hverfisgötu 26 • Laugavegi 76 og Kringlunni • Reykjavík
Visa-Island ■ Höfðabakka 9 • Reykjavík
Verkamannafélagið Hlíf Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði
Vörubílastöðin Þróttur
Verkfræðistofa Braga Þorsteinssonar og Eyvindar Valdimarssonar Bergstaðarstræti 28a • Reykjavík Borgartúni 33 • Reykjavík Vöruhappdrætti SÍBS Suðurgötu 10 • Reykjavík
V erslunarmannafélag Hafnarfjarðar Strandgötu 33 • Hafnarfirði Öryrkjabandalag íslands Hátúni 10 ■ Reykjavík