BFÖ-blaðið - 01.12.1989, Qupperneq 9

BFÖ-blaðið - 01.12.1989, Qupperneq 9
2. Ég geri ráð fyrir, að það sé einna brýnast, hvað áfengisvarn- ir varðar, að breyta þessu við- horfi. Það þarf að vera þannig, að það sé sjálfsagt að vera bindindis- maður. Auðvitað eigum við að beita öllum þekktum ráðum við áfengisbölið. Hugarfarsbreyting meðal æskufólks er aðalatriðið. Hlutverk foreldra og kennara skiptir mestu máli. Börnin okkar þurfa að læra og vita, að það er ekkert „spes“ að drekka ekki. Það er það, sem er eðlilegt. Gísli Sigurbjörnsson forstjóri: 1. Áfengi er bölvaldur, sem eyði- leggur líf og hamingju. Þess vegna er ég því andvígur og tel, að áfengisflóðaldan sé mikil ógæfa fyrir okkar þjóð. 2. Reyna verður með öllum til- tækum ráðum að opna augu þjóð- arinnar fyrir þessari ógæfu, sem nú ógnar öllum heimi. Áfengið er þjóðarböl. Pétur Sigurgeirsson biskup: 1. Það hefur verið sérstaklega brýnt fyrir ungu fólki að ánetjast ekki vímugjöfum, áfengi og öðr- um nautnalyfjum. Áfengið er hættulegur drykkur eins og önn- ur vímuefni. Ég vara þig, ungi vinur, við því böli, sem af því get- ur leitt að drekka áfengi. Nú er að vakna hreyfing í landinu til að forða unglingum og öllum mönn- um frá drykkjuskap og böli þess. Besta leiðin til þess að forðast áfengisbölið er að byrja aldrei á að drekka áfengi. Ég tók ungur þá ákvörðun að hafna áfenginu og hef óteljandi sinnum orðið að segja: Nei takk! - þegar mér er boðið áfengi. Ég tel það vera eitt af mínum gæfusporum í lífinu. „Sérhver, sem tekur þátt í kappleikjum, er bindindissamur í öllu.“ (I. Korintubréf, 9. kafli, 25. vers). Áfengið skemmir vöðva- frumur hjartans, veldur skemmd- um á heilavef og orsakar lifrar- þenslu. En verst er þó að áfengið getur auðveldlega gert manninn ósjálfbjarga. í ölæði gera margir það, sem þeir myndu aldrei hafa gert ódrukknir. Varastu að fikta við allt, sem heitir fíkniefni, láttu engan fá þig til þess að prófa þá hluti. „Vökum og verum algáðir.“ (I. Þessalonikubréf, 5. kafli, 6. vers). Heilræðin eru til þess að halda þau. Boð og bönn eru til þess að lifa eftir þeim. „Varðveit þú, son minn, boðorð föður þíns og hafna eigi viðvörun móður þinn- ar.“ (Orðskviðirnir, 6. kafli, 20. vers). Feðgar óku eitt sinn í bíl sínum um Miklubraut í Reykjavík. Fað- irinn sat við stýrið og stillti þann- ig hraða bílsins, að hann fékk allt- af grænt ljós götuvitans og hélt viðstöðulaust áfram. Sonurinn tók eftir þessu og sagði: „Pabbi, það er eins og ljósmerkin séu gerð fyrir okkur." Þannig er því farið 1. Hver er afstaða þín til áfengis og hvað ræður henni? 2. Hvað finnstþér brýnast aðgera í áfengisvörnum? með frelsið, sem okkur er gefið og er svo dýrmætt. En það er ekki án takamarkana, sem þeir verða sjálfir að temja sér og leggja á sig, sem frelsis njóta. Ég varð þess strax áskynja sem unglingur, að heillavænlegast væri að forðast áfengi. Má þar nefna til barnastúkur og skátafé- lagsskap og þann anda sem ríkti á heimili mínu. Síðan, þegar ég reyndi að feta veginn með öðrum, lagði ég áherslu á að best væri fyr- ir unglinga að neita sér algerlega um áfengi og vildi reyna að vera fyrirmynd að þessu leyti og aðhyllast bindindi. í nútíma þjóðfélagi þar sem árvekni er miklu þýðingarmeiri en áður er mikilvægt að fólk sé alls gáð. Það er ákaflega mikil þversögn, að mesta gróðafyrir- tæki ríkisins skuli vera Áfeng- isverslunin. 2. Þar sem áfengir drykkir eru boðnir, ættu óáfengir drykkir jafnframt að vera á boðstólum. Þá er ekki síður mikilvægt, að börn átti sig á því þegar þau vaxa úr grasi að ekki eigi að nota áfengi. Hinir eldri ættu að reyna að vera hinum yngri fordæmi í að rækta þann siðferðisstyrk að nota ekki áfengi.

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.