BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Síða 3
Hermann Þorsteinsson:
Hvað er til ráða?
Nú er spurt, er fyrir liggur að áfengisneysla
íslendinga jókst um 23% á síðasta ári. Þetta er
áleitin spurning, sem varðar okkur öll. Það
þarf minna til að koma róti á hugann. Barn-
ungur heyrði ég myndarlegan en drykkfelld-
an mann hafa yfir - daginn eftir - sem hann
hafði gert um sig og sínar ógöngur:
Guðmundur í gærkvöldi,
gekk í mestu einfeldni,
niður í fen og foraði
og fannst þar, þegar dagaði.
Og hvað svo? Hann hélt því miður lengi,
lengi áfram að ösla bæði í feni og foraði, þar til
lífsvökvi hans þvarr! Marga fleiri góða drengi
hefi ég á minni tíð séð þræða sömu sorgarleið.
Sem barn kunni ég ekki, en nú mundi ég
minna hagyrðinginn góða á sálmversið og
bænina:
Titrandi með tóma hönd
til þín Guð ég varpa önd,
nakinn kem ég, klæddu mig,
krankur er ég, græddu mig,
óhreinn kem ég, vei, ó vei,
væg mér herra, deyð mig ei. (M. Joch.)
Kannski hefði þá undrið gerzt og hann get-
að tekið undir þessi orð í sálmi Davíðs:
. . . Hann (Guð) dró mig upp úr
glötunargröfinni,
upp úr hinni botnlausu leðju,
veitti mér fótfestu á kletti,
gjörði mig styrkan í gangi
og lagði mér ný Ijóð í munn,
lofsöng um Guð vorn.“
Hermann Þorsteinsson
er framkvæmdastjóri
Biblíufélagsins og formaður
sóknarnefndar Hallgrímskirkju.
Þetta er ráðið (með ákveðnum greini), sem
dugir í baráttunni við hinn demon-ættaða
Bakkus, hinn slyngasta og hættulegasta allra
blekkingameistara í heimsbyggðinni.
Ég var staddur í Uppsölum í Svíþjóð, þegar
flóðgáttir áfenga bjórsins voru opnaðar hér
heima á Fróni. „Opnunar-hátíðin“ var sýnd í
sænska sjónvarpinu. Það var dapurlegt og
niðurlægjandi á að horfa. Mér fannst gleði
mín og stolt sem íslendings hrynja þetta kvöld
meðal „hinna norrænu bræðra minna“ - en
við, íslenskir, erum aðeins 1% íbúa Norður-
landanna. Stærð okkar verður því að vera í
öðru fólgin en Qöldanum.
Hún reis hátt hafaldan mikla, sem á dögun-
um sópaði burt sjóvarnargörðunum við Eyrar-
bakka og Stokkseyri. Hún reis enn hærra
áfengisaldan, sem reið yfir þjóð okkar árið
1989. Hve mikið er tjónið af hennar völdum?
Bakkus, meistari blekkinganna, blindaði
marga á löggjafarþingi okkar í átökunum um
áfenga bjórinn. Vonandi hafa þeir fengið sjón-
ina aftur og snúast nú til varnar gegn voða.
BFÖ-blaðið • 1/1990
Útgefandi: Bindindisfélag ökumanna,
Lágmúla 5,108 Reykjavík, sími 679070.
Ritnefnd: Sigurður Rúnar Jónmundsson (ritsj. og áb.m.),
Halldór Árnason og Jónas Ragnarsson.
Myndir: Guðmundur Viðarsson o.fl.
Prentun: GuðjónÓ hf.
Upplag: 3.800 eintök 1. tbl. 18. árg. Míll 1990