BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Page 10
með djúpum skilningi og þeim
kærleika, sem kristinn maður á
að hafa til náunga síns, sem er
samferða okkur á lífsgöngunni,
en á við erfiðleika að stríða og
óhamingju.
Jón Steinar Gunnlaugsson,
lögfræðingur:
1. Ég neyti ekki áfengis sjálfur og
hef ekki gert í nærfellt ellefu ár.
Mér hefur lærst að líðan mín bæði
andleg og líkamleg er miklum
mun betri ef ég ney ti þess ekki. Ég
nýt allra krafta minna og hæfi-
leika miklu betur án áfengis. Val
mitt er því auðvelt. Ég hafna
áfenginu.
2. Ég er algerlega andvígur
hvers kyns boðum og bönnum
varðandi neyslu áfengis. Hver
maður verður að vera ábvrgur
sjálfur fyrir sinni neyslu. Ég tel
hina einu raunverulegu vörn
gegn áfengi felast í fræðslu, þann-
ig að menn eigi auðveldara með
að greina sín eigin vandamál og
forðast þau. Fræðslan gegnir líka
hlutverki við að eyða fordómum
gagnvart fólki sem á við áfeng-
isvandamál að stríða. í þessum
efnum hafa félagasamtök eins og
SÁÁ lyft grettistaki á íslandi. Ég
vona að slík starfsemi muni dafna
hér áfram og þá helst án þess að
verða tekin yfir af ríkisvaldinu.
Jón Freyr Þórarinsson,
skólastjóri:
1. Það hefur alla tíð verið afstaða
mín að hafna áfengum drykkjum.
Á unglingsárum velti ég þessu
ekki mikið fyrir mér, svo fráleitt
þótti mér að fara að drekka áfengi
og eiga á hættu að missa ráð og
rænu. Það viðhorf mitt hefur ekki
breyst.
2. Fræðsla þarf stöðugt að vera í
gangi en hún ein og sér nægir
ekki á þann hátt sem hún hefur
farið fram.
Það þarf að breyta viðhorfi fólks
til áfengis en það er hægara sagt
en gert. Margir virðast ekki gera
sér grein fyrir að sleppa megi
áfengi við hin ýmsu tækifæri og
að þeir eru margir sem vildu vera
lausir við áfengið en kunna bara
ekki við að láta það í ljós.
Fullorðnir þurfa að gera sér
grein fyrir því að þeir eru fyrir-
mynd barna og unglinga.
Foreldrar ættu að fækka þeim
tækifærum sem áfengi er haft um
hönd á heimilum.
í öllum veislum sem áfengi er í
boði á að vera nægilegt framboð af
óáfengum drykkjum og framborið
í jafnfínum glösum og áfengið.
Óþolandi er að þurfa sífellt að
sérpanta óáfenga drykki og þurfa
svo að bíða í lengri tíma eftir
afgreiðslu.
Efla þarf framboð af skemmt-
unum þar sem áfengi er ekki haft
um hönd. Ýmis félög gætu haft
forgöngu um slíkt.
Jonas Jónasson,
útvarpsmaður:
1. Það var öllum ljóst, sem
þekktu til mín, að ég var kominn
á háskabraut í lífi mínu. Ég var
einn af fjörutíu fyrstu Fríport-
urunum, og síðan eru 14 ár liðin.
Við erum hættir að drekka. Erum
ekki með yfirlýsingu um það eða
játum einhvern eið um það, að við
ætlum aldrei að drekka framar.
Ég hefi ekki drukkið í dag í 14 ár.
2. Við ákváðumm að svipta hul-
unni af þessu öllu saman og
ákváðum að flytja öðrum þennan
boðskap vítt og breitt um landið,
og upplýsa fólk um eðli þessa
sjúkdóms. Fræðsla er það sem
gildir, og það verður að byrja
strax í skólum á fyrirbyggjandi
fræðslu, og þá ekki í formi boða og
banna.