BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Qupperneq 12
1. Hver erafstaða þín til áfeng-
is og hvað ræður henni?
2. Hvað finnst þér brýnast að
gera í áfengisvörnum?
koma upp áróðursstríði gegn víni
eins og gegn reykingum. Ekki nóg
að tala gegn áfengisneyslu fyrir
daufum eyrum. Þessi fræðsla þarf
að vera mjög markviss.
Óli H. Þórðarson,
f ramkvæmdastjóri:
1. Eins og margir unglingar próf-
aði ég að „vera stór“ og eins og
flestir hinir með því að smakka
áfengi. Ekki þurfti ég mikið til að
finna að þetta átti alls ekki við
mig og ákvað því að láta áfengi
algjörlega eiga sig. Og það er
dálítið skemmtilegt að setja þessa
ákvörðun í samhengi við núver-
andi starf mitt, því um leið og ég
fékk bílpróf var lífsstefnan ákveð-
in: Bindindi. Það má því eiginlega
segja að ég eigi um þessar mundir
30 ára „bindindisafmæli". Þrátt
fyrir val mitt í þessum efnum
virði ég rétt annarra til að neyta
áfengis, þ.e.a.s. geri þeir það í hófi
og skaði engan annan með neyslu
sinni. Það er hins vegar dálítið
vandrataður hinn gullni meðal-
vegur milli hófs og óhófs.
2. Fyrst og fremst þarf með ein-
hverju móti að hindra þann víta-
hring sem nú umlykur þjóðfélag
okkar, þ.e. að ríkissjóður og þeir
sem honum stjórna sjái aðeins
tekjur af því sem inn kemur í
verslunum ÁTVR en gleymi og
hirði ekki um samfélagslegan
kostnað sem af víndrykkju leiðir.
Þar er mér auðvitað efst í huga
allt það böl og sú kvöl sem ölvun-
arakstri fylgir og ég þekki því
miður svo vel úr starfi mínu. Þá
finnst mér að fræðsla um skaðleg
áhrif áfengis megi vera miklu
meiri og jákvæðari en nú er, en
þar á ég fyrst og fremst við að fjöl-
miðlar láti af umfjöllun er miðar
að því að drykkja áfengis sé það
eðlilega. Þetta er svipað og við á
um hraðakstur — sífellt er verið að
sýna æsandi augnablik rallakst-
urs, en við stöðugt að færa slysa-
tölur sem til hafa orðið á þann
hátt að alltof hratt var ekið miðað
við aðstæður. Ég vona að þróunin
verði á þann veg að fínt þyki að
smakka ekki áfengi - öfugt við
það sem er í dag.
Ragnheiður Ólafsdóttir,
íþróttafræðingur:
1. Foreldrar mínir reykja hvorki
né drekka, og það hefur örugglega
haft áhrif á mig. Ég var mikið í
íþróttum á árum áður, í lang-
hlaupum, og þá kemur neysla
þessara efna ekki til greina. Skoð-
un mín er óbreytt, þótt ég sé hætt
keppni.
2. Gott væri ef fólk gæti notað
áfengi í hófi, en best er að byrja
aldrei að nota áfengi. Það þarf að
uppfræða ungt fólk um skaðsemi
áfengis og hvernig áhrif það hefur
á líkamann til hins verra.
Þórunn Elídóttir,
kennari:
1. Ég er bindindismaður þar sem
það er í samræmi við lífsskoðun
mína. Ég ber ábyrgð á eigin lífi og
annarra.
2. Forvarnarstarf þarf að efla,
ekki bara á meðal unglinga held-
ur líka fullorðinna, þar sem brýn-
asti vettvangurinn er á meðal for-
eldra.