BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Síða 13

BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Síða 13
Mikill stuðningur við lögbindingu reiðhjólahjálma - samkvæmt könnun Hagvangs fyrir Bindindisfélag ökumanna Um 90% þeirra sem tóku afstöðu til spurn- ingar um lögleiðingu reiðhjólahjálma voru hlynntir þeirri ráðstöfun. Þetta var niðurstað- an úr könnun sem Hagvangur gerði fyrir Bindindisfélag ökumanna í janúar 1990. Spurt var: Ert þú hlynntíur) eða andvíg(ur) setningu lagaákvæða um að börn á reiðhjólum skuli nota hjálma. Karlar voru hlynntari þessu en konur, íbúar álandsbyggðinni heldur hlynntari en þeir sem búa á höfuðborgarsvæð- inu en hins vegar var langskólagengið fólk ekki eins hlynnt lögbindingu reiðhjólahjálma eins og þeir sem höfðu styttri skólagöngu að baki. Ár hvert slasast hundruð hjólreiðamanna hér á landi. í flestum alvarlegum reiðhjóla- slysum verður höfuðið fyrir höggi, við fall eða árekstur. Þess vegna er eðlilegasta vörnin að verja höfuð hjólreiðamannsins eins og kostur er. Áhrif reiðhjólahjálma til að draga úr slys- um hafa verið rannsökuð mikið erlendis. í einni af nýjustu rannsóknunum, sem greint var frá í hinu virta bandaríska læknariti The New England Journal of Medicine (25. maí 1989), var dregin sú ályktun að með notkun reiðhjólahjálma mætti draga úr hættu á alvarlegum höfuðmeiðslum um 85%. Niður- stöður annarra rannsókna hníga í sömu átt. Þeir hjálmar sem nú eru á markaði eru mun léttari og þjálli en eldri hjálmar, og veita samt góða vörn gegn höggum. Kannanir sýna að hlutfallslega fáir hjólreiðamenn nota hjálma, þrátt fyrir ótvírætt ágæti þeirra. Þetta hefur þó verið að breytast, bæði hér á landi og er- lendis. Börn og unglingar, sem mest þurfa á hjálmum að halda, virðast þó ekki setja fyrir sig að nota þá, samkvæmt erlendum athugun- um. Jafnvel hefur verið bent á að börn líti upp til þeirra jafnaldra sinna sem nota hjálma. Það sem flestir eru sammála um að skorti er meiri fræðsla um gildi reiðhjólahjálma. Sú fræðsla þarf bæði að vera í fjölmiðlum og skólum, og ekki síst þarf að koma hvatning frá foreldrum. Bent hefur verið á að með réttum aðferðum megi hafa þau áhrif að hjálmar komist í tisku meðal barna og unglinga. Um- ferðarráð og Olíufélagið Skeljungur hafa tek- ið höndum saman um kynningu á hjálmum og hefur það átak skilað árangri að þeirra mati. Sumir telja að notkun reiðhjólahjálma verði þó ekki almenn fyrr en hún verður lögbundin. Er þá m.a. vitnað til þess að ökumenn vélhjóla hér á landi fóru ekki að nota hjálma að nokkru marki fyrr en það var leitt í lög fyrir hálfum öðrum áratug. Svipuð reynsla var af tilraun- um til að auka notkun bílbelta. í frumvarpi sem Salóme Þorkelsdóttir flutti ásamt fleirum á Alþingi á siðasta vetri var lagt til að börn, tíu ára eða yngri, skuli nota hlífðarhjálma þegar þau hjóla eða eru reidd á reiðhjóli. Frumvarpið var ekki afgreitt. Ólaf- ur Ólafsson landlæknir hefur sagt að lögleið- ing reiðhjólahjálma sé ein einfaldasta aðgerð sem hægt er að grípa til í slysavörnum og rétt sé að miða skyldunotkun við a.m.k. tólf ára aldur. Hann sagði að slys á reiðhjólum væru oft mjög alvarleg og kostuðu þjóðfélagið mikið. - jr. 13

x

BFÖ-blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.