BFÖ-blaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 9
Skoðanir á áfengismálum:
Tökum áfengisáróður föstum tökum
Enn höfum við leitað eftir
sjónarmiðum nokkurra Islend-
inga varðandi afstöðu til áfeng-
is. Tvær spurningar voru lagðar
fyrir þetta fólk:
1. Hver er afstaða þín til
áfengis og hvað ræður henni?
2. Hvað finnst þér brýnast að
gera í áfengisvörnum?
Anna Pálsdóttir
guðfræðinemi:
1. Vandamál í fjölskyldunni
varð til þess að ég ákvað að at-
huga hvernig það væri að nota
ekki áfengi. Það var fyrir tíu ár-
um og mér hefur fundist margt
vera í umhverfinu sem sýnir og
sannar að það hafi verið rétt
ákvörðun, því það létti líf mitt í
alla staði og ég hef verið lánsöm
manneskja.
2. Fræða þarf fólk um alkó-
hólismann, sem sjúkdóm, þann-
ig að það sé hægt að ræða þessi
mál án tepruskapar, fordóma
og sleggjudóma. Mesti leyndar-
hjúpurinn er oft hjá þeim sem
standa efst í mannvirðingar-
stiganum.
Anna Sigurðardóttir
skrifstofumaður:
1. Ég tel að alltaf beri að um-
gangast áfengi af gætni. Af-
staða mín er gegn áfengi þegar
neysla þess truflar líf mitt. Eftir
að hafa kynnst því hvernig of-
neysla áfengis hefur skaðað heilu
fjölskyldurnar við að reyna að
ná stjórn á óreiðunni sem of-
neyslunni fylgir veit ég hvað ég
vil ekki búa við, né bjóða börn-
unum mínum upp á.
2. Ég tel að ábyrgð mín sem
foreldris sé mikil og að ég geti
hafið allar varnir heimavið. Það
sem ég geri hefur oft meiri
áhrif en það sem ég segi. Ég
hef talað mikið við syni mína
og vara þá við alls kyns hætt-
um, en að fenginni reynslu veit
ég að ég þarf að gera meira af
því að hlusta og heyra hvað
börnin mín eru að segja.
Öll þurfum við að vera í góðu
sambandi við eigin tilfinningar
og þora að tjá þær. Við þurfum
öll að læra að bera virðingu fyr-
ir sjálfum okkur og geta treyst
öðrum fyrir tilfinningum okkar.
Ég tel að þeir þættir sem við
miðlum í uppeldinu vegi hæst
fyrir einstakling þegar út í lífið
kemur.
Edda Björgvinsdóttir
leikari:
1. Mín afstaða er sú að áfengi
sé vímuefni og einn versti skað-
valdur þessarar aldar. Afengi
drepur fleiri og veldur meiri
skaða en nokkur annar vímu-
gjafi. Ég vil að við tökum hönd-
um saman og hættum að neyta
áfengis og sýnum börnum okkár
þar með gott fordæmi.
9