Skólablaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 4

Skólablaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 4
68 SKÓLABLAÐIÐ blaðinu* að kensluherbergjum væri sumstaðar all ábótavant og aðbúð barna í kenslustundum. Nokkrar bendingar má fá um það í fræðsluskýrslunum hveruig kenslustofum sé háttað, en þó er það svo ófullnægj- andi, að ekki er auðið að fá glögt heildaryfirlit yfir húsakynni, sem til kenslu eru notuð. Þó mun óhætt að segja að um tölu- verða framför sé að ræða um kenslu-húsakynni, ekki síst þar sem fastir skólar eru. (30 stærri og smærri skólahús hafa verið reist á seinustu 3 árum: 1908—1911). Þó er sjálfsagt mikið ógert enn, að bæta kensluhús og aðbúð og umgengni þar. Enn eru sumar skýrslur all ógreinilegar, en þó hafa þær farið batnandi ár frá ári nú síðan fræðslulögin komu í gildi. Af því að skýrslurnar eru ekki nógu fullkomnar eða greini- legar leiðir það, að ýmsar þær tölur sem hér eru færðar til að framan eru sjálfsagt ekki fyllilega réttar, en um flestar af þeim mun þó litlu skakka. Sjálfsagt mun vera mest við kostnaðar- skýrsluna að athuga. í sumum skýrslum er t. d. fæði farkenn- ara reiknað með öðrum kenslukostnaði, í öðrum ekki. Hér hefir því verið fylgt að bæta fæðiskostnaðinum við, þar sem hann er ekki talinn, og reikna hann 6 kr. nm vikuna; mun það láta nærri meðaltali fæðiskostnaðarins, þar sem hann er reiknaður. Sumstaðar er reiknað húsnæði, ljós og eldiviður, þar sem kensl- an hefur farið fram á heimilunum, en sumstaðar ekki; af ýmsum ástæðum er mjög torvelt að gera sæmilega áætlun þess kostn- aðar þar sem hann er ei talinn og er því slept hér að þessu sinni. Ýmislegt fleira er að athuga við kostnaðarreikningana, sem gerir það að verkum, að ekki má skoða þá sem áreiðan- legan mælikvarða fyrir því, hvað barnakensla, styrkt af landsfé, hafi kostað árið sem þeir ná yfir; en töluvert benda þeir þó í áttina til þess að menn þurfi ekki að renna eins blint í sjóinn, eins og ef þeir væri ekki til, og eftir fá ár er vonandi að þeir hafi farið svo batnandí, að nokkum veginn nákvæmlega megi á þeim byggja. Það eru ýms kostnaðaratriði sem alls eigi eru tekin hér til greina, svo sem einkum kostnaður við að koma börnum af heimili til náms eða vinnumissirinn meðan stálpuðu börnin sem nota má til margs á heimilinu, sitja við nám. En aftur er það

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.