Skólablaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 13
SKOLABl.AÐIÐ
77
inu milli aðal álma hússins) er glerþak, og eru þar afar stórir
vinnusalir.
Rúm er þarna fyrir 5200 nemendur. Herbergin eru 337.
6 eru aðalstigar upp í húsið og 8 stigar bakhliða megin. Hver
stigi er 1,88 m. og skólagöngin 3 m. á breidd.
Húsið er lýst bæði með gassi og rafljósum. Á ýmsum
stöðum er komið fyrir 62 vatnspípum, sem nota má í einu vet-
fangi, ef eldur kemur einhverstaðar upp.
Salerni eru 485 handa nemendum.
Fyrirlestrarsalir 45, teiknisalir 49, einn salur til að móta
í myndir (leir), annar fyrir gibsvinnu og gyllingar, 3 herbergi
fyrir preritara, 1 fyrir bókbindara, 2 fyrir úrsmiði, 2 salir fyrir
málara, 23 herbergi fyrir efnafræðisrannsóknir og eðlisfræði, ein
ljósinyndastofa, 18 herbergi til ýmisk inar kvennavinnu, glerhús
til plönturæktunar o. 5. frv.
Fyrir hverri grein stendur sérstök stjórn, og eru því í
húsinu 18 stjórnarskrifstofur. En allur þessi risavaxni skóli lýtur
þó einni yfirstjórn.
Þarna má margt læra, er.da ægir þar saman hárskerum,
gullsmiðum og silfursmiðum, rennurum, málurum, bökurum,
skósmiðum, orgelsmiðum, saumakonum, þvottakonum o. s. frv.
f Sigurður Jónsson frá Álfhólum
lést á 3. í páskum eftir mánaðarlegu, en óljóst vitum vér um
hvert banameinið var. Hann hafði um mörg ár verið kennari,
og þótti dugandi maður í sinni stöðu; stóð ein 5 ár fyrir barna-
skólanum í Bolungavík og þótti farnast vel.
Sigurður var þéttur í lund og tók með alvöru á kennara-
starfinu, og rækti það með mikilli samviskusemi.
Leiðrjetting. Misprentast hefur á 9. bls. þ. árg. 4. línu að
neðan sokkar á að vera sokkabönd.