Skólablaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 6

Skólablaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 6
SKÓLABLAÐIÐ 70 Og svo sný eg máli mínu til ykkar, eldri menn, foreldrar og vandamenn, skyldir og vandalausir! Skólinn sleppir nú hendinni af þessuin ungmennum. Það líður nú að þeim tíma að þau eiga að komast í tölu kristinna manna. En nú fara einnig í hönd þeir tímar að öðru leyti, er einna mesta þýðingu hafa fyrir hvern mann, árin sem oft ráða mestu um lífsstefnu einstaklingsins. Það er ofur liægt að leiða þessi ungmenni afvega, en eg vona að enginn ykkar vilji hneyxla þau. Það er mjög undir ykkur komið, hvort þessi börn verða góðir menn og nýtir, eða slætnir menn og óhamingjusamir. Þið getið átt mjög mikinn þátt í gæfu þeirra. Eg veit eigi betur en að hugarfar þeirra sé gott og óspilt. Og eg treysti því að þið gerið ykkur far um að spilla ekki þessum ungu hjörtum. Þau eru gljúp fyrir áhrifum bæði góðum og illum. í því ligg- ur hætta á öðru leitinu, en hins vegar er þar jarðvegur auðnu og blessunar fyrir þau á ókomnum árum. Sálir þessara barna eru eins og ofur lítið undirbúinn akur. Upp úr þeim akri má búast við að spretti illgresi lasta og ódygða ef til þess er sáð, en hins vegar er ykkur óhætt að treysta því, að úr þeim jarð- vegi spretta dygðir og mannkost'r, sé til þeirra sáð. Og á dygðum og mannkostum spretta aftur blóm guðsóttans og saunr- ar lífshamingju. ,En að lífs hamingjunni erum við sífelt að leita. Kæru, ungu vinir! Eg óska ykkur öllum hjartanlega til hamingju á ófarinni æfileið. Eg bið guð að vernda ykkur frá villu og synd á komandi dögum. Og eg ániinni ykkur urn það, að meta jafnan mest af öllu að breyta eftir hans vilja í hugsunum, orðum og athöfmtm. Minnist þess um fram alt, að framar ber að hlýða guði en mönnum. Þá mun ykkur vel vegna. Sömuleiðis óska eg ykkur, kæru foreldrar og vandamenn, til hamingjn með þessi vonarfræ ykkar. Eg vildi gjarnan vera ykkur lengur til aðstoðpr við þetta vandasama verk, en býst við, að nú sé því þegar að mestu lokið með þau börnin, sem hingað eiga ekki afturkvæmt, sem nemendur, En eg vil að síðustu bæta því við, að eg vildi af fremsta megni leitast við, að reynast þessum ungmennum tryggur vinur á lífsleiðinni, ef þau kynnu að geta haft gagn af liðsinni míuu.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.