Skólablaðið - 01.05.1912, Page 11
SKOLABLAÐID
75
sem hrós og laun geta veitt, ef skynsamlega og hóflega er með
farið.
Það var í vetur í fyrsta skifti, að skólinn í Ves'manneyjum
veitti siðprúðustu nemendum sínum lítilsháttar verðlaun, og bar
ekki á öðru en að það hefði góð áhrif. Þorláksmessan, dagur-
inn sem verðlaunum vaf útbýtt, var hlutaðeigendum gleðidagur
og ánægju, og sú gleði tvöfaldaðist við þá samhygð, sem þau
nutu hjá hinum börnunum, sem engin verðlaun fengu. Ekki
bar á nokkurri öfund, enda fengu þau börn ein verðlaun sem
bersýnilega áttu þau skilin. Verðlaunin voru sálmabækur og
Nýa testamenti. Aðstandendur barnanna voru mjög þakklátir
og tóku þessa nýbreytni vel upp.
Féð til verðlaunanna, raunar fremur lítir, var haft saman á
þann liátt, að sá sem ritar þessar línur gekst fyrir kvöldsamkomu
er seldur var aðgangur að, og ílutti þar lítið erindi, ásamt séra
Jes A. Qíslasyni, sem einnig útvegaði ókeypis húsnæði til sam-
kornunnar.
Eg held að kennararnir gerðu vel í því að reyna þessa
aðferð öðru hvoru, og eg er viss um að þeir telja ekki eftir
sér að leggja dálítið á sig til þess. Með því vinna þeir að
minsta kosti tvent í einu: þeir hvetja börnin til þess að taka
sér fram í því sem gott er og gleðja þau uni leið, og þeir
halda hjörtum sjálfra sín hreinni með því að hafa þannig siðbótar
starfið meðal barnanna ávalt í huganum.
St. Sigurðsson.
Kennaraprófi
luku 19 manns um sumarmálin og fengu þær einkunnir, er hjer
segir:
1. Aðalheiður Albertsdóttir — — — — _— 78 stig
2. Bjarni Bjarnason — - — — — — — 62 —
3. Gísli M. Kristjánsson — — — — — — 50 —
4. Guðgeir Jóhannsson — — — — — 90 —
5. Guðmundur E. Geirdal — —- — — — 85 —