Skólablaðið - 01.05.1912, Side 14
78
SKOLABLAÐIÐ
Fræðslusjóður SLðavikurhrepps.
(Skipnjagsskrá: Stjt. B. 1911, 124.—5. bls.)
Sjóður þessi er stofuaður af barnaskólasji ði Súðavíkurhrepps
og var i árslok 1909 kr. 2582.1 1.
Tilgangur hans er »að efla mentun fátækra ungmenna í
Súðavíkurhreppi«, fyrst og fremst að styrkja börn á skólaskyld-
um aldri, er ekki geta ge.igið að heiman í barnaskóla hreppsins
eða á kenslustað fræðsluhéraðs Seyðisfjarðar og því næst styrkja
fátæka unglinga, en efnilega til náms, eftir 14 ára aldur í gagn-
fræðaskóla eða kvennaskóla.
Vigurklerkur er góður búmaður fyrir fleiri en sjálfan sig.
Lýðháskóla
hafa sýslunefndir Árnessýslu og Rangárvallasýslu samþykt að
stofna fyrir sýslur þessar, og Vestur-Skaftafellssýslu, ef sú sýsla
vill verða með þeim um skólann.
Nefnd manna kosin af öllum þessum 3 sýslum hefur stafað
að þessu máli og samið nefndarálit. En nú gjöra Skaftfellingar
ýmsar breytingartillögur við nefnarálitið, er að líkindum leiða
til þess að hinar sýslurnar verða tvær um skólastofnunina.
Allir góð:r memi óska, að þessu máli farnist vel.
Fyrirlestur um heímilisiðnað á Norðurlöndum
hélt Inga Lára Lárasdóttir 28. f. m. Lýsti þýðingu hans fyrir
löndin, bæði að því er snértir fjárhag og menningu. Benti og
á leiðir til að endurreisa hann hér á landi. Sagðist vel. Fleiri
eru nú hér um slóðir að hugsa þetta mál, helst að gjöra ein-
hverja byrjunartiraun í Reykjavík, vonandi verður ekki langt þess
að bíða, að einhverjar framkvæmdir sjáist.
Smælki.
Vel uppalið barn reynir ávalt að vera öðrum til geðs, því
er ánægja að hlýða foreldrum sínum og kennurum. Það hlustar