Skólablaðið - 01.06.1913, Blaðsíða 2
82
SKOLABLAÐIÐ
3, að þeir vilji fyrir hugsjónina sfarfa. — Svo myndi það og
annarstaðar fara!
Látum því ekki þenna tug tuttugustu aldarinnar líða, kæru
stéttarsystkin, án þess að við lok hans sé komið starfandi kenn-
arafélag í hverri sýslu landsins, sem myndi öflugt samband fyrir
alt landið.
Þá hugsjónir
fæðast. —
II.
Nú einsetur þú þér, að berjast fyrir stofnun
kennarafélags í sýslu þinni. Best er að kynna
sér vandlega áður starfsemina frá ýmsum hliðum. Til þess miða
»Leiðbeiningarnar«. Næst er svo, að færa stofnunina í tal við
stéttarsystkinin, þau sem líklegust eru til samvinnu að nauðsyn-
legum undirbúningi. Að því búnu er gefið út fundarboð og
í því sé skýrt frá, hvað um sé að vera. Mikið ríðuráað fund-
artími og staður sé vel vaiinn. Undir fundarboðið væri æskilegt
að fleiri en einn skrifaði. Þegar á stofnfund er komið, gerir
fundarboðandi grein fyrir tilefni fundarins, og biður menn að
láta álit sitt í ljós. Ennfremur leggur hann fram uppkast að
lögum fyrir kennarafélög. Þeir, sem tjá sig fúsa til að gerast
stofnendur, ræða þá lagafrv. og breyta eftir vild. Síðan skrifa
þeir undir lögin, og er þá þarmeð »hugsjónin fædd«. — Þess
skal getið, að sjálfsagt er að bóka gerðir sliks fundar, —
og eins, þó að félagsstofnun nái eigi fram að ganga.
Ekki er hægt að gefa neina reglu fyrir því,
Hve marSir? hve margjr stofnendur eigi að vera. Þó eru
5—7 máske lágmark. Auðvitað fer það eftir kringumstæðum.
5—7 einbeittir eru eins góðir og 10 — 12 hvikulir!
A stofnfundi er stjórn kosin. — Eitt fyrsta
verk hennar er að afla félaginu nauðsynlegra
starfsbóka. Þessvegna þurfa helst fyrstu tillög að greiðast á stofn-
fundi. Starfsbækurnar eru:
/. Gjörðabók. — í hana skal rita fundargjörðir, nefndarálit,
félagsm.tal o. fl. — Best að kaupa strykaðan pappír og
láta binda hann í sterkt band. Hæfileg spjaldstærð 7 * 9”.—
2. Gjaldkerabók. — Hæfileg er venjuleg stílabók (í 4 bl. broti)
3. Ritarabók eða bréfabók. — Hentugust spjaldstærð 7 x 9'’.—
Félagsstjórnin.