Skólablaðið - 01.06.1913, Page 13

Skólablaðið - 01.06.1913, Page 13
SKOLABLAÐID 93 Skólarnir á Islandi ætta að innleiða tannburstunarœfingar, eins og skðlar á Englandi, Pýskalandi og í Ameríku hafa gert. Framfarahreyfingin verður að koma frá skólunum. Kennaraspjall. Eftir Héðinn. IV. Barnarit. A síðasta vorfundi liins íslenska kennarafélags var rætt um útgáfu barnarita og nefnd kosin í málið. Frá þessu er skýrt í Skólablaðinu. En síðan hefi eg ekkert séð né heyrt um það. Það er gamla sagan: Við þegjum allt í hel, íslensku kennararnir. Það er svo sem auðvitað, að þeir menn, sem þetta mál báru fram á fundinum, hafa átt von á því, að ein- hver þeirra kennara, sem eigi voru þar, myndi láta til sín heyra um það mál í Skólabiaðinu, en það hefur eigi verið gjört hingað til. Mér er farið að blöskra þessi eilít'a þögn; því rýf eg hana, og er eg þó illa fær til að rita um þetta tnál. Eg er ókunnugur því, hvernig umræður féllu á fund- inum, og hvernig menn hugsuðu sér fyrirkomulagið. Hins- vegar er útgáfa barnarita sjá/fkjörið áhugamál kennarastéttarinnar, að því er eg fæ best séð, ef hún vill annars taka nokkurt mál að sér og fylgja því til framkvæmda. Vilja nú ekki þeir menn eða sá maður, sém upptökin átti að málinu á fundinum, skrifa ritgjörð um hugmynd sína og setja fram tillögur sínar? Ske mætti, að það yrði til gagns.— Eg hefi þá trú, að innan kennarastéttarinnar séu þó nokkrir kraftar, til þess að rita þessar barnabækur, — bara ef viljann skort- ir ekki. Líklega verður erfiðast að fá útgefndur að ritunum. En getur þá ekki kennarastéttin eða nokkrir menn í henni gefið þau út? Líkur virðast til þess að útgáfan bæri sig sæmilega eftir atvikum, því að þörfin er brýn. Það játa sjálfsagt allir kennarar og margir foreldrar. — Hafi því unp-

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.