Skólablaðið - 01.09.1914, Blaðsíða 2
130
SKOLABL.AÐIÐ
skuldinni á þá og fjargviðrast yfir ónytjungsskap kennaranna,
dauðadæma fræðslulögin, sem þeir hafa sjá'fir vanrækt að hlýða.
Það er kvartað um það, að heimilin slái æ slakara við
barnafræðsluna, og vilji kasta allri sinni áhyggju upp á meira
eða minna ófullkomna farskóla. Það er ekkert undarlegt að þau
geri það, ef þeim er látið haldast það uppi. En hverjum er neita
um að kenna? Engum öðrum en kennurum, fræðslunefndum
og skólanefndum, Nefndirnar og kennarinn hafa rétt til að neita
ólæsum og óskrifandi börnum um ókeypis kenslu. Sveitasjóðir
og landsjóður, sem halda uppi kenslu 10—14 ára barna, eiga
ekki að kosta kenslu í lestri og skrift frá rótum. En auðvitað
þurfa skólarnir að laga lestur og skrift, og meira verðrn þeim
ekki ætlað, einkuni ekki að kenna lestur frá fyrstu gerð.
Hví skyldi heimilunum vera gert að kenna lestur? Auðvitað
af því að skólunum og þó einkum farskólunum var ekki treyst
til þess. Má vera að sum heimilin geti það ekki, en þá er það
þeirra að fá hjálp til þess, og það á eigin kostnað. En hitt er
víst, að mörg heimili, sem undanfarin ár hafa sent farskólunum
ólæs börn og með því tafið skólavinnuna ótilhlýðilega, hefðu
getað kent lestur, ef þau hefðu nent því.
Lesturinn er aðalundírstöðuatriði allrar bókfræðslu, eins og
allir vila, og því verður að leggja rækt við hann öllum náms-
greinum fremur. Með þeirri lestrarkensluaðferð, sem hér er
notuð, geta ailir kent að lesa sem læsir eru sjálíir, þó að það
sé misjafnlega vel gert. Víst er nóg annað að gera á flestum
heimilum en að sitja við að kenna Ieslur, en hvar sem einhver
inanneskja er á heimilinu, sem nennir að segja barni til í lestri
stundarkorn á hverjum degi að vetrinum til, þar verður vand-
ræðalaust að kenna lesturinn. Og þetta á sér víðast stað.
Skólanefndir og kennarar verða því að heimta það harðri
hendi, að heimilin ræki þessa skyldu sína. Mætti reyna að minna
á hvílík skömm það er fyrir heimilisfeður að senda frá sér til
frekari kenslu 10 ára gömul börn svo að segja ólæs óg auð-
vitað vankunnandi um alla aðra hluti.