Skólablaðið - 01.09.1914, Blaðsíða 4
132
SKOl.ABLAÐIÐ
veittum af sveitarfé til að greiða: kenslukaup fyrir barn í barna-
skóla eða hjá farkennara, eða gjald fyrir nauðsynlegar bækur og
önnur kensluáhöld handa barninu«. —- Að »fœði kennara, sé
óviðkomandi kaupí hans, megi ekki og geti ekki talist með
kenslukaupi kennara«, hlýtur þá að vera lögskýring sii, er barna-
eigendum er talin trú um að rétt sé, ef þeir eiga að telja sér
skylt að borga fæði kennara o. fl. af farskólakoslnaðinum, svo
þeim verði eigi talinn hann sveitarstyrkur. —
En hvað skyldi nú fyrirspyrjanda ganga til, að fá von eða
vitneskju um það, hvað fást mundi úr landssjóói »ef fæði kenn-
ara yrði borgað úr sveitarsjóði ?« . . . bkyldi tilgangurínn ekki
vera sá, að reyna að fá allan fræðslukostnað annan, en fæði
kennara, endurgoldinn úr landssjóði, — með því einfalda ráði,
að setja nú fæðiskostnað kennarans á farskólareikninginn, sem
greiddan úr sveiiarsjóði, enda þótt eigendur barnanna, sérstak-
lega, greiddu hann úr sínum vasa? — Fái farskóli sá, er ræðir
um í fyrirspurninni 100 kr. og 72 kr. — 172 kr. úr landssjóði,
eins og gefið er í skyn í svarinu, skyldi þá sveitarsjóðurinn ekki
hér u. b. geta losnað við útgjöld til skólans og hreppsnefndin
verða »sú lukkulega?* Og skyldi fræðslunefndin ekki geta haft
reikning farskólans 1915 eithvað á þessa leið?
Tekjur: 1. Úr landssjóði kr. 172,00,
2. Úr sveitarsjóöi kr. 144,00. Samt. kr. 316,00.
Gjöld: 1. Kenslukaup kennara í 24
vikur, kr. 6,00 á viku
kr. 144,00.
2. Til lýsingar og hitunar
kensluherbergja kr. 28,00,
3. Fæði kennara í 24 vikur
6 kr. á viku, Kr. 144,00. Samt. kr. 316,00.
Ef barnaeigendur greiddu sveitarsjóði fæðiskostnað kennar-
ans eða kennaranna kr. 144,00, þá vinst landssjóðsstyrkurinn til
að borga kaup kennara og lýsingar- og upphitunarkostnað
skólahússins, er vel gseti verið miður bjatt og hlýtt baðstofu-
hús á þremur sveitabæjum, ef kenslan færi fram á þremur stöð-